Archive for February, 2006

114106039545617221

Posted in Almennt on 27.02.2006 by Hafdís Ósk

Akkúrat núna:
- er ritgerðin ekki fullgerð en það er verið að vinna hörðum höndum að því! Ástæðan er ekki einungis slugs heldur líka óákveðni höfundar sem veit ekki hvaða afstöðu hann á að taka í rökfærsluritgerð – hressandi!
-er ég búin að ákveða að klára ritgerðina fyrir kvöldmat (2 tímar), fara svo út að hlaupa og taka smá þrekæfingar og að því loknu fara að læra undir próf sem er á föstudaginn.
-Er einbeitingin mín í góðu lagi og mér hefur tekist að einbeita mér að ritgerðarsmíð í ansi hreint langan tíma miðað við það sem ég er vön – gott!
-hef ég ekki hugmynd um hvað ég ætla að hafa í kvöldmat þar sem ég steingleymdi að taka fiskinn sem ég ætlaði að elda út úr frystinum – ekki gott að vera með gullfiskaminni á tímum sem þessum!
-ætla ég að hella mér í að klára ritgerðina mína, um afstöðuna sem ég er ekki enn alveg búin að ákveða en þó nokkurn veginn búin að gera upp við mig!

- held ég að planið mitt um að klára fyrir 7 eigi eftir að verða algjört flopp og ég verði ekki búin fyrr en í fyrsta lagi 22 – allt fyrir þann tíma er plús og ég læri þá bara meira á morgun, hinn, hinn, hinn, hinn og hinn!

Njótið góða veðursins,

114089368753780586

Posted in Almennt on 25.02.2006 by Hafdís Ósk

Við skötuhjúin ætlum að gera eitthvað okkur til skemmtunar í kvöld. Í tilefni þess ákváðum við að smella okkur eitthvað út að borða og vorum að þræta um hvert ætti að fara – hvorugt okkar er gott í að taka ákvarðanir og því geta einfaldir hlutir sem þessi endaði í 3 tíma umræðu! Ég veit að þetta er vandamál!

Í sakleysi mínu skellti ég mér inn á hrói.is til að sanna fyrir Sveinbirni að það væri hægt að borða þar fyrir minna en 2500 krónur (veit ekki afhverju það var budget). Ég tapaði því veðmáli – hefði þurft að fá mér 9″ margarítu til að sleppa!

Hvet alla sem vilja skemmta sér að smella á þessa síðu http://www.hroi.is Munið bara að vera með hátalarana í góðri stillingu og hlýða vel á SNILLDAR textann.

Ég hló alla vega af þessu – eitt það lélegasta sem ég hef heyrt í svona auglýsingarlögum!

Góða skemmtun!

114079080982130032

Posted in Almennt on 24.02.2006 by Hafdís Ósk

Hér á eftir koma nokkrar fullyrðingar sem ég fann á undravefnum. Það sem er merkt með x eru hlutir sem ég hef gert, hina hef ég ekki gert ennþá og suma ætla ég alls ekki að gera!

Njótið!

( ) klesst bíl vinar/vinkonu – Neibb
( ) stolið bíl (foreldranna)- Er afskaplega hlýðin ung stúlka
(X) verið ástfangin/n – Jahá, upp fyrir haus
(X) verið sagt upp af kærasta/kærustu – já, held að það kenni manni ýmislegt!
( ) verið rekin/n – nei, sem betur fer, færi pottþétt að grenja
(X) lent í slagsmálum (eða þurft að stía í sundur)- Hef mikið slegist við stráka í gegnum tíðina en hef þó aldrei lent í alvöru slagsmálum!
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum – enn og aftur stillt stúlka!

(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki – að sjálfsögðu! Þó orðið frekar langt síðan!
( ) verið handtekin/n – Neibb, sem betur fer!

( ) farið á blint stefnumót – nei, veit ekki hvort að ég þyrði því
(X) logið að vini/vinkonu – ég hef örugglega fegrað sannleikann ansi oft

(X) skrópað í skólanum – ekki fyrir tvítugt en ég hef versnað með árunum! Maður skrópar reyndar ekki í háskólanum þar sem það er ekki skyldumæting.
( ) horft á einhvern deyja – nei, en ég hef séð lík.
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(X) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(X) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
(X) haldið kaffiboð – já, margoft, býð reyndar ekki næstum alltaf upp á kaffi ;)

(X) flogið flugdreka
(X) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
(X) farið í “tískuleik” (dress up)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik – já, ég hef gert það og vildi að ég skammaðist mín fyrir það!

(X) verið einmana
(X) sofnað í skólanum
( ) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta
(X) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n – ég er MJÖG oft misskilin
() klappað hreindýri/geit/kengúru
(X) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi – fór yfir á rauðu í æfingaakstri með pabba, var á beyjuakgrein og allt í einu smellti ég mér yfir, fannst bara eins og það væri komið grænt, þarf varla að nefna að pabbi fékk flog!
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(X) lent í bílslysi – mjög vægu, enginn meiddist og bílinn skemmdist lítið sem ekkert.
( ) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(X) borðað líter af ís á einu kvöldi
(X) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
(X) verið vitni að glæp – verð vitni að hraðakstri á hverjum degi, sé fólk margoft fara yfir á rauðu og hef orðið vitni að árekstri.
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til – stundum leyfi ég því of mikið að ráða
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum – hef aldrei komist upp á lagið með það
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni ….
(X) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum
(X) fundist þú vera að deyja – já, ég get verið dramatísk stundum
(X) grátið þig í svefn – já, það hefur gerst ansi oft en þó ekki er talsvert langt siðan síðast.
(X) farið í löggu og bófa leik
(X) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí – auðvitað
(X) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(X) hringt símahrekk
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér – það er svo óþægilegt
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni – auðvitað
(X) dansað í rigningunni
( ) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(X) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(X) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta – já, en ég var aldrei flink
(X) hefur einhver óska þinna ræst – já, sem betur fer
( ) farið í fallhlífastökk – á eftir að gera það einhvern tímann!
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(X) pissað úti – svo oft!
(X) Verið yfir þig ástfangin(n) – já, og er það!
( ) Sofið hjá einhverjum bara eitt kvöld

EFast um að einhver hafi nennt að lesa þetta allt en það er bara allt í lagi! Smellið þessu á síðuna ykkar ef þið hafið áhuga á – ef ekki þá er það bara allt í góðu!

Hrós dagsins fær Kristín Birna, litla lúsin mín, fyrir að bæta sig svakalega og setja nýtt íslandsmet í þraut – hún er snillingur þessi elska!

114073874302726519

Posted in Almennt on 23.02.2006 by Hafdís Ósk

Allt er þegar 100 er – eða hvað?

Ég byrjaði að æfa á fullu fyrir nokkru síðan og er búin að vera alveg helv…dugleg þó ég segi sjálf frá! Tek Sigurbjörn Árna vin minn mér til fyrirmyndar og hrósa mér sjálf þegar enginn annar gerir það! (er meira að segja frekar dugleg við það þessa dagana).

Ég er búin að mæta á allar æfingar, geri allt sem mér er sagt að gera þegjandi og hljóðalaust og kvarta ekkert (Kristín Birna er mér til fyrirmyndar í þeim efnum). Ég er búin að vera dugleg að taka lýsi og liðamín undanfarið og það hressir, bætir og kætir. Liðirnir mínir hafa því ekki verið eins stirrðir og aumir og áður og ég hef getað hlaupið meira en ég gat gert allan desembermánuð – hressandi!

Ég hef meira að segja lætt mér út á morgunskokk einstaka sinnum, svona til að ná mestu fegurðinni af mér (fitunni það er að segja). Ég hef þó heldur minnkað það í þessari viku þar sem mér hefur fundist álagið á æfingum vera alveg nóg! Sjáum þó hvað setur þegar ég venst álaginu!

Það er líka allt brjálað að gera í skólanum og ég svona óþægilega róleg yfir því! Þarf að fara að sparka all rækilega í rassgatið á mér! Hlýt að stressast soldið á morgun þar sem ég þarf að hrista eins og eitt stykki ritgerð út úr erminni fyrir lok laugardagsins og nógu erfiðlega gengur mér að lesa heimildirnar! Það verður nefnilega próf eftir viku og annað á mánudeginum eftir það svo að ég þarf að vera búin með ritgerðina ti að geta lært eitthvað undir þau – ansi mikill frumlestur þar á ferð! Ég veit ekki afhverju ég geri þetta – e.t.v einhver sjálfspíningarhvöt eða þörf til að mistakast, hver veit?

Mér tókst á einhvern furðulegan hátt að týna gleraugunum mínum – það er ansi hvimleitt þar sem ég sé ekki nógu vel á sjónvarpið án þeirra og lít út eins og greppitrýni í framan þegar ég þarf að sjá textann (fjölskyldan mín áttar sig e.t.v meira á því hvernig ég lít út ef ég segi þeim að ég sé að verða líkari pabba með hverri gleraugnalausri stundinni sem líður). Ég tók gleraugun af mér í skólanum í morgun þar sem þau voru öll útrignd og ógeðsleg, er næstum viss um að ég hafi sett þau aftur á mig – sérstaklega þar sem á næsta borði við mig hafði einhver gleymt bæði vettlingunum sínum og gleraugum ofan á þeim (nei, það voru ekki mín).

Ég er líka næstum því viss um að hafa tekið gleraugun af mér þegar ég var að græja mig fyrir æfinguna en ég finn þau alls ekki! Er nánast viss um að einhver álfur hafi stolið þeim og komi ekki til með að skila þeim fyrr en ég er hætt að leita! Ég þarf sem sagt að hætta því þar sem það er mikilvægur tími hjá mér kl.11 í fyrramálið og þá er MJÖG nauðsynlegt að ég sjái á töfluna. Annars er ég orðin svo kærulaus að gömlu góðu gleraugun mín, nú eða bara Sveinbjörns verða látin duga ef hitt bregst – þó svo að ég líti út eins og andskotinn í þeim! Mér er nefnilega eiginlega alveg sama – takið eftir EIGINLEGA! Ég er hvort sem er öll útsteypt í einhverju béskotans ofnæmi í andlitinu og á bringunni svo að ég get varla litið mikið verr út!

114052337432973764

Posted in Almennt on 21.02.2006 by Hafdís Ósk

Ég skipti um mynd hérna efst á síðunni. Ég varð orðin dáldið leið á að sjá sjálfa mig í hvert skipti sem ég opna internetvafrann!

Myndin sem prýðir haus síðunnar að þessu sinni var tekin á Ægissíðunni í lok nóvember. Mér fannst litagleðin á himnum svo falleg og Sigurjón yfirljósmyndari var ekki í bænum svo að ég ákvað að gera mitt besta til að festa herlegheitin á filmu. Það gekk svona upp og ofan. Mér finnst tvær af myndunum sem ég tók vera ágætar – þær minna mig alla vega á hvað mér fannst þetta fallegt sólsetur og þar með er tilgangnum náð. Ég áttaði mig á því að ég verð seint ljósmyndari – alltaf gott að vita það!

Ég svissa svo örugglega yfir í hina myndina þegar ég verð orðin þreytt á þessari! Vona að þið verðið fegin að losna aðeins við að sjá greppitrýnið á mér í hvert skipti sem þið kíkið við!

Blessuð!

114051823311055565

Posted in Almennt on 21.02.2006 by Hafdís Ósk

Þú ert það sem þú borðar!

Ef að þessi setning er sönn þá hef ég verið þvílíkt HOT í gær!
Við Sveinbjörn kaupum okkur stundum steikt hrísgrjón á Mekong. Við erum það fastheldin að við kaupum yfirleitt alltaf þennan rétt. Höfum þó prófað nokkra aðra en þessi fellur alltaf best í kramið. Þessi réttur á reyndar að vera sterkur en í þessu 100 skipti sem við höfum keypt hann þá hefur hann alltaf bara verið mjög passlega sterkur – þangað til í gær! Munnurinn á mér LOGAÐi frá fyrsta bitanum sem ég setti upp í mig. Ég borðaði svona 1/4 af því sem ég borða vanalega af þessu en drakk samt sem áður rúmlega lítra af vatni með!

Ég var heil lengi að róa munninn á mér niður sem fann ekki eðlilegt bragð fyrr en LÖNGU seinna! Ég er reyndar soldill kjúklingur þegar kemur að sterku bragði og er iðulega ekkert svakalega gefin fyrir sterkan mat – Jalepeno er til dæmis ekki eitthvað sem ég vil hafa á matnum mínum.

Ég vil þó trúa því að maður sé það sem maður borðar – ég var því HOT í gær og Sveinbjörn er þá væntanlega alltaf súkkulaði – ég get sætt mig við það!

Góðar stundir,

114035336530158348

Posted in Almennt on 19.02.2006 by Hafdís Ósk

Hawdy!

Ég er ekki alveg dauð úr öllum æðum enn – hef bara varla haft tíma til að vera í tölvunni undanfarið! Ég er búin að vera að þvælast niður í Frjálsíþróttahöll meira en góðu hófi gegnir seinustu daga. Þessa helgi fer fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum og þar er að sjálfsögðu mikið fjör! Við skötuhjúin vorum ráðin til að starfa við langstökk og þrístökk karla og kvenna. Svakalegt stuð! Það er ágætt að starfa við svona mót en gallinn við það er að mega ekki hvetja sitt fólk áfram. Ég þurfti að sitja voða pen í gær á meðan félagar mínir voru að hlaupa, stökkva, kasta og bæta sig – það er erfitt fyrir málgefna konu eins og sjálfa mig sem hefur gaman af því að öskra á fólk (og mega það).

Við vorum þó helst til lengi í höllinni í gær, vorum mætt um 11.30 og fórum ekki fyrr en að ganga 17. Það var því ekki mikið um lærdóm hjá mér í gær!
Ég horfði svo á söngvakeppnina með öðru auga í gær – fannst lögin betri þegar ég heyrði þau svona öll saman í hnapp heldur en þegar öll leiðinlegu lögin voru inn á milli! Það voru þó nokkur þarna sem mér fannst voða lítið til koma en svona lög venjast þó yfirleitt vel! Mér var líka eiginlega alveg sama hvað af svona ca. 4 lögum myndi vinna – sá fram á að hvert þeirra yrði okkur til sóma! Silvía vann síðan, kom væntanlega ekki mörgum á óvart, en rústið kom kannski einhverjum á óvart! 70000 atkvæði eru ansi mörg atkvæði! Mér fannst hún samt töff! Mér fannst samt líka Friðrik Ómar ágætur, sömuleiðis Ardís Ólöf – ég sá fram á að ensk útgáfa af hennar lagi yrði ágæt, Regína Ósk var náttúrulega svakaleg og svo mætti lengi telja! Annars fannst mér Páll Óskar og hinn homminn fyndnastir – gladdist mikið yfir söng þeirra beggja!

Sigga Beinteins átti síðan án efa hárgreiðslu kvöldsins – mér finnst hún líka töff að láta plata sig í svona vitleysu! :)

Ísland best í heimi!

114004865157866000

Posted in Almennt on 16.02.2006 by Hafdís Ósk

You scored as Anthropology. You should be an Anthropology major!
Anthropology 83%
Psychology 83%
English 83%
Mathematics 75%
Philosophy 75%
Theater 75%
Journalism 75%
Linguistics 75%
Biology 67%
Sociology 67%
Engineering 58%
Dance 50%
Chemistry 42%
Art 42%

Þetta er kannski bara í takt við óákveðnina í mér – skora hátt á mörgum sviðum og er til að mynda með jafn hátt skor í 3 fögum! Myndi nú samt svissa enskunni út fyrir íslensku þar sem ég hef mun meiri áhuga á að læra íslensku en ensku!

Þið getið tékkað á hvort þið séuð á rangri hillu hér!

113983998742052767

Posted in Almennt on 13.02.2006 by Hafdís Ósk

Lán í óláni

Dagurinn byrjaði frekar ,,hressilega” hjá mér í morgun. Ég var að læra til rúmlega 3 í nótt. Skyndipróf hjá mér í tíma kl.9.40 og þar sem einbeitingin mín er enn ókomin úr heimreisunni gekk mér eitthvað lítið að lesa um helgina, þrátt fyrir MJÖG svo fögur fyrirheit.

Það var því heldur þreytuleg ung stúlka sem REIF sig á lappir rúmlega 9 í morgun. Cherriosið bætti, hrestti og kætti og því tókst mér að drattast í Háskólabíó – reyndar soldið seint og illa en þó! Ég kunni ekki við að fara að troðast 10 mín. eftir að tíminn byrjaði og hlammaði mér því bara í tröppurnar! Þrátt fyrir mikla umfram mýkt á rassinum verð ég að vara fólk við því að sitja lengi í tröppum með tölvuna á fótunum – það er ekki ýkja þægilegt! Ég tók þó prófið í sæti og gekk bara svona lala. Klúðraði reyndar einni spurningu sem ég vissi – ég einfaldlega mundi ekki hvernig dreifilinsa er á ensku og þurfti því að giska á annað af tveimur og að sjálfsögðu valdi ég rangan kost – what else is new?

Ég var svo afskaplega skynsöm í morgun þegar ég græjaði mig og ákvað að taka með mér hollystu í nestið. Er í skólanum frá 9.40 – 16. á mánudögum og ákvað að vera soldið hollystuleg svona í eitt skipti fyrir öll. Tók með mér banana og afgang af salatinu sem var með kvöldmatnum í gær. Smellti reyndar smá furuhnetum á salatið og ákvað svo að setja smá fetaost og olíu út á til að krydda þetta örlítið! Festi síðan lokið vel á og setti plastpoka líka til öryggis!

Rúmlega 12 var ég búin í umræðutíma og ákvað þá að fara ekki í tímann eftir hádegi þar sem sá tími er iðulega mjög gagnslaus þar sem kennarinn þylur bara upp það sem stendur á glærunum og mér finnst ég alveg geta lesið það sjálf! Ég dreif mig því heim og ákvað að borða salatið mitt í hádegismat! AUÐVITAÐ, hafði dallurinn sem salatið var í lekið, í gegnum pokann og út um allt í fínu, fínu skólatöskuna mína! Þó að fetakostur sé bestur í heimi þá finnst mér hann ekkert voða góður í töskunni minni!

Þar sem það er ekkert auðveldast í heimi að ná olíu úr einhverju og hvað þá olíu með osti í ákvað ég að drífa töskuna bara beint í þvottavélina og smellti nokkrum lítrum af blettahreinsi ofan í áður! Hún virðist hafa þolað þá þeysireið af þar sem hún er nánast eins og ný þessi elska – ennþá! En ég þori ekki að koma með neinar yfirlýsingar áður en hún hefur náð að þorna!

Í öllum þessu basli mínu tókst mér að sjálfsögðu að troða olíu í bolinn minn,peysuna mína og sokkana og slatta á gólfið sem er núna voða hált og skemmtilegt!

Ég uppgötvaði svo mér til ánægju að kennarinn sem átti að kenna mér eftir hádegi (sá sami og prófaði mig í morgun) sendi póst korteri eftir að tíminn byrjaði um að hann væri veikur og kennsla myndi því falla niður í dag! Hefði ég verið pirruð að labba upp í Háskólabíó til þess eins að sjá miða um að hann myndi ekki kenna – nú eða það sem verra er, bíða í korter til að fá svo tölvupóst um það! Gott að það var einhver ,,heppni” með mér í dag!

Af þessu er sem sagt hægt að læra að það er ekki gott að setja olíu í dall sem er ekki með traustu loki, það á ekki að uppgötva leka í tösku út á miðju gólfi og rífa allt uppúr henni þar til að bjarga bókunum og það sem mikilvægara er – tölvunni! Það á frekar að halda ró sinni – labba að næsta vask og týna uppúr henni þar! Auk þess er ekki sniðugt að leyfa einbeitingunni sinni að fara í frí til útlanda – henni gæti líkað of vel og neitað að koma tilbaka!

Varist fetaost og einbeitingarskort!

Góðar stundir,

113975308506229677

Posted in Almennt on 12.02.2006 by Hafdís Ósk

Þetta hefur verið afskaplega tíðindalaus helgi. Við höfum ekkert skemmtilegt gert – já, ég er örlítið bitur yfir því! Í gær fékk RÚV að skemmta okkur skötuhjúunum með tveimur EÐAl myndum – þær voru reyndar ágætis afþreying og því get ég ekki kvartað mikið yfir þeim!

Ég er að fara í próf á morgun og er búin að reyna að vera voða dugleg að læra. Það hefur gengið upp og ofan! Það er svo margt skemmtilegt sem er hægt að gera í stað þess að vera grafinn ofan í bókunum!

Ég horfði á upprifjunarþáttinn um Eurovision í gær og sannfærðist enn meira um það að öll lögin eru rusl nema lagið hennar Silvíu minnar! Reyndar finnst mér lagið sem Friðrik Ómar syngur líka vera svona lala en önnur eru eiginlega bara crap!

Rakel vinkona mín sem býr í Danmörku horfði á keppnina þeirra í gær og sagði mér að á heildina litið hefðu þeirra lög verið betri en okkar – get ekki sagt að það hafi komið mér á óvart. Ég horfði á lagið og fannst það bara svona lala – örugglega eitthvað sem venst vel en ekkert spes svona við fyrstu hlustun. Hún er bara 17 ára kvikindi sem kemst ekki með tærnar þar sem Silvía er með hælana!

Reyndar er ég ekkert viss um að Silvía eigi eftir að heilla Evrópu upp úr skónum en ég verð kát með hana sama hvernig fer! Annars er ég strax farin að velta fyrir mér hvernig er hægt að þýða textann yfir á ensku – hann er reyndar að hluta til á ensku nú þegar en…annars fyndist mér allt í lagi að syngja þetta bara á íslensku. Ég fíla lagið bara eins og það er!

Í dag byrjar Íslandsmeistaramótið í fjölþrautum. Ég er að hugsa um að taka mér smá pásu frá náminu og kíkja þangað! Síðan er ég að hugsa um að vera soldið myndarleg í kvöld og elda kjúklingarétt. Er eiginlega strax farin að vera svöng við tilhugsunina!

En þetta eru margar línur af engu – ætla að segja þetta gott í bili!
Lofa að koma með eitthvað krassandi eftir helgi!

113959530813909943

Posted in Almennt on 10.02.2006 by Hafdís Ósk

Dagamunur

Ég gerði mér smá dagamun í dag. Smellti mér út að borða á kaffihús í hádeginu með Evu vinkonu minni. Við höfðum ætlað að gera eitthvað saman í langan tíma og létum verða úr því í dag. Kaffihúsið sem varð fyrir valinu heitir Svartakaffi og er á Laugavegi. Við höfðum áður farið þangað og fannst það ágætt og ákváðum að athuga hvort að það væri ekki ennþá svoleiðis!

Það gladdi mitt litla hjarta óumdeilanlega þegar ég sá alla ,,bannað að reykja” miðana á borðunum. Hitt hefði heldur ekki verið gott þar sem Eva er kasólétt og því hefði ég þurft að berja mann og annan ef kaffihúsið hefði ekki verið reyklaust! Við fengum líka afskaplega góðan mat og vorum almennt bara ánægðar með þjónustuna. Mér fannst reyndar fúlt að fá 10 klaka í lítið vatnsglas, ég var þá alltaf bara þeim mun fljótari að klára vatnið og þurfti að fylla á nýtt á 3 mínútna fresti – jább, stórar stelpur þurfa mikið vatn!

Við röltum síðan aðeins á Laugaveginum sem er nokkuð sem ég hef ekki gert í háa herrans tíð! Sem sagt afskaplega ánægjulegt hádegi og væntanlega það seinasta sem við Eva njótum bara 2 í langan tíma! Ekki það að lítið kríli minnki eitthvað ánægju mína af samvistum við hana – hugsa að það verði frekar öfugt ef það er hægt ;)

Til að reyna að vinna upp smá myndarlegheit þá er ég að búa til pizzu og við skötuhjúin hyggjumst hjúfra okkur í sófunum í kvöld og hafa það afskaplega notalegt á meðan við horfum á Prison Break! Notalegt ekki satt?

113948392889057096

Posted in Almennt on 09.02.2006 by Hafdís Ósk

Það er afskaplega lítið að frétta af mér! Það gerist ekki margt spennandi í mínu lífi þessa dagana. Ég er búin að vera hálf slöpp í rúma viku en er öll að koma til. Grunar að ég hafi fengið einhvern svefnvírus – nógu mikið hef ég alla vega sofið undanfarið! Ég dó næstum því úr þreytu á æfingu um daginn – hef aldrei verið svona þreytt eftir klín, en ég það jafnaði sig þegar ég neitaði að gefast upp og hélt bara áfram!

Ég er búin að vera á fullu að skoða íbúðir í vikunni. Ein besta vinkona mín er að fara að kaupa sér íbúð og þessi elska valdi mig sem fagurfræðilegan ráðgjafa. Mér finnst ég standa mig afbragðs vel að eigin mati! Við erum búnar að skoða 3 íbúðir á tveimur dögum og erum einróma sammála um hvaða íbúð okkur líst best á! Erum samt bara í frumskoðunarferðum. Ákveðum í framhaldinu hvort að okkur líst það vel á einhverja þeirra að við viljum taka spekinga með okkur á svæðið (smið og innanhúsarkitekt). Við erum ekkert svakalega mikið í því að spyrja leiðinlegra spurninga og stoppum ekki lengi við – samt alltaf gaman að vera í svona skoðunarferðum. Mig grunar nefnilega að það verði eitthvað í að ég fari að blæða í íbúð!

Árshátíð Sálfræðinema er um helgina – ég ætla EKKI að fara að þessu sinni. Ég er að fara í próf á mánudaginn og hef hvorki tíma né peninga til að fara. Ætla því bara að hafa það gott enn eina helgina! Annars vorum við líka búin að vera að velta fyrir okkur að smella okkur á Þorrablót með vinum okkar en af fyrrgreindum ástæðum ætlum við heldur ekki þangað! Ég bauð mig hins vegar fram sem barnapíu en fékk því miður ekki starfið – soldið svekkt yfir því!

Og já – ég á bestu foreldra í heimi!

Fleira er það ekki að sinni…

113922603270965295

Posted in Almennt on 06.02.2006 by Hafdís Ósk

Long time no see!

Í fréttum er þetta helst:

-nágrannarnir í neðra hafa slitið samvistum og flutt út úr íbúðinni. Við hjá FSE (Fréttastofu Eggertsgötu) teljum því að mikil gúrkutíð verði í fréttamennsku næstkomandi mánuði! Þessar fregnir bárust okkur til eyrna fyrir nokkrum vikum síðan og þær útskýrðu heilmargt! Við vorum nefnilega svo hissa yfir því hversu hljóðlát þau gætu orðið þegar þau væru að vanda sig – það hlaut að vera eitthvað…Stúlkukindin háværa flutti út fyrir einhverju síðan – blessuð sé minning hennar! Núna stendur íbúðin sem sagt auð en til að minnast þeirra í neðra tóku þau í efra að sér að dúndra rúmgaflinum örlítið í vegginn í gær, samt mun hljóðlegra en þeirra í neðra var von og vísa og glöddumst við skötuhjúin mikið við þetta og rifjuðum í kjölfarið upp góðar minningar af hávaða. Þeirra verður sárt saknað!

-ég er búin að þjást af einhvers konar vírus undanfarið (að ég held, sjúkdómsgreind af sjálfri mér og móður minni sem veit allt). Sjúkdómurinn lýsir sér í miklum höfuðverkjaköstum sem koma helst þegar ég á síst von á þeim, til dæmis þegar ég er að reyna að sofna. Auk þess er ég með mikla liðverki, sér í lagi í hnjám, úlnliðum og öklum. Hnéin eru næstum búin að drepa mig en ég læt þau ekki buga mig þrátt fyrir það og lem þau bara til hlýðni – það er það eina sem dugar. Auk þess hafa bólgueyðandi töflur verið minn helsti félagi undanfarið.

-af þessum sökum hefur lítið orðið úr próflestri sem átti að fara fram um helgina. Einbeitingin mín flaug líka til heitari landa eftir jólin og hefur ekki látið sjá sig aftur. Hennar er sárt saknað (þetta er ekki kaldhæðni eins og hitt saknið).

-Ég tók Silvíu Nótt gjörsamlega í sátt á laugardaginn. Sat stjörf fyrir framan sjónvarpið og brosti, hló og dillaði mér til skiptis. Þessi elska heillaði mig alveg uppúr skónum með skemmtilegheitum og fíflaskap. Hún er töff, töff, töff!
Annars langar mig að bæta aðeins við umræðuna sem hefur skapast í kjölfar lekans. Fyrir mitt leyti finnst mér ekkert sanngjarnara að lögin sem hafa nú þegar komist áfram séu á rúv.is og hver sem er geti hlustað á þau aftur og aftur og þannig vanist laginu betur og kunnað betur að meta það þar sem lögin sem á eftir koma fá ekki næstum eins langan tíma til þess! Ég skil ósköp vel að einhverjir séu fúlir. Sjónvarpið hefði í raun átt að smella hinum lögunum á netið líka sama dag svo að allir hefðu verið jafnir! Skil ekki afhverju ég er ekki í útvarpsráði! Bíð mig fram á næsta ári!

-ég þarf víst að fara að einbeita mér að lærdómi. Lífeðlisfræði bíður mín, eitt af þeim fögum sem er EKKI mín sterkasta hlið!

Fleira er ekki í fréttum að sinni!

113889853475179171

Posted in Almennt on 02.02.2006 by Hafdís Ósk

Hádí!

Það er ekki mikið að frétta úr vestari hluta bæjarins þessa dagana! Ég fór í einn gagnlausasta tíma sem ég hef farið í í morgun! Það var verklegur tími í forritinu SPSS en ég tel mig kunna ansi vel á það forrit eftir nokkra kúrsa. Ég er að taka þetta fag aftur til að laga meðaleinkunina mína soldið. Ég er í 2 ,,gömlum” fögum núna sem ég þarf að taka aftur – rosa stuð! Það er reyndar ansi skondið að heyra kennarann segja sömu brandarana aftur 2 árum seinna. Annars kúrsinn hefur reyndar breyst talsvert. Kennarinn í hvítu buxunum kennir hann og hans sérgrein er að lesa beint upp af glærunum sínum. Í byrjun næsta tíma eyðir hann rúmlega klukkutíma í að rifja upp það sem hann sagði í tímanum á undan svo að það er nóg að mæta bara í fyrsta klukkutíma hvers tíma án þess að missa af NEINU! Hressandi!
Svo að ég komi mér aftur að efninu snérist þessi verklegi tími um grunnkunnáttu á þessu forriti og þegar ég var búin að gera verkefnið tvisvar áður en strákurinn við hliðina á mér var búin að opna forritið (sem hann gat með því að spyrja mig) ákvað ég (með leyfi kennarans) að fara bara heim! Notalegt að græða hálftíma á því að vera klár!

Annars kláraði ég það sem ég ætlaði að gera fyrr í vikunni í dag. Þvoði þvott, pússaði allt inn á klósetti og ryksugaði ásamt því að skrúbba bæði eldhúsborðið og stofuborðið! Nokk ánægð með sjálfa mig! Annars er ég voða drusluleg um þessar mundir, farin að halda að ég þjáist af fimmtudagsveiki en ætla að harka af mér og smella mér á æfingu. Grunar að hún hressi,bæti og kæti!

Það er svo próf á dagskrá hjá mér á þriðjudaginn og ég á eftir að læra heilan helv…helling svo að helgin verður hressandi! Ætla mér þó að gera eitthvað skemmtilegt inn á milli!

Hafið það gott mín kæru!

113881375154870449

Posted in Almennt on 01.02.2006 by Hafdís Ósk

Djöf…Snilld er lagið með Silvíu Nótt! Þó að hún sé ekki í uppáhaldi fyndist mér tær snilld að senda hana og hrista soldið upp í þessari keppni!

Vona að lagið verði ekki dæmt úr keppni!

Annars er ég á því svona fyrirfram að lagið sem Birgitta syngur verði öflugt. Hún hefur örugglega getað valið svo að það ætti að vera gott!

Og á meðan ég man – Áfram Ísland!

Verð reyndar ekkert svekkt þó þeir tapi þar sem mér finnst þeir hafa staðið sig SVO vel!