Archive for February, 2005

110865054876032649

Posted in Almennt on 17.02.2005 by Hafdís Ósk

Þetta hefur verið erfiður dagur. Daginn byrjaði ég nefnilega ekki á cherriosinu mínu góða heldur ógeðisdrykk. Ræddi aðeins við Silju vinkonu mína, hlaupadrottningu og megaskutlu með meiru í gær og hún ákvað að ég ætti að hætta að borða cherrios á morgnana. Eins og góðri wannabe skutlu sæmir samþykkti ég það eftir örlitlar mótbárur og drakk jarðarberjagums í morgun. Það var ágætt, tók stuttan tíma að hella því í sér en roparnir sem fylgdu í kjölfarið voru ekki svo góðir. Ég lifði þetta þó allt af og fékk mér bara cheerios í hádeginu í staðin 0 Hún bannað mér það ekki…hehe! Hollustan er samt tekin traustataki og á matseðlinum í dag eru eggjahvítur, gúrka, epli og svo kjúklingur og grænmeti í kvöldmat – að sjálfsögðu verður George Foreman notaður á bringurnar svo að fitan LEKI bókstaflega út…dugir ekkert minna.
Gott fólk hefur nú þegar minnst á mjónuleika minn en betur má ef duga skal. Ætla að missa 3-4 kíló á næstu 26 dögum og svo 2 til viðbótar á næstu 14 þar á eftir svo að brún mjóna mæti aftur á klakann þann 29.mars n.k – eins gott að ég fái móttökunefnd!
Silja bannaði mér ekki bara að borða dópið mitt, cheerios, heldur líka braut, pasta og kartöflur svo að næstu dagar eiga eftir að vera mér erfiðir. Mér finnst ofantalið nefnilega afskaplega gott. Ég má hins vegar borða margt annað sem mér finnst gott. Opinbert gos og nammibindindi hófst á mánudagskvöldið eftir að ég hámaði í mig eplaköku – hún er hér með líka komin á bannlista ásamt snakki. Popp verður snakkið mitt á næstunni ásamt próteinsalati Silju!
Ég vil þakka Silju kærlega fyrir aðstoðina og ef missionið mitt hefst þá verður hún leyst út með fögrum gjöfum, lakkrís, fiskibollum og skemmtiferðum 0 Heppin hún!
Hún er líka sérlega áhrifaríkur predikari meira segja í gegnum netið. Mæli hiklaust með henni!

Þið megið gjarnan hvetja mig áfram í aðhaldinu og banna mér að fara út af brautinni.
Fyrirfram þakkir,

Hafdís Ósk
-tilvonandi mjóna-
P.S þegar ég segi mjóna meina ég bara ég -10 kíló 0

110865043640350229

110864869640615688

Posted in Almennt on 17.02.2005 by Hafdís Ósk

Ég er búin að leggja mig fram í að verða betri kona! Í því felst:
- að ég er búin að elda oftar heima hjá mér
- baka sjaldnar til að koma í veg fyrir fitu.
- er búin að mæta í ALLA tíma á þessari önn og fylgist betur með
- læri meira heima
- æfi meira og reglulegra en ég gerði
- duglegri að spara peninga – kominn tími til
- ætla að vera duglegri að hitta vini og kunningja því að þeir eru jú það verðmætasta með fjölskyldunni.
- tala öðruvísi þar sem röddin í mér er í ruglinu!
- reyna að vera sæt oftar, hafa mig betur til.
- vera duglegri að taka til svo að það sé fínt í kringum mig.
- tala minna í símann þar sem það er dýrt og eyðir tíma!

Aðrar hugmyndir að betrum bætingu minni eru vel þegnar.

110864872600250127

Posted in Almennt on 16.02.2005 by Hafdís Ósk

Góðan daginn,

Ég tók strætó í annað skipti á þessu ári í gær. Finnst bara hressandi að vera í 40 milljóna króna VOLVO. Ég var bara að borða eplið mitt, lesa í réttarsálfræði og skoða fólkið. Reyndar er ekkert mest stuð að bíða eftir þeim gula en ég er nú þegar komin með tímatöfluna á hreint 0 Var að vinna frá kl.5 í gær – var leyst út með gjöfum vegna glæsilegs árangurs. Fínt að koma heim með súkkulaði, hlaup og bíómiða fyrir 4. Splæsi á Sveinbjörn í bíó á næstunni!

Var annars bara að vinna eins og mófó í gær. Hringdi svona u.þ.b 80 símtöl. Gaman að biðjast afsökunar 80 sinnum á einu kvöldi. Geri aðrir betur!

110864879793673347

Posted in Almennt on 14.02.2005 by Hafdís Ósk

Oj, ég var búin að skrifa heila ritgerð um restina af tenglunum en hún virðist hafa gufað upp – get ekki lýst vonbrigðum mínum.

Annars skil ég ekki þessa brjáluðu umræðu um að Skjár1 megi ekki senda út leiki þar sem enskir þulir sjá um að lýsa. Mér finnst það bara hressandi – góð tilbreyting. Sjálf lækka ég oft niður í þeim íslensku þar sem þeir eru misgóðir, mishliðhollir liðum og oft á tíðum bara leiðinlegir. Ég lækka þó oftar þegar mínir menn eru að tapa þar sem ég er þá nálægt því að henda sjónvarpinu í gólfið og þoli bara ekki meiri gagnrýni.
Skil samt vel eldra fólk sem skilur ensku ekki vel en fótbolti er nú ekki það flókin grein að það þurfi að segja þér nákvæmlega hver er með boltann, hvað gerist og afhverju.

Áfram ensku þulir!

110864876552850320

Posted in Almennt on 14.02.2005 by Hafdís Ósk

-Ég er farin að hreyfa hendurnar eðlilega og finn bara brot af upprunalega sársaukanum. Þetta er jákvætt mjög og því hyggst ég mæta kát í þrektímann aftur á morgun og ná mér í fleiri harðsperrur.

-Ég fór í sumarbústað um helgina og skemmti mér þrælvel. Mikið gaman og mikið grín. Þema helgarinnar var Aftur til fortíðar og því hlustuðum við á snilldardiska sem voru vinsælir þegar við vorum 14-15 ára og sungum með.

-Það er samt ekki gott að sofa í koju og því svaf ég helst til lengi í nótt. Reyndar sýndi ég líka hörku í sumarbústaðnum og vaknaði um 10 leytið, ein, og fór að læra. Ekki gott fyrir þau að ég sé fyrst á fætur þar sem hljóðlátt er ekki eitthvað sem mér er tamt. Það fór reyndar svo að gestgjafarnir gátu vel sofið fyrir mér – sem betur fer! Kannski er ég hljóðlátari en ég hélt!

-Röddin í mér er viðbjóður – var að hlusta á videoupptökur úr bústaðnum og jesús. Er hægt að vera skrækari? Með kanarímissioninu mínu ætla ég að einbeita mér að því að verða djúprödduð! Það er alltof erfitt að hlusta á sjálfan sig tala og hvað þá syngja en það eru einmitt til svona þrjár upptökur af mér í góðum gír. Er hér með hætt að gagnrýna sönghæfileika annarra þar sem mínir eru af MJÖG skornum skammti. Hugsa samt að ég nái að stæla Stebba Hilmars eins og hann var í denn – Skrækur Hilmars.

-Lýsingin á restinni af tenglunum mínum ætti að detta inn í þessari viku! Gullfiskaminnið mitt náði að gleyma þessu þema mínu…

Þá er ekki fleira í fréttum að sinni, verið þið sæl!