Jæja, góðir hálsar.
Mér gekk ekki alveg nógu vel að láta tripod virka eins og ég vildi láta það virka svo að ég ákvað að herma eftir Bergrós og prófa þetta kerfi. Var frekar fúl með tripod þar sem það vildi ekki setja inn tímasetningar á póstana mína. Ætla að reyna að fá þetta til að virka – eins gott að það geri það.
Læt þetta duga í bili þar sem ég er enn að fikta. Að ganni setti ég seinustu pósta af tripod hérna fyrir neðan svo að þið getið notið þess að lesa þá….
Þangað til næst….
Archive for October, 2002
Jæja, góðir hálsar. Mér gekk ekki alveg nógu vel …
Posted in Almennt on 08.10.2002 by Hafds sk2.október 2002 Jæja, jæja. Nú hefur ekki margt sp…
Posted in Almennt on 08.10.2002 by Hafds sk2.október 2002
Jæja, jæja. Nú hefur ekki margt spennandi drifið á mína daga. Ég er bara að læra, æfa, sofa og borða – meira að segja helst til of mikið því kílóin hrannast upp þegar þau eiga að vera að RENNA AF. Ekki nógu gott. Samt hefur mín hvorki borðað neitt sem heitir sælgæti eða drukkið gos í tæplega 2 vikur. Það besta er að hana langar meira að segja alls ekkert í nammi – svakalega stolt af mér. Týpíkst fyrir mig að þyngjast og fitna þegar ég er að reyna að léttast og verða svaðaleg gella. Glöggir lesendur tóku eftir svaðalegri bumbumynd af mér – í maí á næsta ári stefni ég að því að vera með innfallinn maga, eða svona allt að því ![]()
Aðal umhugsunarefni mitt þessa dagana er þó hvort ég eigi að skella mér í vísindaferð á föstudaginn og þá hvort ég eigi að fara með viðskiptafræðiliðinu eða verkfræðinördunum. Það eru nefnilega fáir skráðir í vísindaferðina hans Sveinbjörns og því ætti ég að vera góð kærasta og auka hróður hans með því að mæta og láta líta út fyrir að það sé fullt í stað þess að djamma með hinum. Hins vegar langar mig miklu meira í ACO-Tæknival heldur en í Danfoss – held að flestir skilji afhverju. Auk þess held ég að fyrirlesturinn í A-T verði meira á mínu áhugasviði en Danfoss. Held að mér finnist skemmtilegra að hlusta á tölu um slæmt gengi og erfiðleika á markaðnum heldur en einhvern fyrirlestur um rör og tengingar og bla…
Sjáum bara til hvað ég ákveð – ég læt ykkur vita í tíma svo að þið getið hagað ykkar plönum eftir því ![]()
Ég var að sjá restina af SVAÐALEGU myndunum af mér í dag, þær reyndust alls ekki vera svo svaðalegar – fannst þær alla vega aðeins skárri en hinar ( og þá er ég eiginlega bara að tala um brjósta-og bumbumyndirnar). Það var að vísu ein mynd af rassinum á mér sem hindrar mig í að gefa linkinn upp – leiðinlegt fyrir ykkur. Mér til mikilla ama ganga einhverjar myndir af mér milli manna – held að það sé gera-grín-að-Hafdísi-dagar. Það gengur hins vegar yfir fljótt – vona ég.
Ég er að deyja úr þreytu eftir æfinguna í dag. Hlupum bara eitthvað endalaust og þegar þjálfi var endanlega búinn að drepa okkur Sveinbjörn, tók bara meira við. Skranans vandræði. Stundaskráin mín er nefnilega þannig að ég er í dæmatímum í þjóðhagfræði og rekstrarhagfræði aðra hverja viku. Aðra vikuna er ég til 18.45 en hina til 20.20 – sem að leiðir að verkum að ég get ekki mætt á æfingu þessa daga. Mér datt hins vegar í hug að vera svakalega dugleg og taka bara báða tímana á sama degi – ég er svo góð. Þetta leiðir það að verkum að ég get mætt á æfingar annan hvern miðvikudag, hinn hvern dreg ég bara Sveinbjörn með mér á æfingu í hádeginu – eða hann dregur mig réttara sagt. Þó að mín sé í ströngu átaki kemur letihaugurinn og sérhlýfnipúkinn oft upp í henni.
Núna ætla ég að fara að fá mér fegurðarblund…
28. September 2002
Eins og ég greindi frá í gær, voru misfallegar myndir teknar af mér í fyrstu vísindaferðinni minni. Hérna má sjá mig belgja út magann eins og mér einni er lagið. Held að það leiki ekki nokkur vafi á því að ég sé ólétt – hélt alltaf að ég myndi taka mig vel út með bumbu, en held að þessi mynd sanni að ég hafði MJÖG SVO rangt fyrir mér. Dæmi hver fyrir sig…
27.September, 2002
Úff, ég hreinlega skammast mín. Hef ekki skrifað neitt síðan ég byrjaði í skólanum. Vildi að ég gæti sagt að það sé vegna þess að ég sé svo dugleg að læra, en sú er víst ekki raunin. Held að ég sé einmitt allt annað en dugleg. Dundaði mér við það í dag að gera skussalista yfir allt sem ég ætti eftir að gera, varð örlítið of langur svo að ég ákvað bara að best væri að hvíla sig soldið áður en ég legði af stað í ferðina endalausu – það er að segja að því að vera á réttum stað í ÖLLUM greinum.
Annars er það helst að frétta að ég fór í FYRSTU vísindaferðina mína fyrir viku – brjálað stuð í EUROPAY, þeir eru svo sannarlega höfðingjar heim að sækja. Það versta var að einhver gæji tók ENDALAUSAR myndir af mér, sem líta það misvel út að ég segi ykkur ekki einu sinni slóðina. Þar er til að mynda hægt að finna mynd af mér með magann út þaninn – var að sýna strákunum hvað ég gæti gert mig feita og kvikindið tók mynd. Hann tók líka brjóstamynd af mér – hve fyndið er það. ÉG ER EKKI EINU SINNI MEÐ MEÐALSTÓR BRJÓST, alla vega ekki neitt til að taka mynd af. Síðan sýndi hann öllum strákunum myndina voða stoltur! Ég þurfti nú alveg að hemja mig þá – hefði barasta geta dáið úr hlátri. Er meira að segja búin að sjá myndina og finnst ekki mikið varið í hana – þó ég segi sjálf frá.
Var að fatta áðan að dótið sem ég skrifaði inn í ágúst uppfærðist ekki með síðunni. Svo að áhugasamir geta lesið einhverjar hugleiðingar síðan í ágúst. HEPPNIR ÞEIR.
Annars þarf ég að hunskast til að lesa einn af FIMMTÍU köflum sem ég á eftir, svo að ég bið að heilsa í bili – LATER.
Hef verið alveg svakalega léleg að uppfæra undanfarið. Kenni vinnunni um…í fyrsta skipti í allt sumar hafði ég alveg svakalega mikið að gera. Svo mikið að ég gat ekki einu sinni skrifað neitt hér…og þá er það svart!
Að vísu hefur ekki mikið markvert drifið á mína daga undanfarið. Fékk þessa líka leiðinda pest strax eftir verslunarmannahelgi og er bara rétt að hressast núna. Var á tímabili þegjandi hás sem er u.þ.b það versta sem ég get hugsað mér. Fór meira að segja í Saumaklúbb a.k.a kjaftaklúbb og gat varla talað. Hefur sjaldan liðið jafn illa. Gat næstum því ímyndað mér hvernig málleysingjum leið.
Annars stóð ég mig best í því að vakna alltaf kl.3 á næturnar með hóstakast og vekja allt húsið – gefum mér gott klapp. Tilitsama ég…
2.ágúst 2002.
Risin úr rekkju. Var hundlasin í gær og gat voðalega lítið gert. Var svo óglatt að ég gat varla hreyft mig. Gat ekki einu sinni notið þess að vera veik í góðu veðri og sóla mig – og þá er það slæmt. Er öllu betri í dag en langt því frá að vera góð! Tilhugsunin um að vera að fara upp í bústað eftir vinnu hressir, bætir og kætir. Hlakka ekkert smá til að komast aðeins í burtu. Við skötuhjúin sýndum hörku í gærkvöldi og þrifum bílinn OKKAR – er víst okkar bíll þegar hann er skítugur. Í dag er þetta sem sagt bílinn hans Sveinbjörns – góð skipti það. Síðan tróð ég einhverju ofan í tösku – ekki alveg með á hreinu hvað það er – mér til afsökunar var ég með óráði í gær. Sýndi samt hörku og mætti í vinnuna í dag, þrátt fyrir slen. Sló þar með helminginn af starfsfólkinu út því það eru næstum allir í fríi í dag – lata fólk.
Við Sveinbjörn verðum annars í svaka keppni í dag við samferðarfólk okkar um að ná svefnherberginu. Það er nefnilega bara eitt svefnherbergi og svo kojur – við sættum okkur náttla ekki við svoleiðis óþvera og heimtum rúmið. Eins og staðan er í dag fær ekkert skákað rökunum mínum. Við erum stærst og feitust og þurfum því stærsta rúmið. Við erum stóru og góðu vön og sættum okkur ekki við minna. Annars er ég sterkust svo að þau hin þora ekkert að mótmæla þessu þegar ég hólminn er komið.
Ég óska öllum góðrar skemmtunar um helgina og vona að aðrir skemmti sér jafn vel og ég ætla að gera….