Allar einkunnir þessarar annar eru komnar í hús. Mín gerði sér lítið fyrir og náði öllu, reyndar ekki með alveg jafn miklum glans og hún hefði kosið en þetta gengur víst út á að ná prófunum – það er alla vega betra en að falla. Til þess að komast áfram yfir á annað ár er nauðsynlegt að fá 6.0 í meðaleinkunn úr 5 fögum, samtals 20 einingum. Ég þarf að ná 5 í sumarprófinu mínu til að ná þessari einkunn. Ég ætti að ráða við það en það próf var mjög erfitt núna í vor og ég þarf auk þess að þylja hugtökin upp enn á ný og skila skýrslu svo að þetta verður smá vinna en ég ætti að ráða við það! Þarf að reyna að byrja á þessari skýrslu sem fyrst, nota tímann á meðan ég er ein! Spurning um að nota næstu helgi í þetta!
Ég verð að halda áfram að vinna…
Archive for May, 2004
108575859969195946
Posted in Almennt on 28.05.2004 by Hafdís Ósk108567138952862271
Posted in Almennt on 27.05.2004 by Hafdís ÓskÞað er soldið skondið að drekka sódavatn úr brúsa…
Loftbólurnar koma upp í gegnum stútinn
Lítið gleður lítið hjarta…
108566551373895334
Posted in Almennt on 27.05.2004 by Hafdís ÓskFann þennan leik á síðunni hennar Bergrósar. Eftir að hafa reynt nokkrum sinnum án árangurs fattaði ég þetta.
Eins gott að það tók bara smá tíma – ég verð alltaf að halda áfram þangað til ég fatta, hefði örugglega ekki verið vel liðið í vinnuna ef ég hefði verið að skoða þetta í allan dag ![]()
Endilega reynið ykkur…
108564644567583685
Posted in Almennt on 27.05.2004 by Hafdís ÓskTíminn líður hratt…
Ég hef nóg að gera í vinnunni, er alltaf að læra eitthvað nýtt og á meðan ég hef engar umsóknir til að skrá inn dunda ég mér við annað tilfallandi svo að ég hef ALLTAF eitthvað að gera.
Ég er búin að vera að drepast í mjöðminni, vaknaði bara frekar slæm seinasta laugardag og var svo slæm í fyrradag að ég fann stöðugt til og var hreint út sagt bara að drepast. Verkurinn var frá mjöðm og niður í ökkla – frekar óþægilegt. Það verður reyndar seint sagt um mig að ég sé nagli sem þolir mikinn sársauka – mjög seint.
Ég skellti mér svo í nudd og nálastungur í gærdag og er öll önnur í dag, það á ekki að trassa það að fara til nuddara í langan tíma. Svona er það bara þegar maður borgar himinhá æfingagjöld í hverjum mánuði.
Ég gerði þau mistök að fara AÐEINS á netið í gærkvöldi og heyrði svo aðeins í tengdamömmu og fór því ekki að sofa fyrr en seint og lítið varð úr morgunskokkinu mínu í morgun – ég fer bara seinnipartinn í staðinn. Ætla að taka þessu rólega í bili, ekki reyna um of á hægri hliðina mína, bara fara rólega af stað svo að ég lifi af æfingabúðir um helgina.
Það ætti að banna að hafa fjörug lög í útvarpinu á morgnana – ég er oft í rífandi stuði á leiðinni í vinnuna og finnst eins og það sé föstudagur. Það eru líka ár og aldir síðan ég dansaði seinast – ekki nógu gott. Þarf eiginlega að komast í smá dansstuð.
Helgina 5.-6. júní er Stuðmannaball á vegum bankans – við stelpurnar hérna uppí Viðskiptaveri erum að hugsa um að mæta galvaskar og dansa af okkur rassinn. Ég er eiginlega strax farin að hlakka til.
Tímin líður líka hratt, það styttist óðum í að ég endurheimti Sveinbjörn minn. Bráðum er bara vika og það er sko ekki NEITT!
Ég er samt eiginlega orðin einverunni vön, sofna eins og skot á kvöldin og hef haft í nægu að snúast. Samt á ég eftir að heimsækja ALLA!
Sveik Ernu illilega í gær, ætlaði með henni í sund en sveik hana í anddyri Laugardalslaugar, efast um að hún sé kát með mig í dag!
Gott í bili…
108547530700441323
Posted in Almennt on 25.05.2004 by Hafdís ÓskÉg vaknaði kát kl.6 í morgun – ég sef alltof laust. Elskurnar fyrir ofan mig eru reyndar ekkert duglegust í heimi við að slökkva á klukkunni en þennan morguninn slepptu þau stuðinu og fóru frekar hljóðlega svo að ég gat sofið til 7 – lúxus. Ég var reyndar alveg óhemju þreytt í morgun – væntanlega þar sem ég svaf lengur en í 6 tíma, er ekki vön svona miklum svefni.
Mjöðmin mín er eitthvað að angra mig, ég finn til í hverju skrefi sem ég tek og á því frekar erfitt með að taka æfingar. Komst þó að því á æfingu í gær að ég finn minna til eftir því sem ég hleyp hraðar og því hafði ég mjög gaman af því að skella mér í gaddana í fyrsta skipti í langan tíma – ég leit reyndar bara vel út fyrstu 70 af 120 en ég leit þó vel út meirihlutann ![]()
Dreif mig í að panta mér tíma í nudd en fékk ekki tíma fyrr en 7.6 – veit ekki hvernig ég verð orðin þá. Sé hvort ég get platað einhvern til að ýta aðeins í mjöðmina á mér eða þá hvort ég hleyp þetta ekki bara úr! Gæti líka druslast í sund til að reyna að liðka mig soldið – veit að Erna yrði ánægð með mig!
Ég horfði svo á helminginn af Intolerable cruelty í gær en varð svo að fara að sofa þar sem ég var of þreytt. Steinsofnaði um 11 leytið. Það var heldur ekki neitt sérlega spennandi að gerast í myndinni-trúi ekki að ég hafi fórnað CSI fyrir þetta…tek það upp næst! Mikill kostur við Skjá einn að geta horft á þáttinn í endursýningu, maður missir alltaf af einhverju.
Heyri reglulega í Sveinbirni, hann er bara nokkuð sprækur. Verslar eins og hann fái borgað fyrir það – veit ekki hvað er að koma yfir hann. Í dag er akkúrat vika síðan hann fór, mér finnst hún hafa liðið nokkuð fljótt. Er alla vega ennþá á lífi og það hlýtur að vera jákvætt!
Næstu helgi eru svo bara æfingabúðir á Laugarvatni, förum á laugardaginn og komum á mánudaginn – hlakka barasta soldið til. Ætla pottþétt að fara að heimsækja Bjössa, Gunnhildi og sæta grísinn þeirra. Alltof langt síðan ég sá þessa elsku! Erna var mest ánægð með að sjá sund/sauna og heita potta á planinu – skil ekki hvaða nýja æði það er hjá henni.
Annars eru einkunnirnar að láta standa á sér – ég er ekki glöð.
108538137853213145
Posted in Almennt on 24.05.2004 by Hafdís ÓskNú er mér nóg boðið!¨
Það er ekki hægt að vera svona ótillitsamur.
Ég fór upp til að ræða við nágranna mína í efra en þau svöruðu ekki! Ég er farin að hallast að því að þau séu eiturlyfjasjúklingar! Þau hlusta alla vega á sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur og í morgun hoppuðu þau meira að segja í takt við tónlistina í hælaskónum sínum!
Klukkan var sem sagt 6.20 þegar ég vaknaði! Þið getið ímyndað ykkur hvað ég er kát. Ég hringdi meira að segja í lögguna til að spyrja hvenær væri leyfilegt að vera með hávaða á morgnana. Hann sagði að þetta væri á mörkunum, það má víst ekki raska næturró manna. Fyrir mér er ennþá nótt. Ég ætlaði ekki að biðja hann um neitt, þurfti bara að sjá hvað hann myndi segja. Strákurinn sem svarðaði á 112 var skilningsríkar, sagði að þetta væri nú full snemmt en löggunni fannst ég held ég bara vera rugluð ung kona!
Ég ætla að tala við umsjónarmanninn hérna á eftir og láta hann gera eitthvað verulega andstyggilegt við þessi gerpi. Núna veit ég hvað þau heita þar sem ég fór upp og hringdi bjöllunni til að segja þeim til syndanna – þau þorðu ekki að opna. Sáu örugglega hvað sauð á mér!
Núna eru þau hætt að spila og ég ætla að hvíla mig í hálftíma!
R U G L!
108528657063946666
Posted in Almennt on 23.05.2004 by Hafdís ÓskJá, það er fjör – já, það er fjör…já, það er fjör á spilakvöldum.
Það var spilakvöld á Eggertsgötunni í kvöld. Nokkrir velvaldir einstaklingar fengu boðskort og mættu galvösk, reyndar sumir soldið mikið seint þar sem náttúrulega fegurðin var ekki alveg að gera sig. Kát spiluðum við Trivial þar sem strákarnir svindluðu og sigruðu þar með en við hefndum okkar í Partý&Co – what else is new. Það voru þvílíkar sálfræðintengingar okkar á milli að annað eins hefur sjaldan sést!
Við kíktum siðan nokkur niður í bæ um 2 leytið en vorum fljót að komast að því að fm-hnakka og hnátur voru að gera bæinn vitlausan og því stoppuðum við ekki lengi við. Voru þó nógu lengi til að sjá einn hnakka rífa sig niður í rassgat við Ernu, veit ekki alveg um hvað en held að hann hafi verið að saka hana um að stela af sér 5000 kalli eða eitthvað álíka. Hann var ekki gáfulegur pilturinn. Ég öfunda hana ekki af því að vinna við að þjóna svona leiðindaliði. Það markverðasta niður í bæ var að þessu undanskildu það að hitta bæði Audda Blö og Val í Buttercup á sama stað – ótrúlegt helvíti.
Ég dansaði ekki neitt þar sem ég þoli ekki að dansa á engu plássi með rassgatið á næsta manni þétt upp við mig – ekki hrifin af annarra manna rössum. Nema sumum rössum sem eru úti í Kína og tilheyra mér.
Ég er að hugsa um að sofa vel á lengi á morgun og fara svo jafnvel á æfingu, hefði held ég gott af því. Nammidagurinn var tekinn létt í dag, borðaði bara nokkrar kúlur svo að Sígurjón æti ekki 560 heldur bara 550.
Það á að taka VÖRUMERKI út úr Partý&Co, þetta er rugl reitur sem gerir alla brjálaða og sumt er vonlaust að geta. Í kvöld fengum við til að mynda Peningaskápur og fiskamatur – gott! Ég er ekki hrifin af þessu ég verð að segja það.
Annars kát…
108525062927091788
Posted in Almennt on 22.05.2004 by Hafdís ÓskÉg hef skrifað 645 pistla síðan ég hóf ferð mína á þessum tveimur blogspot síðum. 387 pistlar litu dagsins ljós undir nöfnum bjútíkvín en hingað til hef ég skrifað 258 pistla á þessa elsku. Þetta gera samtals 645 eins og ég kom að áður. Mér finnst þetta bara nokkuð gott á ekki lengri tíma!
Ég á ofsalega góða vini sem eru voða góðir að bjóða mér hingað og þangað til að stytta mér stundir. Magga vinkona mín var að enda við að bjóða mér í mat upp í sumarbústað – ofsalega góð. Ég varð samt að afþakka það fallega boð þar sem ég var búin að skipuleggja spilakvöld með góðum hópi fólks í kvöld. Þetta verður þó nokkuð sérstakt kvöld þar þetta verður samtíningur fólks úr öllum áttum lífs míns. Skólafélagar, æskuvinir, netfélagar og æfingafélagar. Held samt að þetta verði bara öflugt!
Ég vil óska sjálfri mér og öðrum aðdáendum Manchester United til hamingju með titilinn, huggun harmi gegn að fá þó eitt málmstykki! Þeir stóðu sig nú líka ágætlega í dag þessar elskur. Ég var alla vega ánægð með þá.
Ég fékk símhringingu kl.9 í morgun – skakkt númer. Ég er alltaf jafn heppin kl.9 á morgnana. Ég ákvað þó að láta þetta ekkert trufla mig og lagði mig bara áfram.
Sveinbjörn lét líka aðeins heyra í sér og það skemmdi ekki fyrir. Voða gott að heyra aðeins í honum þó að það kosti marga, marga peninga. Hann er alveg þess virði þessi elska. Hann er víst búinn að vera duglegur að versla enda er sehr ódýrt þarna úti. Held samt að hann versli mest bjór – eru strákar ekki flinkastir í að versla hann?
Bið að heilsa í bili,
108514588905219024
Posted in Almennt on 21.05.2004 by Hafdís ÓskNágrannarnir mínir hættu að hafa FEVER, SUMMERTIME og eitt enn lag á REPEAT kl.10 í gærmorgun og því gat ég lagt mig eftir það. Það var ósköp ljúft og endurbætt ég vaknaði fersk kl.12 ![]()
Þá skellti ég mér heim með afganginn úr saumaklúbbnum og lék við litlar frænkur mínar og hafði það gott. Ellen vinkona mín kom svo keyrandi frá Akureyri seinni partinn en hún verður að vinna hérna í sumar – vei,vei.
Ég hjálpaði henni að flytja dótið sitt inn og færði húsgögnin sem voru fyrir í íbúðinni soldið til til að gera hana huggulegri – ég hef yfirleitt mjög sterkar skoðanir á röðun húsgagna
Ég leyfði henni þó að ráða mestu, kom bara með hugmyndir að bættu skipulagi.
Við vorum svo bara að vesenast í gær, ég gerði heiðarlega tilraun til að stilla STÖÐ2 inn hjá henni án mikils árangurs. Ég náði stillimyndinni en fékk aldrei fram nógu skýra mynd – þess ber þó að geta að sjónvarpið er síðan 1727 svo að það er ekki von…
Í kvöld er svo mót í Borgarnesi sem mig langar dálítið að kíkja á og taka jafnvel bara æfingu í leiðinni! Það fer þó soldið eftir þessari elsku þar sem ég nenni ómögulega að fara ein! Svo langar mig að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld en ég er voða hugmyndasnauð! Sé til hvað elskan mín segir um það!
Annars er ég bara orðin nokkuð klár í greiðsluþjónustunni…
108504414155596993
Posted in Almennt on 20.05.2004 by Hafdís ÓskHvað ætli ég myndi fá langan fangelsisdóm fyrir að drepa nágranna mína? Ég get pottþétt borið geðveiki fyrir mig þar sem þau eru að gera mig geðveika. Ég sofnaði ekki fyrr en kl.1 í nótt og þar sem ég er ekki búin að bæta mér upp svefntapið mikla ennþá hefði ég þurft að sofa til svona 11 helst en nei. Núna er þau að hlusta á gamla tónlist í hæsta styrk, veit ekki hvað þau eru að gera annað. Það eru allir gluggar lokaðir og því ætti ég ekki að heyra svo mikið – þau hljóta að vera með þetta á gígantískum hávaða. Ég held reyndar enn í vonina um að þau séu að flytja þar sem það virðist vera svo hljóðbært uppi – ég hef alla vega ekki heyrt svona í tónlist áður – vona að þau hafi ekki verið að kaupa ný hljómflutningstæki og séu að prófa þau. Reyndar soldið skrýtið að prófa þau kl.9 á fimmtudagsmorgni. Mér finnst alveg eins og það sé laugardagur. Maður verður svo ruglaður þegar það eru svona frídagar inn í miðri viku.
Ég er búin að heyra aðeins í Sveinbirni. Ferðin gekk ágætlega. Það voru smá tafir í Leifsstöð og því fór flugvélin ekki kl.7.20 heldur um 9 leytið. Hann beið svo í Amsterdam í nokkra tíma eftir fluginu til Peking. Flugvélin sem flaug með hann til Peking var víst HUGE en þröng að sama skapi – ekki alltaf sem þetta tvennt fer saman
Hann sefur líka illa þar sem herbergisfélaginn hrýtur svo mikið…erfitt að skipta á mér og hrotubrjót! Ísbjörnin (bangsi) sem er minn rekkjunautur þessa dagana er einmitt til mikillar fyrirmyndar. Gæti ekki kvartað. Það er reyndar dáldið erfitt að halda uppi samræðum við hann en…ég læt mig hafa það.
Það var saumaklúbbur hjá mér í gærkvöldi. Svaka stuð. Ég bakaði eitthvað smá handa þessum elskum. Þær voru reyndar ekki næstum nógu duglegar að borða þar sem það er ennþá talsverður afgangur og ekki dunda ég mér við að borða þetta ein. Er að hugsa um að fara með þetta heim í Skipasund og færa foreldrum mínum og systur.
Ég á að taka morgunskokk, langt og rólegt. Er samt eiginlega of þreytt ennþá. Hefði verið til í að sofa í svona klukkutíma í viðbót að minnsta kosti. Er soldið að spá í að fara í föt og segja nágrönnnum mínum til syndanna. Verst að ég veit ekki hvaða rétt ég hef til þess. Veit ekki hvenær maður má byrja að hafa læti á morgnana!
Ég ætla að reyna að finna mér eyrnatappa…
108497468763137956
Posted in Almennt on 19.05.2004 by Hafdís ÓskMissti vatnið…
Ég sýndi mína innri konu ítrekað í vinnunni í gær. Þegar ég var að fá mér vatn í flöskuna mína tókst mér að ýta of oft á takkann af einskærri óþolinmæði – það er víst ekki sniðugt að fikta, og með því bunaði út úr vélinni löngu eftir að flaskan mín var full. Ég neyddist til að horfa á vélina sulla á gólfið og sækja svo klósettpappír til að þrífa. Þetta vakti nokkra lukku frammi á gangi þar sem enginn þekkir mig – gat þó hrósað happi yfir því að þetta kom ekki fyrir inni á deildinni minni. Þær hefðu sko hlegið að mér.
Síðar um daginn ákvað ég að ég þyrfti að gera eitthvað róttækt til að halda mér vakandi fram til 4 og ætlaði að fá mér soldið kaffi. Mér fannst þó líklegt að ég yrði svakalega ofvirk af svona koffein skammti og ákvað því að fá mér te í staðinn. Mér tókst að setja heitt vatn í bolla án nokkurra áfalla og taka mér tepoka. Hins vegar flæktist það eitthvað fyrir mér hvernig maður setur bolla á skrifborð og því helltist helmingurinn úr bollanum yfir skrifborðið, lyklaborðið slapp þó sem betur fer. Enn á ný þurfti ég að fara fram til að sækja klósettpappír til að þurrka skrifborðið. Í þetta skiptið hellti ég á mitt borð og því sáu þetta flest allir og hlógu að mér. Það er reyndar skemmtileg tilbreyting þessa dagana þar sem Sveinbjörn á heldur erfitt með að gera grín að mér í gegnum símann!
Núna geymi ég klósettrúllu í skáp hérna rétt hjá þar sem slysin gera víst ekki boð á undan sér
108489515291615460
Posted in Almennt on 18.05.2004 by Hafdís ÓskÉg hélt ég myndi deyja úr þreytu kl.13 í dag en ég komst yfir það, held að teið hafi hjálpað mikið til!
Núna er ég bara frekar spræk og í tilefni þess ætla ég að fara út að hlaupa á eftir. Veit ekki hvort ég geri eitthvað meira, líkaminn verður að ráða því. Held samt að ég taki bara Hafdísina á þetta og verði skynsöm og geri ekki neitt ![]()
Það er alveg nóg að hlaupa svona til að byrja með.
Ég er að hugsa um að reyna að sofa heima hjá mér í nótt, borgar sig að prófa það fyrst áður en ég fer að gera aðrar ráðstafanir. Mér finnst oft voða gott að vera ein með sjálfri mér, þá get ég sungið og dillað mér að vild!
Annars er ég búin að vinna kl.16 og ætla því að fara að legga lokahönd á plóginn
Later,
108488047606358076
Posted in Almennt on 18.05.2004 by Hafdís ÓskÉg er búin að vera vakandi síðan kl.4 í nótt, þess ber að geta að ég sofnaði kl.hálf tvö og því er mín heldur þreytt þessa stundina. Ég er búin að vinna um 4 leytið og þá verður ljúft að hvíla sig í smá stund og skella sér svo á æfingu upp úr 5.
Þið getið fylgst með gleði minni með því að horfa á niðurtal daganna hér efst á síðunni.
Ég er annars næstum búin að ákveða að flytja bara í Skipasundið í þrjár vikur – alla vega svona með annan fótinn! Það er voða leiðinlegt að vera svona einn í fjarskanistan! Ég er svo mikil félagsvera.
Annars vantar mig bíófélaga – langar að fara á Troy sem fyrst
108486016843655419
Posted in Almennt on 18.05.2004 by Hafdís ÓskSveinbjörn fór til Kína fyrir tæplega klukkutíma síðan. Ég get ekki sagt að ég hafi staðið mig eins og hetja þar sem ég HATA kveðjustundir og get bara alls ekki haldið tárunum niðri. Ég hef alltaf verið svona og verð áreiðanlega alltaf. Ég var þó örugglega búin að taka út eitthvað af skammtinum þar sem ég byrjaði að væla á sunnudaginn – ég veit að ég er erfið. Gerði honum sko ekki auðvelt fyrir. Bauðst meðal annars til þess að hjálpa honum að taka upp úr töskunni í morgun en það var síðasta úrræðið – ég var búin að bjóða honum ýmislegt áður sem var meira spennandi. Minnti hann til að mynda reglulega á að það væri 21 dagur þangað til að hann kæmi heim!
Ég ætla að reyna að standa mig í vinnunni í dag og halda haus, ekki gott að eyða öðrum deginum í vinnunni í það að grenja. Ég sit líka svo langt frá klósettinu svo að það væri ekki alveg að gera sig. Ég reikna með að drepast úr þreytu þar sem ég veit ekki hvort ég sofna eitthvað aftur (klukkan er að verða sex).
Ég hef verið að velta því fyrir mér að flytja bara heim til mömmu og pabba á meðan. Reyndar þyrfti ég að sofa í herberginu hennar Sæunnar á meðan og rúmið hennar er ekki eins gott og okkar – heitir væntanlega mitt rúm núna!
Þeir sem vilja ekki sjá mig grenja í dag eru vinsamlegast beðnir um að minnast ekki einu orði á það að Sveinbjörn sé farinn eða vorkenna mér á neinn hátt. Já, ég er vælukjói!
Úff, þetta verða langar vikur…
108482970457131936
Posted in Almennt on 17.05.2004 by Hafdís ÓskSveinbjörn fer í nótt.
Blóm, kransar og félagsskapur eru vel þegin.