Það er einhver alþjóðleg vika leti þessa dagana. Ég hef varla nennt að opna bók og hvað þá lesa þær. Ég er kominn vel aftur úr en hef ekkert efni á því þar sem fögin sem ég er í núna bjóða ekki upp á að maður geri annað en að lesa fyrir hvern tíma! Ekki sniðugt Ósk.
Það er mikið tilhlökkunarefni hjá mér um helgina. Okkur er boðið í mat bæði á föstudag og laugardag – gæti það verið betra?
Mamma mín bauð okkur í mat á föstudaginn og IDOL í eftirrétt 
Á laugardaginn er svo Begga vinkona okkar 25 ára og bíður í smá teiti í tilefni þess
Þetta verður sem sagt MJÖG LJÚFT.
ÉG gerði mikil mistök í morgun! Ákvað að laga aðeins á mér toppinn þar sem hann er orðinn svo síður – hefði betur sleppt því þar sem ég kann aldrei að hætta! Held alltaf áfram til að laga aðeins meira.
Ég náði þó að sannfæra mig um að hætta þegar ég var búin að klippa heilan lokk af sem ég sakna núna sárt 
Sem betur fer á ég góða klippikonu sem reddar þessu á morgun – hjúkket. Skil ekki afhverju ég læri aldrei af mistökunum og geri ekki neitt svona sjálf!
Barbie-dúkkurnar mínar fengu ekki góða útreið í denn þegar ég var að ,,snyrta þær” (hvernig gerir maður venjulegar gæsalappir niðri alt og?)
Internet-sambandið hér er að gera mig geðveika. Það er svona happa glappa hvort maður kemst á netið og mjög misjafnt hvað gleðin endist lengi – yfirleitt er hún mjög skammvinn!
Sendi tölvunörra frænda mínum sms áðan og bað hann að aumka sig yfir mig – veit ekki hverju hann svarar. Annars hringi ég bara í einhver netumsjónarmann í kvöld og bið hann um aðstoð.
Þetta eyðilagðist allt þegar Sveinbjörn tengdi tölvuna sína við netið upp í Egilshöll þegar við vorum að starfa á Stórmóti ÍR- spurning um að senda ÍR reikninginn 
Þetta kemst vonandi í lag bráðum svo ég haldi geðheilsunni!
Segi eitthvað skemmtilegra þegar netið kemst í lag!