Ég hélt smá teiti í gær – var voða dugleg að takmarka en það fór samt eitthvað út úr böndunum og ég endaði á því að hringja í elskulegan föður minn og fá hann til að koma með nokkra kolla hana mér! Hann tók gestina í létta yfirheyrslu um leið…greyin hafa aldrei lent í öðru eins. ,,Hverra manna ert þú?” Vinsæl spurning á mínu heimili.
Það var svaka fjör. Ég ákvað að búa til ídýfu og kaupa smá snakk og nammi. Það var vinsælt – svo vinsælt að nokkrir ungir menn tóku sig til og settust bara við matarborðið og hámuðu í sig ídýfu. Mér fannst það bara gott hjá þeim – hefði átt að hafa vit á því að rétta þeim bara disk – veit ekki hvað ég var að hugsa. Þessi gleði var óhefðbundinn á þann hátt að það var ekki einungis gert grín að mér að þessu sinni heldur fengu aðrir gestir líka sinn skammt – gleðilegt mjög.
Við enduðum svo á því að fara niður í bæ en ég var ekki langlíf þar sökum leiðinda. Ég hef bara afskaplega lítið gaman af því að fara niður í bæ og láta fullt fólk traðka á mér, brenna á mér hendurnar með sígarettum, hella yfir mig og almennt troðast. Ég hef miklu meira gaman af því að vera bara heima og spila og spjalla og hlæja! Ég er hugsa um að halda mig bara við það.
Ég skemmti mér hins vegar mjög vel og þakka þeim sem áttu þátt í því.
Sveinbjörn Jónsson a.k.a fylliraftur dauðans kemur heim á morgun. Reikna með að skutla honum bara beint á Vog af flugvellinum – held að það sé skynsamlegast. Hann sló djamm dömunnar sinnar út með því að skemmta sér frá því 11 um morguninn til 7 um morguninn – 20 tíma djamm takk fyrir. Ég heyrði í honum seinni partinn í dag og þá var hann enn fullur svo að það er greinilega fjör í Köben! Hann hefur þó nýtt tímana á milli fyllería – þessa 2 til að skoða skóla og ákveða hvort að við förum þangað eður ei. Skilst á honum að hann sé ekki mikið spenntur svo að við þurfum að fara að gera aðrar ráðstafanir!
Ég fór á Grindavík-Víkingur með Tótu í dag. Ákvað að fara að styðja Víking í fjarveru Sveinbjörns. Þetta leit allt vel út í byrjun en skransans Grindvíkingarnir þurftu að eyðileggja þetta fyrir okkur í blálokin. Þeir þykjast hafa verið betri en ég er því alls ekki sammála. Mér fannst ,,mínir” menn miklu betri. Stuðningsmenn G-liðsins voru heldur ekki að gera góða hluti. Ég hefði giskað á að þetta væri einhverjir ofbeldisseggir og vitleysingar þar sem þeir görguðu einhver leiðindi að Víkings-mönnum allan leikinn. Voru bara með leiðindi. Ég komst nálægt því að berja mann og annan en hafði ekki tíma þar sem Tóta var að drífa sig heim…annars hefði ég sko tekið í lurginn á þessum vitleysingum. Æsti mig þó smá við einhverja 18-19 ára gutta í fyrri hálfleik þar sem þeir voru með eintóm leiðindi og eftir það færðu þeir sig! Ég hef sem sagt ennþá áhrif og get auðveldlega verið leiðindabykkja!
Ég er alla vega svekkt með þessi úrslit. Vildi að Fram og Ka hefðu fallið frekar en Víkingar. Þessir framarar eiga að vera löngu fallnir – þetta er bara rugl með þessa heppni þeirra. Reyndar höfðu þeir gott af því að tapa 1-6 í dag – ég hafði bara gaman af því. Smá huggun harmi gegn! Reyndar var svo sem ágætt að Víkingar féllu – þá þarf ég ekki að eyða dýrmætum þúsundköllum í að fara á völlinn næsta sumar!
Ég er að hugsa um að fara bráðlega í rúmið – náði voða lítið að sofa í nótt þar sem SUMIR vöktu mig fyrir allar aldir – allar aldir eru 11.15!
Sæl að sinni!