Archive for January, 2006

113871844393444519

Posted in Almennt on 31.01.2006 by Hafdís Ósk

Ellismellur!

Ég farin að hallast að því að líkaminn minn sé talsvert eldri en hugurinn! Líkaminn virðist alla vega talsvert lúnari heldur en rest og skilur ekkert hvað hugurinn vill alltaf gera mikið og reynir að hægja á huganum með því að setja bremsur hér og þar. Þessar bremsur eru til dæmis mikil þreyta í baki og mjöðmum, miklar bólgur í ristum og hnjám og eymslu á svona tuttugu stöðum til viðbótar! Því miður get ég ekki kennt ströngum æfingum um þessa elli mína en ég get kennt ellinni um að ég geti ekki æft af alvöru! Morgunskokkið fékk að víkja fyrir blundi þar sem bakið hafði ekki verið sátt við stellingarnar sem ég valdi í nótt og vakti mig því mjög reglulega til að láta mig rétta úr sér!

En ég læt þetta sem vind um eyru þjóta og ætla galvösk að sýna þessum aumingja (líkamanum) í tvo heimana með því að fara á æfingu í dag og láta hann þjást soldið meira. Ég fann reyndar minna til í nótt og í dag en daginn þar áður og vil helst trúa því að það stafi af því að ég var extra dugleg að teygja á aumu stöðunum í gær!

Annars er það helst í fréttum að ég fæ reglulega aðvaranir frá stjórnendum Hi-netsins þar sem ég er með allt að 2% af allri umferð um netið. Sú gamla er nefnilega að sækja sér Prison Break þættina og lenti á OF góðri tengingu sem hefur þessi áhrif! Ég verð bara varkár næstu daga og sæki bara smá og smá í einu á meðan ég er í tímum!

Um helgina væri ég ofsalega til í að kíkja í sumarbústað eða einhver huggulegheit. Vantar soldið að komast í burtu, hvíla mig, borða góðan mat og vera í góðra vina hópi! Reyndar er próf hjá mér á þriðjudaginn og ég þyrfti því líka að læra! Það er samt bara skemmtilegt!

Ég ætla að horfa á handboltaleikinn núna á eftir og vera svo djörf að fórna leiðindatíma fyrir hann og skammast mín lítið fyrir það! Ég á glósur úr þessu fagi svo að ég hef ekki mikla samvisku!

Ég ætla að drífa mig í að taka lýsi og liðamín og vona að liðirnir mínir fari að komast í gírinn fyrir æfinguna!

Leikurinn er að fara að byrja, Áfram Ísland!

113862232241462316

Posted in Almennt on 30.01.2006 by Hafdís Ósk

Ég er þreytt!
Seinustu dagar voru erfiðir. Ég fór að snemma að heiman og kom seint heim! Hafði engan tíma til að hafa það gott (sem er slæmt) og svaf alls ekki nógu mikið!

Helgin var þó afskaplega skemmtilegt þrátt fyrir mikinn eril. Ég varð vitni að einu skemmtilegasta frjálsíþróttamóti sem haldið hefur verið á Íslandi. Ég fór á ágæta uppskeruhátíð, fékk skemmtilegt fólk í heimsókn og mjög góðan mat hjá mömmu minni í gær sem bjargaði gjörsamlega helginni!

Ég svaf reyndar afskaplega illa í nótt sökum elli – ég er orðin svo gömul að bakið á mér er ekki hrifið af því að liggja mjög lengi en allir aðrir líkamshlutar vildu fá að hvíla sig svo að ég var í hálfgerði krísu! Þetta endaði þó með því að bakið þurfti að lúta í lægra haldi og ég svaf lengur en ég átti að gera. Þurfti á því að halda að vinna upp smá svefn og hvíla lúin bein!

Annars þarf ég að fara að taka soldið til áður en ég massa lærdóminn. Hvort tveggja hefur fengið að sitja á hakanum út af bílamálum og vígslumóti en það breytist í vikunni!

Vona að þið hafið haft það gott!

113840654669163555

Posted in Almennt on 27.01.2006 by Hafdís Ósk

Við skötuhjúin erum frá og með deginum í dag stoltir eigendur að Opel Östru, árgerð 2002. Bílinn er að sjálfsögu (ÍR)blár og afskaplega fagur í alla staði!
Þeir sem hafa eitthvað slæmt um bílinn að segja geta bara röflað við sjálfa sig. Við höfum ekki áhuga! Erum búin að fá nokkrar ræður um hvurslags beygla þetta sé en blásum á slíkt þvaður og gleðjumst bara yfir kagganum sem er bæði fagur að utan sem innan, eyðir litlu og er ekki með hávær götuhljóð eins og sá gamli!

Ég ætla reyndar ekki að skora á ykkur í spyrnu bráðlega þar sem kagginn er með AÐEINS minni vél en sá gamli! Þessi bíll kemur þó ekki til með að verða langtímaeign þar sem við hyggjumst fá okkur AÐEINS meiri kagga þegar fjárráð verða betri!

Þó að það séu trilljón bílar til eru fáir á okkar verðbili eins og staðan er í dag! Við teljum okkur hafa gert góð kaup og fengum ásættanlegt verð fyrir gamla sem var að okkar mati að hruni kominn þó svo að hann hafi verið yndislegur í alla staði!

Nýji bílinn er til sýnis fyrir utan Eggertsgötu 34 (það var ekki laust stæði fyrir utan okkar)!

Sjáumst í höllinni á morgun – ég verð til sýnis í sjónvarpinu frá kl.16.40 – 18.50 – Njótið ;)

113814386811800493

Posted in Almennt on 24.01.2006 by Hafdís Ósk

Vikan byrjar soldið skringilega!
Við Sveinbjörn settumst upp í glænýjan lúxus bíl í gær og leið eins og við værum svakalega fancy! Ekkert smá gaman að koma í glænýja bíla sem eru með góðu new-car lyktinni. (Ég er reyndar búin að heyra að maður geti keypt svoleiðis lykt í bílinn en ég myndi ekki vilja kaupa svoleiðis í dolluna okkar – það væri bara fake)
Í dag settumst við síðan í annan glænýjan bíl og fórum út að borða í tilefni dagsins – þ.e heimkomu nýja bílsins. Tengdamamma og tengdapabbi (sem eru þó ekki hjón) voru bæði að kaupa sér nýja bíla í seinustu viku og fengu þá afhenta í gær og í dag! Við fengum að sjálfsögðu að prufukeyra og VÁ þvílíkur lúxus.
Tengdapabbi fékk Hyundai Santa Fe í gær – flottustu týpuna með sóllúgu, loftkælingu (hægt að stjórna hitanum með gráðum), cruise control, leðri í sætum, skyggðum rúðum og öllum græjum. Æðislegur bíll!
Tengdamamma fékk svo Hyundai Tucson afhentan í dag (þessi þar sem maðurinn fer upp á fjall til að sækja sér klaka í bílinn). Hann er líka æðislegur. Ofsalega flott inn í honum og það er rosalega gott að sitja í honum!
Við fórum á Ruby Tuesday í tilefni dagsins og borðuðum á okkur gat. Þetta var í annað skiptið sem ég fór á þann stað. Finnst þó staðurinn í Skipholti betri en þessi upp á Höfða – alla vega þjónustulega séð en maturinn var ofsalega góður!

Mér líður því soldið eins og stjörnu í dag – dubba mig upp til að setjast í bíl beint úr kassanum og fer svo út að borða og fæ eftirrétt og allt – er hægt að hafa það betra?

Komst að því í gær að mér er ekki ætlað að hafa það gott á 25 ára afmælisdaginn (1.mars) því að ég skila ritgerð þann dag, fer svo í próf 2 dögum seinna og svo aftur mánudaginn eftir (6.) Ég er ekkert sérstaklega hrifin af þessu þar sem mig langaði afskaplega mikið að halda upp á að vera orðin tuttugu-og fimm ára! Ætli ég reyni ekki bara að fresta afmælinu eitthvað nú eða halda upp á seinustu dagana sem tuttugu-og fjögra ára!

Annars er lærdómsgírinn minn eitthvað vanfundinn. Er ennþá bara að lulla áfram í letingagírnum. Afraksturinn dagsins var því American Idol síðan í gær og almenn leti! GERI AÐRIR BETUR!

En ég þarf víst að fara að sofa – mín bíður tími kl.9.40 í fyrramálið!

Þangað til næst – verið þið hress, ekkert stress, bless!

113802519211862692

Posted in Almennt on 23.01.2006 by Hafdís Ósk

Ég, Hafdís Ósk Pétursdóttir, keypti mér 2 skópör í dag! Það hefur ALDREI gerst í minni sögu en þetta afrekaði ég í dag. Aðrir voru svona hversdags þægilegir skór sem passa ágætlega við íþróttabuxur (það var aðalatriði) og hinir eru aðeins pæjulegri opnir skór sem ég ætla að nota sem spari. Þeir eru þó frekar þægilegir sem leiðir vonandi til þess að ég fer ekki aftur í inniskó við pils sökum þreytu í fótum!

Ég hef reyndar enga trú á því að ég endist í þeim heila kvöldstund en ég má samt halda að ég endist!

Efast um að ,,bjútí” vinkonur mínar verði sáttar við þetta val mitt en þeim get ég tilkynnt hátíðlega að leit stendur yfir að nýjum pæjuskóm – hún hefur ekki enn borið árangur!

113802253142092109

Posted in Almennt on 23.01.2006 by Hafdís Ósk

Einn kennarinn minn er ofur svalur! Hann er í HVÍTUM gallabuxum – rosa töffari! Ég held þó að hann sé svona 10 árum of seinn í þessu en ég gef honum séns…

Fyndnir kennarar sem kenna manni í fleiri ein einu fagi – þeir átta sig ekki alltaf á því að einhverjir sitji bæði fögin og hafi þar af leiðandi heyrt sömu brandarana áður!

Gott að ég er með einfaldan húmor og get stundum hlegið að því sama aftur og aftur!

113801343861434983

Posted in Almennt on 23.01.2006 by Hafdís Ósk

Ég hef ekki vaknað jafn snemma og ég gerði í morgun í heilan mánuð og gott betur en það. Ég REIF mig á fætur kl.9 þar sem ég átti að mæta í skólann kl.9.40 og fannst ég sko vera alveg svakalega dugleg! Ég er reyndar orðin ótrúlega þreytt í dag og það eru bara milljón tímar eftir af sólarhringnum. Ég hlýt alla vega að geta farið í bólið í kvöld á sómasamlegum tíma. Seinustu daga/nætur hef ég ekki getað sofnað fyrr en í fyrsta lagi kl.2 eftir miðnætti og það var einmitt upp á teningnum í nótt og því svaf ég ,,bara” í 7 tíma í nótt! Ég hef vanið mig á það að sofa í a.m.k 9 tíma í alltof langan tíma svo að þetta er EKKERT fyrir mig! Þetta hlýtur að venjast vel!

Annars var helgin frekar róleg og þægileg. Ég fór í bíó á föstudaginn. Brokeback Mountain. Hún er mjög góð að mínu mati – ofsalega spes en samt svakalega góð og strákarnir tveir leika alveg svakalega vel!

Á laugardaginn var Þorrablót heima hjá foreldrum mínum þar sem við skötuhjúin og Ellen vorum heiðursgestir. Skemmtilegt að fá stundum svona þjóðlegan mat. Ég dó úr hlátri við að horfa á Sveinbjörn greyið reyna að borða hákarl – hann gretti sig meira en góðu hófu gegnir ;)

Við horfum síðan á forkeppnina í Eurovision. Lögin komu mér stórlega á óvart þar sem mér fannst stór meirihluti þeirra vera afskaplega lélegur. Fannst reyndar eitt lagið alveg hreint ágætt!

Í gær horfði ég á Manchester United – Liverpool heima hjá tengdapabba frænda míns. Þar var ég ein með milljón Liverpool aðdáendum og var ekki vinsæl í lok leiks. Ég var líka fljót að forða mér út að leika við frænda minn og hundinn hans (litla frænda minn sem stóð alveg á sama um úrslitin). Góður dagur hjá mínum mönnum og mitt litla hjarta var glatt í gær!

Bið að heilsa í bili,

113777320891221156

Posted in Almennt on 20.01.2006 by Hafdís Ósk

Listi yfir kynþokkafyllstu karlmennina er kominn á vísi.is! Ég var ekki lengi að ákveða hver væri kynþokkafyllstur á þeim lista. Björn Sveinbjörnsson ber höfuð og herðar yfir hina. Finnst hann afskaplega sjarmerandi og heillandi.
Sá hann í Kringlunni um daginn og fannst hann afskaplega kynþokkafullur. Held að það sé líka eitthvað við þetta sveinBJÖRNS nafn sem heillar mig svona ;)

Aðrir sem mér finnst huggulegir eru:
Garðar Thor Cortes – mér finnst hann afskaplega myndarlegur en er ekki viss um kynþokka hans þar sem ég hef bara hitt hann einu sinni! En heillandi er hann.

Íþróttaálfurinn of course:

Annars er margt um myndarlega menn – ég hef alltaf verið soldið skotinn í Hilmi Snæ og svo finnst mér Logi Bergmann og Björn Hlynur vera afskaplega myndó. Held að Björn sé samt með meiri kynþokka en sá fyrrnefndi – e.t.v þar sem hann er nær mér í aldri!

Simmi skapar að sjálfsögðu sérstakan stað í mínu hjarta en það er aðallega sökum endalausra skemmtilegheita!

————

Ég var afskaplega svekkt yfir valinu á kynþokkafyllstu konu landsins. Var því ekki sammála og þessi sem ég man ekki einu sinni hvað heitir kom ekki einu sinni til greina í mínum vangaveltum! Greinilegt að landinn kann ekki gott að meta!

Annars á maður ekki að kvarta yfir því að aðrir hafi ekki sama smekk og maður sjálfur. Maður á frekar að gleðjast yfir minni samkeppni! Annars er ég ekki mikið að fara að reyna við þessar stelpur nú eða hann Björn svo að ég veit ekki hvað ég er að þvaðra!

Held að ég segi bara eins og góðvinur minn – ég held ég fari bara að læra soldið í hausinn á mér!

113776779435894362

Posted in Almennt on 20.01.2006 by Hafdís Ósk

Líkaminn minn er lurkum laminn þessa dagana. Ég tók nefnilega upp á því að hreyfa hann svolítið og hann hefur ekki verið ánægður með það!
Ég reyndi nú samt að gera í því að fara rólega af stað en ég þekki kannski ekki alltaf mín takmörk!

Annars hefur skólinn líka farið rólega af stað. Frekar þægileg vika hjá mér! Smá skóli á þriðjudag og miðvikudag, frí í gær og svo einn tími í dag. Get ekki sagt að ég geti kvartað yfir þessu!

Í kvöld ætla ég að smella mér á Brokeback Mountain með móður minni og Ellen. Er búin að heyra að þessi mynd sé æði og því hlakka ég mikið til. Annars er ég strax farin að undirbúa mig undir að gráta mikið. Ég er nefnilega grenjuskjóða og hef einu sinni fengið svo svakalegan ekka í bíó að allur salurinn hristist og allir horfðu á mig – já, gaman að segja frá því! En það er allt í lagi ég er sæt þegar ég græt! Það er alla vega nokkuð ljóst að ég er ekki dauð að innan þar sem ég get nánast grátið yfir hvaða sorglega atriði sem er!

Ég er svöng!
Ætla því að fara að finna mér eitthvað að borða!

113762255122333014

Posted in Almennt on 18.01.2006 by Hafdís Ósk
Your Birthdate: March 1
You are a natural born leader, even if those leadership talents haven’t been developed yet.
You have the power and self confidence to succeed in life, and your power grows daily.
Besides power, you also have a great deal of creativity that enables you to innovate instead of fail.
You are a visionary, seeing the big picture instead of all of the trivial little details.

Your strength: Your supreme genius

Your weakness: Your inappropriate sensitivity

Your power color: Gold

Your power symbol: Star

Your power month: January

113762118914363845

Posted in Almennt on 18.01.2006 by Hafdís Ósk

Dagurinn byrjaði ekki vel hjá mér í dag – ég vaknaði með mesta hausverk sem um getur í sögunni og beinverki í þokkabót. Ég náði þó að sofa þetta úr mér að mestu leyti en var samt sem áður hálf slöpp og sljó í dag og hafði ekki einbeitingu upp á marga fiska!

Við Sveinbjörn gerðum þó góða ferð í Europris í dag og keyptum okkur Asics hlaupaskó á 4990 en þeir kosta vanalega á bilinu 10000-15000. Við vorum sem sagt mjög lukkuleg með þetta! Ekki slæmt að GRÆÐA svona svakalega!

Kraftaverkin gerast enn – ég byrjaði að læra áður en skólinn byrjaði en það hefur ALDREI gerst áður! Og í kvöld er ég að halda því áfram sem ég byrjaði á! Þetta byrjar reyndar rólega en það byrjar þó!

Annars fór ég á æfingu í gær og er svona u.þ.b að drepast í höndunum síðan þá…en það er bara hressandi og þýðir án efa að þær eru að minnka og við kvörtum ekki yfir því! ;)

Eins og þið sjáið er ekki mikið að gerast í mínu lífi þessa dagana! Vona þó að það rætist eitthvað úr því um helgina!

Hafið það gott öllsömul!

113744506992662721

Posted in Almennt on 16.01.2006 by Hafdís Ósk

Bókakaup eru alltaf sérstaklega skemmtileg! Ég keypti námsbækurnar mínar í dag og horfði með söknuði á eftir alltof mörgum peningum í kassa bóksölunnar! Ég hefði alveg verið til í að eyða þessum peningum í eitthvað ALLT annað heldur en þetta en svona er lífið! Bækurnar eru áreiðanlega afskaplega skemmtilegar og yndislegar svo að ég ætti ekki að vera að kvarta! Kostnaðurinn var líka lægri í ár heldur en oft áður þar sem ég fékk bækur lánaðar og get notað eina aftur! 3 bækur í 2 fögum voru samt 15000 króna virði – veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði þurft að kaupa hinar líka – shæsinn!

Við Sveinbjörn vorum að íhuga að fara í bíó í kvöld þar sem það er svo margt að sjá. Ég er soldið spennt fyrir Brokeback Mountain – hef heyrt afskaplega fagrar sögur af þeirri mynd og langar því mikið að sjá hana! Ég á líka án efa eftir að gráta mikið en það er svo sem ekkert nýtt!
Við hættum hins vegar snarlega við þegar við litum út um gluggann þar sem veðrið er ekki fallegt á þessu land í dag! Ég þoli heldur ekki að vera blaut í tærnar af því einu að labba út í bíl og inn í hús! Mér tekst reyndar alltaf á einhvern óútskýranlegan hátt að blotna upp að hnjáum og skvetta slatta á kápuna mína af því að skafa bílinn – jafnvel þó að það sé einungis smá hula á honum! Þetta er einn af mínum mörgum hæfileikum sem fáir geta leikið eftir!

Annars er ég með ansi spennandi fréttir – þeir sem ekki hafa heyrt þær geta haft samband – þær verða ekki birtar hér í bráð! ;)

113741151340496983

Posted in Almennt on 16.01.2006 by Hafdís Ósk

Helgin var óvenju viðburðarrík hjá mér! Á föstudaginn skelltum við sálfræðistelpurnar okkur út að borða og í framhaldinu kíktum við aðeins á lífið í bænum! Ég smakkaði meðal annars Mohito í fyrsta skipti á ævinni og líkaði hann bara nokkuð vel! Við tókum kokteilakvöld og smökkuðum nokkra vel valda sem við höfum aldrei smakkað! Ákváðum bara að vera grand á því þar sem við gerðum þetta hvort sem er aldrei annars! Ég fer voðalega sjaldan niður í bæ og í þau fáu skipti kaupi ég yfirleitt aldrei neitt af barnum þar sem hann er okraður svo að einu sinni verður allt að vera fyrst!

Ég varð reyndar græn af reykingum eftir mjög stuttan tíma en lét mig hafa það! Við fórum svo heim í kringum 2 þegar allt liðið var mætt á Olíver – er ekki fínt að fara þegar allir hinir koma?

Á laugardaginn kíkti ég á mót niður í Frjálsíþróttahöllinni. Þar var ég umvafin börnum eins og svo oft áður. Ég hitti Arnfríði Gígju sem ég hef ekki séð í alltof langan tíma og hún leyfði mér að skrattast soldið með börnin sín mér til mikillar ánægju! Gunnhildur mætti svo með börnin ,,okkar” í lok móts og þá fékk ég að skrattast ennþá meira :) Fínt að svala barnaþörfinni með annarra manna börnum! Um kvöldið kíktum við út að borða með fyrrgreindri Gunnhildi og Bjössa og börnum! Við smelltum okkur á Ruby Tuesday en þann stað höfðum við ekki prófað áður! Hann er alveg eðal og hamborgararnir fá margar stjörnur þar! Fer áreiðanlega þangað aftur í bráð! Um kvöldið fórum við til bróður Bjössa, Össa og konunnar hans Möllu, þar sem við spiluðum Carcasonne eins og við ættum lífið að leysa. Undirrituð kom á óvart með því að sigra spilið í að ég held 2 skipti á ævinni! Áttaði mig ekki á því að ég var að vinna Bjössa í fyrsta skipti á ævinni og það er að sjálfsögðu sérlega sætt – hann er nefninlega álíka tapsár og ég, samt kannski ekki alveg ;)

Í gærdag undirbjó ég saumaklúbb! Ég gerði líka eitt sem ég hef aldrei gert áður í gær. Það er að sjóða hrísgrjón! Ég hef nokkrum sinnum soðið hrísgrjón í poka en það jafnast ekkert á við þau venjulegu, hvorki í bragði né soði! Þetta tókst óvenju vel hjá mér og ég er bara nokkuð stolt af sjálfri mér! Ég eldaði líka kjúklingarétt sem ég hef aldrei eldað áður og hann heppnaðist líka bara nokkuð vel og bragðaðist bara ágætlega! Eftirrétturinn var líka sehr góður svo að í það heila tókst mér bara vel upp þó ég segi sjálf frá!

Í dag er svo seinasti í fríi! Skólinn byrjar á morgun og ég hef í nægu að snúast í dag! Þarf að kaupa bækur, telja flöskur, þvo þvott og græja ýmislegt svo að það er eins gott að ég nýti daginn vel!

Bið því bara að heilsa í bili!

P.S allar einkunnir komnar og ég náði öllu :)

113715788492514730

Posted in Almennt on 13.01.2006 by Hafdís Ósk

Skrýtið land!

Ætli það sé hægt að sjá snjókomu og sól á sama tíma einhvers staðar annars staðar í heiminum?
Þetta er náttúrulega bara snilld!

Annars er líka voða stuð að búa á Íslandi um þessar mundir þar sem allar árstíðirnar koma fram á einum degi!

Já, það er margt sniðugt á Íslandi!

113715243122521578

Posted in Almennt on 13.01.2006 by Hafdís Ósk

Heil og sæl!

Ég tók mig til í gær og hóf brjálaða nýárs-hreingerningu! Ég hafði ekki tíma til að taka jólahreingerningu og ákvað því að taka íbúðina frekar í gegn á nýju ári til að losna við allt stress!
Eftir þennan fyrsta dag í áfanganum að hreinni íbúð get ég sagt ykkur að það að affrysta ískáp og frystihólf er eitt það leiðinlegasta sem hægt er að gera! Ég er auk þess ekki þolinmóð ung kona og því átti ég soldið bágt með mig þegar ég sat á hækjum mér með hárblásarann að vopni og bræddi nokkra cm þykkan klakann af frystihillunum mínum! Þetta hófst þó allt fyrir rest og þegar ég var búin að vaska upp allar hillur og annað tengt ískápnum glansar hann sem aldrei fyrr! Ég tók mig líka til og þvoði allar gardínur! Það var í sjálfu sér lítið mál en að setja gardínuhjólin (þetta sem heldur gardínunni á brautinni svo hægt sé að draga hana frá og fyrir) aftur á er ekki eins mikið stuð! Sérstaklega ekki á ofur svefnherbergisgardínunum sem eru hver um sig með 40 hjól og þær eru þrjár! Ég er alla vega aum í puttunum í dag!

Þetta var nú skemmtileg lesning!

Svona til að gefa ykkur eitthvað til að brosa að ákvað ég að vaska hillurnar úr ísskápnum upp í sturtunni! Það gekk ágætlega til að byrja með, það skvettist voða lítið af vatni á mig og mér gekk ágætlega að þvo hillurnar! Að sjálfsögðu tókst mér, áður en yfir lauk, að henda uppþvottaleginum í gólfið og skvetta uppþvottalegi yfir klósettið og stóran hluta af gólfinu! Að sama skapi tókst mér að bleyta sjálfa mig þegar ég var að affrysta með því að taka ekki eftir því að stríður straumur rann undir ískápinn og náði að lokum fótunum á mér! Hreint út sagt yndislegt að fá svona frostkalt vatn á fæturnar á sér!

Tiltektin heldur sem sagt áfram í dag! Ég reikna með að eiga eftir að rota mig ca.2 – missa eitthvað ofan á lappirnar á mér (tókst það reyndar líka í gær) og svo finnst mér líklegt að ég fái eins og einn stóran marblett!

Í kvöld er ég svo að fara út að borða með sálfræðiskvísunum! Við ætlum að bregða okkur á Vegamót, ég hef aldrei borðað þar en heyrt gott af staðnum og hlakka því soldið til :)

Bið að heilsa í bili,