107808712669825724
Úff, það var alveg brjálað að gera í dag. Þurfti að baka brauð, skella í rúllutertubrauð og baka sænska súkkulaðiköku, ryksuga og hafa mig til og allt þetta á mettíma.
Mamma kom svo með 2 kökur og einn heitan rétt. Þetta var svo mikið að ég bauð bara aukalega Bergþóri frænda, Ásdísi Maríu og syni þeirra Maríusi sem var mjög hress eftir allan sykurinn sem hann var búinn að innbyrða. Sóley frænka mín frá Egilsstöðum og maðurinn hennar kíktu svo líka við og því var brjálað stuð á Eggertsgötunni í dag.
Síðan ætlaði ég að flýta boði með vinkonum mínum úr saumaklúbbnum um einn dag þar sem ég sá ekki fram á að ná að útbúa eitthvað handa þeim á morgun – er lengi í skólanum og svona. En þær þurfa greinilega meiri fyrirvara en 4 tíma og því verða þær bara að missa af kökum þetta árið.
Ég er svo skrýtin að iðulega ef ég fæ boð um að kíkja í köku neita ég því ekki – enda sést það á mér
Þeir sem hafa áhuga á að borða leifarnar geta kíkt við í kvöld!
Góðar stundir,
15.02.2009 at 12:07
Hæ
Getur þu gefið mer uppskrift a rullutertubrauði, eg verði að baga það sjalv. Eg a heima i Esbjerg Danmörku og er buinn að vera her siðan 1960
Það er ekki hægt að biðja fjöldskylduna að senda það.
Eg þakka ynnilega fyrir ef þu getur hjalpt mer.
Kjær kveðja
Anni Olsen
( Svanhildur Olsen
anni@esenet.dk
Tlf. 75156249
Danmörku