Archive for July, 2004

109128571833546717

Posted in Almennt on 31.07.2004 by Hafdís Ósk

Við Sveinbjörn skelltum okkur í partý í gær með sumarstarfsmönnum Línuhönnunar. Við stoppuðum bara stutt þar sem við komumst fljótlega að því að fólkið var eilítið hressara en við – ok, þau voru hressari en ég og Sveinbjörn ákvað að koma með mér heim eftir að ég mútaði honum á lúmskan hátt! Við skriðum bara upp í rúm og Sveinbjörn horfði á Hellboy á meðan ég svaf á mínu græna ;) Hann fékk svo morgunmat í rúmið þessi elska og svo tók ég til á öllum vígstöðvum nema í svefnherberginu þar sem hann var þar að horfa á restina á Hellboy. Frekar nett að taka til á meðan maður dillar sér við Beoncé.

Fyrsti í lærdómi er í dag! Ég fer í próf 23.ágúst og finnst tímabært að fara að skoða námsefnið! Prófið sem ég tek er frekar strembið – eða hefur alla vega verið það hingað til og því þarf að eyða heilmiklum tíma í þetta. Ég sluxaðist mikið í þessu fagi í vetur og því hef ég ekki neinn grunn til að byggja á! Bókin er 450 bls. sem ég þarf að lesa spjaldanna á milli en ég reikna ekki með að gera það oftar en einu sinni þar sem Agnes vinkona mín var svo góð að aumka sig yfir mig og lánaði mér glósurnar sínar – þessi elska!Frændi minn er að koma til landsins frá Þýskalandi í dag, hann er búinn að búa þar í rúm 20 ár. Hann á þýska konu og 2 börn sem skilja íslensku en neita að tala hana og svara manni því alltaf á þýsku. Skemmtilegt fyrir þýskuskussa eins og mig!

Ég veit ekki hvað er á planinu í kvöld, ÍR-liðið ætlaði að hittast eitthvert kvöldið en það var ekki búið að nelga niður hvaða kvöld það var! Ég væri samt alveg til í að hittast í kvöld og spila og slá á létta strengi!Hvernig líst ykkur á að við kaupum okkar guitar for dummies? Haldiði ekki að ég yrði efnileg? Spurning hvort ég geti bæði spilað og sungið í einu…

109128564524422151

Posted in Almennt on 31.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég veit að þetta er ekki flottasta lúkk í geimi. Ég finn bara ekki neitt sem mér líkar og kann ekki að búa til sjálf. Þess vegna stækkaði ég stafina bara soldið svo að þetta sé ennþá lesanlegt og lofa bót og betrun þegar ég hef tíma og þolinmæði í að leita að einhverju fínu.

109118564105892179

Posted in Almennt on 30.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég var að passa litla 4 ára frænda minn í gær, Maríus Pétur. Hann var bara nokkuð sprækur, hljóp út um allt niður á Laugardalsvelli bæði úti og inni. Tók löng tilhlaup og hoppaði upp á dýnurnar, lyfti öllu sem hann sá og hoppaði út í langstökksgryfju með tilþrifum.
Langstökkstílinn var mjög svo frjálslegur á 40m atrennu tók hann 2-3 valhopp og þar af eitt áður en hann stökk út í gryfju og svo hjóp hann eiginlega bara beint út í gryfju og skutlaði sér. Þetta var allt mjög skondið. Sama hvað ég reyndi að segja honum að það væri nóg fyrir hann að taka stutta atrennu þá hlustaði hann ekki mikið á það þvaður og færði sig bara aftar fyrir vikið. Ég get reyndar ekki kvartað mikið yfir því þar sem ég hefði pottþétt gert það sama sjálf á þessum aldri!
Við keyptum svo pizzu til að gleðja guttann en þegar heim var komið var hann svakalega svekktur yfir því að það væru engar svartar ólífur á pizzunni og fannst frekar furðulegt að við ættum ekki ólífur og enn furðulegra að okkur fyndist þær ekki góðar.
Hann gat engan veginn farið í sturtu – bara bað. Fannst lélegt að ég ætti ekki bað og mælti með því að ég myndi kaupa mér það sem fyrst. Hann vildi líka að við Sveinbjörn myndum kaupa okkur dót svo að hann gæti leikið sér – skildi ekkert í því að við gætum ekki bara farið í bankann og fengið pening!
Þessi elska veit hvort er hægri og hvort er vinstri, hann veit hvar spítalinn er og í hvaða bæjarhluta við erum. Áttar sig á því að afi Binni eigi heima hérna nálægt og er með allt á hreinu varðandi flugvöllinn og biður okkur um að fara þangað á svona 5 mínútna fresti.
Hann vildi helst horfa á Spiderman – áttaði sig ekki alveg á því að hún væri kannski ekki alveg fyrir svona ung börn – hann er jú einu sinni stór strákur! Við leyfðum honum að horfa á smá hluta af myndinni. Hann sá Spidermanbúninginn og græna djöfulinn og það gladdi mjög lítið hjarta sem dáir Spiderman.
Hann var heldur ekkert á því að fara að sofa – skildi ekki hvar hann gæti sofið heima hjá mér. Fannst mitt rúm ekki alveg koma til greina og því hélt hann sér bara vakandi til 11 hinn sprækasti. Ég get reyndar sjálfri mér um kennt – ég asnaðist til að gefa honum Coke með pizzunni. Þessi elska er líka alltaf svöng og var í því að borða afgang af pizzu langt fram eftir kvöldi og langaði í eitthvað lítið þess á milli – bara eitthvað lítið!
Hann er voða yndislegur en minnir mig samt á hvað ég er ekki tilbúin í að eignast börn strax sem er jú voða gott.
Mér finnst bara voða gott að fá þessar elskur lánaðar í smá stund og skila þeim svo af mér og njóta þess að þurfa bara að hugsa um Sveinbjörn – það er alveg nóg fyrir mig í bili!

109110494048568621

Posted in Almennt on 29.07.2004 by Hafdís Ósk
Við í vinahópnum fórum að ræða um samkeppni á Íslandi um daginn og tókst ekki að finna gott dæmi um samkeppni á neinu sviði. Upp í hugann kom þó samkeppnin á milli Símans og OgVodafone – einhverjir vildu þó meina að um eiginlega samkeppni væri ekki að ræða þar sem annað fyrirtækið keypti þjónustu sína af hinu. Við vorum sammála um að samkeppni ríkti ekki á matvörumarkaði, ekki á olíumarkaði nema á sérstökum svæðum í bænum, einokun ríkir náttúrulega á vínmarkaði og svo mætti lengi telja. Það er oft erfitt að meta hvort um samkeppnismarkað sé að ræða þegar vörur eru ólíkar eins og á bílamarkaði þar sem umboðin bjóða ekki upp á eins bíla – þó eru þeir að mörgu leyti sambærilegir. Það sama má í raun segja um fatnað – hann er sambærilegur en ekki eins.
Einn vinur minn sem hefur verið búsettur vestan hafs í nokkur ár getur ekki hugsað sér að flytja aftur heim út af verðlagi – segist einfaldlega ekki hafa efni á því!
Þetta verðlag okkar er náttúrulega út í hött. Bensínlíterinn kostar rúmar 100 krónur á meðan bandaríkjamenn væla yfir því að hann kosti einhverjar 30-40 krónur.
Hvað er öðruvísi hér og þar? Afhverju er allt svona dýrt hérna heima? Borga aðrar þjóðir hærri skatta? Mér finnst það hæpið þar sem við borum nógu andskoti mikið í skatt – reyndar borga ég voðalega lítið um þessar mundir enda námsmaður en ég kvíði fyrir því að þurfa að fara að borga 40% af laununum mínum í skatt!
 

109109010019216419

Posted in Almennt on 29.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég er aumingi.
Hjólið er brettalaust og ég varð rennandi blaut og drullug upp fyrir haus af því að hjóla heim frá Laugardalsvelli í gær og því tók ég þá ákvörðun að hjóla ekki í vinnuna í dag. Ég einfaldlega nennti ekki að fara að byrja á því að fara í sturtu um leið og ég kæmi í vinnuna! Ég er löt ég veit.
Auk þess hafa þessir hjólatúrar verið að eyðileggja frjálsíþróttaæfingarnar fyrir mér þar sem ég er frekar þreytt í fótunum af öllu þessu hjóli. Það ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að ég taki svaka æfingu niður í dal á eftir! Ég er eiginlega bara strax farin að hlakka til. Reyndar er ég þjálfaralaus þar sem minn skrapp til Bandaríkjanna í viku en ég hlýt að geta fundið eitthvað skemmtilegt handa mér að gera!
Ég hef samt ákveðið að hjóla í vinnuna á morgun hvernig sem veðrið verður – fæ þá bara regnbuxur lánaðar – ég á nefnilega bara vindgalla og maður blotnar svakalega í gegn af þeim. Komst að því í gær rassinum mínum til lítillar ánægju!
Ég gerði reyndar heiðarlega tilraun til að fá hjólið hennar systur minnar lánað þar sem það er með breyttum og því hefði ég ekki slett allri bleytunni og drullunni á mig en pabba tókst að skilja það eftir í vinnunni sinni og þar var það læst inni svo að…
En á morgun segir sá lati!

109102223370423215

Posted in Almennt on 28.07.2004 by Hafdís Ósk

YFIRLÝSING

Ég, Hafdís Ósk Pétursdóttir, heiti því hér með að hætta að tala um fitu, appelsínuhúð og önnur þyndartengd mál í nærveru æfingafélaga minna.
Þetta er gert vegna fjölda áskorana en þær komu flest allar frá Burkna Helgasyni nokkrum.
Með þessari yfirlýsingu vonast ég til þess að fitan hverfi frá og vöðvar og önnur skemmtilegheit komi í staðinn.
Auk þess held ég að fitan kunni ekki eins vel við sig þegar hún fær minni athygli!

Reykjavík, 28.júlí 2004,

Hafdís Ósk Pétursdóttir

Refsing mín fyrir að tala um fitu verður 800m skokk!

109102199889307720

Posted in Almennt on 28.07.2004 by Hafdís Ósk

Hollystuprógramm dauðans er í gangi um þessar mundir. Stefnan er að hjóla í og úr vinnunni á hverjum degi og fara auk þess á æfingar. Ég kom við heima hjá foreldrum mínum á leiðinni niður í Laugardal í gær til að mæta ekki langfyrst á staðinn. Sveinbjörn var nefnilega að vinna aðeins lengur og stelpurnar hafa ekki lagt í vana sinn að mæta kl.5 – sér í lagi ekki þar sem nokkrar eru að vinna til sex og því væri ekki svo gott að mæta kl.5!
Ég brunaði svo niður í dal um hálf sex og skokkaði með Sveinbirni – komst þó ekki langt þar sem fótleggirnir mótmæltu harðlega. Þess í stað fórum við í Frisby með Einari Karli en hann á einhvern voða flottan frisby-disk sem á að geta gert alls kyns kúnstir.
Eftir smá prakkaraskap og læti tók ég þó smá æfingu en það sem átti að vera hratt var ekki hratt – ekki einu sinni á minn mælikvarða þar sem lappirnar vildu barasta ekki hlýða og fóru því bara hægt! Ég tók bara fleiri endurtekningar fyrir vikið, teygði svo á og hjólaði heim. Þar beið mín hollystumáltíð og svo fór ég bara snemma í bólið þar sem líkaminn var örþreyttur vonandi eftir að hafa brennt svona OFUR miklu.
Þegar ég settist á hnakkinn á hjólinu í morgun langaði mig mest að öskra þar sem rassabeinin fengu að kenna á því í gær og voru því marin og aum! Það þarf greinilega að venjast þessum hnökkum. Hjólið er annars ekki að gera góða hluti þar sem það tekur reglulega upp á því að skipta bara um gír – þetta kemur sérlega oft fyrir á óheppilegum stöðum svo sem í brekku þar sem hjólarinn getur kannski ekki skipt svo auðveldlega um gír strax. Þetta olli mér smá vandræðum á leið upp Ártúnsbrekkuna í dag þar sem ég var í frekar erfiðum gír en piltur á undan mér var bara svona á góðu rúlli – reyndar endaði þetta með því að ég náði honum en missti hann fljótt frá mér aftur þar sem hann var ekki næstum eins þreyttur eftir uppleiðina.
Ég gladdist hins vegar mjög á ferð minn frá Eggertsgötu, framhjá Nauthólsvík, í gegnum Fossvoginn og þar beint upp í Árbæ upp hitaveitustokkinn – tók ég fram úr 2 hjólurum! Alltaf gaman að taka fram úr. Sérstaklega þar sem ég var endalaust þreytt eftir fyrsta kílómeterinn.
Þetta verður vonandi auðveldara með hverjum deginum sem líður…

109102144027135380

Posted in Almennt on 28.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég dundaði mér við að setja saman eitthvað tímabundið útlit. Þurfti bara svo að breyta aðeins til. Var orðin svo þreytt á þessum hvíta einfaldleika.

 

109100574350707593

Posted in Almennt on 28.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég var í því að leita mér að fallegu útliti á síðuna mína í gær og hefur einhvern veginn tekist að breyta LÚKKINU í fagurgrænt án þess að vita af því. Þegar ég svo kíkti inn á síðuna rétt í þessu brá mér ekkert smá! Ég hef sem sagt verið að fikta of mikið í gær!
Síðan mín átti sem sagt ekki að vera svona græn!

Ég ætla bara að halda áfram að leita víst það er ekkert að gera í vinnunni!

109094444409987664

Posted in Almennt on 27.07.2004 by Hafdís Ósk

Mig langar svo að breyta útlitinu á þessari síðu en finn bara ekkert sem mér líkar!
Vildi að ég væri ofur klár í grafískri hönnun og geti bara lokkað nýtt litaglaðara útlit út úr erminni!
Hæfileikar mínir liggja víst á öðrum sviðum en í heimi forritunar!

109091961670623425

Posted in Almennt on 27.07.2004 by Hafdís Ósk

Ég hjólaði í vinnuna í morgun – ca.11 km! Viðurkenni fúslega að hitaveitustokkurinn upp í Árbæ var heldur strembinn. Ég var andstutt, þurfti að vanda mig við að anda inn, rassinn og lærin fundu vel fyrir átakinu við að hjóla upp sitjandi og því fékk ég smá svona sýrutilfinningu og þorstinn drap mig næstum en þetta var þess virði! Frá því að ég flutti hingað á mölina stend nefnilega ég ekki þegar hjóla!
Daníel bróðir hans Sveinbjörns lánaði mér hjólið sitt þar sem ég á ekkert hjól. Eini gallinn við það er að það er helst til of lítið. Ég myndi vilja hafa sætið soldið hærra svo að ég sitji ekki svona ofsalega mikið þegar ég hjóla. Sætið er í hæstu stillingu en samt næ ég niður – ég vil þurfa að teygja aðeins úr fætinum niður á pedalann og fá þar með eðlilegri hreyfingu.
Þetta var hressandi mjög!

Ég hlakka soldið mikið til að hjóla á æfingu þar sem þetta er að mestu leyti niður í móti  – mér finnst gaman að fara hratt ;)

109091938390652726

Posted in Almennt on 27.07.2004 by Hafdís Ósk

Oh, það er svo notalegt að skríða upp í rúm þegar það er ískalt inn í herberginu og kúra sig vel undir sængina og njóta þess að anda að sér köldu fersku lofti!
Mér finnst gott að hafa kalt á kvöldin!

Mér finnst reyndar líka voða gott að vakna í hálf köldu herbergi og drífa sig í fötin og af stað!

109084183688802718

Posted in Almennt on 26.07.2004 by Hafdís Ósk

Fjörðurinn minn fallegi!
Sá þessar myndir á Vopnafjörður.is og vildi deila þeim með ykkur.
Þær eru svaðalega flottar.

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11

Æ, ég gat ekki valið á milli og setti þær því bara allar ;)

Njótið vel!

109083797412896990

Posted in Almennt on 26.07.2004 by Hafdís Ósk

Ljótri helgi lokið.

Ég þóttist vera að keppa um helgina en í rauninni var ég bara að klúðra mínum málum. Held að það sé ekki hægt að flokka nærveru mína á vellinum í íþróttafötunum sem keppni. Gerði öll stökkin mín ógild í langstökki – fékk meira að segja auka stökk þar sem dómarinn ógilti eitt stökkið mitt og rýndi svo niður í leirinn og sá ekki glóru og sagði þá að stökkið væri gilt. Það var hins vegar of seint þar sem aðstoðarmennirnir voru búnir að raka yfir leirinn. Ég gerði sem sagt 4 stökk ógild og komst þar af leiðandi ekki áfram. Ég var nú hálf fegin seinni partinn þegar keppnin fór fram þar sem það var kalt og keppnin tók klukkutíma og 45 mínútur í heildina. Í staðinn spriklaði ég bara niður á velli og var aðstoðarljósmyndari. Vil halda að ég hafi komið að góðum notum. Ég stóð mig þó vel í einhverju þann daginn þar sem ég grillaði hamborgara listilega vel heima í Skipasundi á meðan Sveinbjörn svaf. Eðlilega var hann þreyttur greyið, það er erfitt að sitja upp í stúku í sólinni og taka myndir af þeim sem eru að hreyfa sig. Þetta voru með bestu hamborgurum sem ég hef smakka og létt Bónu hamborgarasósa var að gera góða hluti. Fann mig mjókka eftir að hafa hámað í mig 2 stk.

Ég gerði ekkert betri hluti á sunnudeginum. Byrjaði að hita upp fyrir allar aldir og var orðin þreytt hálftíma áður en ég átti að byrja að keppa, vil soldið kenna Jóhönnu um þar sem hún byrjaði að hita upp snemma og ég vildi hita upp með henni en í raun get ég bara kennt aldrinum og æfingaleysinu um. Ég gjörsamlega skeit á mig í keppninni, var ekki að gera góða hluti. Var sársvekkt þegar ég áttaði mig á því að ég komst í úrslit þar sem ég var þreytt og langaði bara að fara upp í stúku. Allar aðrar voru að gera góða hluti, bættu sig alveg í röðum.
Við Sveinbjörn ákváðum svo að fara að horfa á Víkingur-KR í Víkinni þar sem Sveinbjörn er harður Víkingur og slepptum því að fara út að borða með ÍR-liðinu á Grillhúsinu. Við fitnuðum alla vega ekki á meðan þar sem við borðuðum banana á vellinum í staðinn fyrir óhollustuna á Grillhúsinu – gott hjá okkur.

Ég vaknaði síðan KÁT kl.4 í nótt við símann minn. Hljóp fram og sá að Silja var að hringja. Hún var bara hissa á því að ég væri sofandi og skildi ekkert í þessu. Hún var bara kát ásamt einhverjum 4 öðrum og bað bara að heilsa. Ég var alveg hálftíma að ná hjartslættinum niður og sofna aftur. Alltaf gleðilegt að vakna svona óvænt. Það var því þreytt, stíf og skæld kona sem drösslaðist fram úr í morgun og augnlokin hafa verið heldur þreytt svona framan af morgni!

109058945813674281

Posted in Almennt on 23.07.2004 by Hafdís Ósk

Það var kátt á hjalla í gær. Ég tók mig til og ákvað að elda heima hjá mömmu þar sem hún var eitthvað slöpp, mætti galvösk um 18 leytið en þá var þrjóskupúkinn móðir mín byrjuð að elda og öll eldamennskan fór fyrir bí þar sem hún tók völdin. Ég fékk sem sagt að ýta aðeins í kjúklingabringurnar á pönnunni, steikja furuhnetur, sækja pott og fat, fara í búð og leggja á borð. Ef öll eldamennska verður svona hjá mér í framtíðinni þá efast ég um að ég verði bitur fyrir þrítugt eins og svo margar húsmæður sem eiga dusilmenni sem eiginmenn. Það er vera dusilmenni merkir í þessu sambandi hjá mér að þeir þykist ekki kunna að elda!
Ég brá þó ekki út af vananum og henti furuhnetunum út um alla eldavél og brenndi mig frekar illa á heitri plötu. Ég vil reyndar kenna systur minni um það þar sem hún var eitthvað að ýta í mig – druslan.
Þetta verður alveg yndisleg helgi. Verð í því að drulla mig út niður á Laugardalsvelli. Það kemur alltaf vont veður þegar ég er að keppa og það breytist ekkert núna. Versta veðrið á landsmótinu var akkúrat þegar ég var að keppa og svoleiðis verður það pottþétt um helgina. Reikna með miklum gusum kl.11.00 í fyrramálið og svo kl.15 ef ég kemst áfram og sömuleiðis um kaffileytið á sunnudaginn! Þetta verður sem sagt stuð! Gott að ég er bjartsýn mjög. Ég tapa nefnilega svaðalega á rigningunni þar sem ég dreg svo mikla bleytu í stóru fötin mín! Úff, það verður sjón að sjá 100 kíló hlúnkast út í gryfju ( gerði viljandi Ú í hlúnkast).

Horfði á the Punisher með öðru í gær. Var ekki að skilja þetta með að seinasta setningin eyðilegði myndina þar sem þetta var gert eftir teiknimyndasögu – eðlilega eru lame setningar í lokin.