Undarlegt mjög:
Eins og glöggir lesendur síðunnar tóku eftir dreymdi mig Ólaf Margeirsson nokkurn aðfaranótt miðvikudags. Núna hittumst við voða sjaldan þar sem vegir okkar liggja ekki mikið saman og því er ekki eins og hann sé mér mikið í huga. Mér þykir jú voða vænt um hann og mun eflaust alltaf gera en… Ég var að tala við hann á MSN áðan og skamma hann fyrir að ásækja mig í draumum og þá baðst hann afsökunar á því og spurði hvernig hann hefði farið að því. Ég áttaði mig þá á því að hann hefði ekki lesið síðuna mína í dag og vakti máls á því og þá sagði hann mér að hann væri búinn að vera að læra fyrir hagfræðipróf og hefði því átt lítið líf seinustu daga – hverjar eru líkurnar á því að mig dreymi hann og hagfræðipróf akkúrat 2 dögum áður en hann fer í eitt slíkt? Mér finnst þetta undarlegt mjög og er núna ekki hrifin af því að mig hafi dreymt að ég væri ólétt. SHIT!
Ég hugsa samt að þetta sé svona one of a kind og að ég sé voðalega lítið berdreyminn!
Varð bara að segja ykkur frá þessu!