106745081377828485
Með nýrri síðu kemur nýtt heiti. Frá og með deginum í dag mun ég skrifa undir mínu eigin nafni, enda mjög stolt af því. Síðan mín mun framvegis vera fundin á www.hafdisosk.blogspot.com
Ég er búin að eiga þetta nafn síðan ég byrjaði að skrifa og í fyrstu hafði ég þetta bara sem prufusíðu, prófaði breytingarnar hér áður en ég setti þær inn á bjútíkvín en ég hef í nokkuð langan tíma verið óánægð með bjútíkvín, held að það sé ekki lýsandi fyrir mig lengur.
Reikna ekki með að síðan mín muni breytast mjög mikið en ég vona að ég fari að skrifa oftar og vera all hressilegri í umfjöllunum mínum.
Ég er búin að sofa lítið undanfarið og hef því ekki margt skemmtilegt að segja í dag en það mun sko breytast.
Koma tímar, koma ráð!