Archive for April, 2006

114617731189001958

Posted in Almennt on 27.04.2006 by Hafdís Ósk

Keppnis!

Ég er óttaleg keppnismanneskja. Núna hef ég tekið upp tímakerfi til að bæta frammistöðu mína varðandi lærdóm. Tek tíma á hverjum kafla sem ég fer yfir. Þá tími ég ekki að eyða tíma í netið og annars konar slugs og les bara eins og vindurinn. Ákvað líka að bregða mér upp í aðstöðuna hans Sveinbjörns svo að ég hætti að vaska upp, þvo þvott og taka til. Það hefur gengið vel hingað til, ég hef voða lítið annað gert en að læra og núna er kl.22.30 og ég ekki ennþá orðin neitt sérstaklega þreytt. Klöppum fyrir mér! Þessi færsla er skrifuð í pásu á milli fyrirlestra ;)

Ég ætla að halda áfram, tíminn líður nefnilega hratt á gervihnattaöld!

Síjú!

114614702802323504

Posted in Almennt on 27.04.2006 by Hafdís Ósk

Ég á mjög söngelskan nágranna. Síðan í morgun er ég búin að heyra sama lagstúfinn svona 20 sinnum og þar er sérstaklega lögð áhersla á eina setningu. Þetta er lag sem ég kannast við en þó ekki það vel að ég geti haft það eftir. Ég er soldið búin að velta fyrir mér hvort að Árni Georgsson eigi náfrænda nú eða bara tvíburabróður sem líkist honum í söngelsku þar sem þessi títtnefndi hljómar alls ekki ólíkt Árna nokkrum. Frjálsíþróttafólk ætti að átta sig á því hvað ég er að tala um og mér þykir líka líklegt að verkfræðinemar þekki líka tilþrifin!

Ég get ekki sagt að þetta trufli mig mikið, ég hef eiginlega meira gaman af þessu en hitt en ég sé til hvað ég segi í kvöld ef þetta heldur áfram!

114613875640955083

Posted in Almennt on 27.04.2006 by Hafdís Ósk

Eins og áður þegar ég þarf hvað mest á einbeitingunni minni að halda er hún hvergi nærri! Það er aldrei hægt að treysta á þessa druslu!
Ég get þó ekki bara kennt slugsaskap mínum um slæmt lestrargengi þar sem það var ansi óvænt dauðsfall í fjölskyldunni í vikunni. Einn af uppáhalds frændum mínum, ömmubróðir minn, lést af slysförum á þriðjudaginn. Þar sem ég get verið óttalegur kjúklingur þegar kemur að svona atburðum er ég auðvitað búin að klára allar vökvabirgðir líkamans. Ég er líka soldið búin að svekkja mig á því að komast ekki í jarðarförina þar sem hún verður líklega um leið og ég er í þriðja prófinu mínu.

Ég hugga mig þó við að ég á fullt af frábærum minningum af þessum einstaka manni og þær hef ég verið dugleg að rifja upp síðustu daga til að orna mér við! Heyskapur, smalamennska, umræður um trú og svertingja, tannleysi og það að sjá hann borða tannlausan, dráttarvélaakstur og annað áhugavert er eitthvað sem ég kem til með að muna að eilífu! Hann var einn af þeim mönnum sem gefa lífinu svo sannarlega lit og gildi!

114599411471949112

Posted in Almennt on 25.04.2006 by Hafdís Ósk
How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 113

You will die when your underwear gets to tight and cuts off your blood circulation

Find out how you will die at Quizopolis.com

Quizopolis

Yndislegt alveg hreint – get varla kvartað yfir þessu. Fyrir utan að deyja úr því að eiga of þröng föt – ég verð greinilega ekki búin að læra neitt meira um tísku þegar ég verð 113 ára sem verður einmitt árið 2094 – fúlt að ná ekki 6 árum í viðbót til að komast upp í árið 2100 en that´s life!

114591336411873106

Posted in Almennt on 24.04.2006 by Hafdís Ósk

Árlega í kringum vorpróf fyllist ég smávægis fortíðarþrá. Það er, ég hugsa ansi oft til tímans þegar ég var ung og áhyggjulaus og próf voru eitthvað sem ekki þurfti að læra fyrir heldur prófuðu bara þekkingu manns á þeim tíma og í þá tíð var ég réttu megin við meðaltalið og þurfti því afskaplega lítið að hafa fyrir hlutunum. Þar af leiðandi einkenndist vorið af leikjum, hjólreiðatúrum, söngvum og almennum skemmtilegheitum. Ég var ansi dugleg að fara í leiki með krökkunum í hverfinu. Ég ólst upp á Vopnafirði og þar sem það er lítið sjávarpláss er heldur frjálslegt að tala um hverfi en í nágrenni við mig bjuggu ansi margir krakkar á mínum aldri og því þurfti ekki að leita langt til að fá nógu marga í lið með sér!

Við vorum heldur alls ekki einhæf í leikjum á þessum aldri þar sem mér tókst að rifja ansi marga upp á stuttum tíma fyrr í kvöld. Við vorum ofsalega dugleg að spila YFIR, kannski af því að tvennt af því sem ég var góð í var að hlaupa hratt og grípa (þökk sé pabba) og mér hefur aldrei leiðst að gera neitt sem mér ferst vel úr hendi. Annar leikur sem við vorum ansi oft í var skotbolti en einn frændi minn var svo skelfilega góður í þeim leik að það var nánast vonlaust að vinna hann – það var þó bara meiri áskorun fyrir okkur og því fylgdi mikil gleði þegar hann datt úr leik. Ég var líka ansi dugleg að vera í löggu- og bófaleik með 3 frændum mínum og hann fólst í því að fela sig og þegar bófarnir nálguðust þurftu löggurnar að vera í a.m.k 10 skrefa nálægð til að mega taka þá fasta – afbragðsleikur! Fallin spýta og ein króna voru líka leikir sem voru títt á dagskrá og sömuleiðis vink,vink í pottinn en ég var ansi góð í þessum leikjum líka og hafði ansi gaman að því að vera sú sem bjargaði öllum í lokin – já, ég er soldið veik fyrir þessari hetjuímynd!

Síðan var ég að rifja nokkra leiki upp áðan sem ég man bara ekki fyrir mitt litla líf hvað hétu eða nákvæmlega hvernig þeir voru. Held að einn þeirra hafi heitið stytta eða eitthvað álíka. Ég man að sá sem ,,var-ann” þurfti að spyrja hina, einn af einum, hvernig þeir vildu ,,deyja” (verða að styttum) og það var einhver rulla sem maður þurfti að fara með sem ég man engan veginn í þessum skrifuðu, en ég man þó að maður gat valið að láta fella sig, skjóta sig, hrinda sér og eitthvað álíka spennandi. Síðan urðu allir að styttum og svo man ég ekki alveg hvað gerðist en ég man að þetta endaði einhvern veginn á þann veg að tveir þurftu að spyrja 1 hvort honum fyndist betra af 2 möguleikum og það sem hann valdi úrskurðaði í hvaða liði hann væri! Síðan var held ég reipitog til að úrskurða alveg um sigurvegara. Þetta er það sem er mér í minni en eins og þið sjáið eru ansi margar gloppur!

Síðar meir fannst okkur gaman að leika okkur í nafnaleiknum þar sem bolti var látinn ganga á milli og fyrsti stafurinn gefinn og svo næsti á eftir ef enginn áttaði sig og svo koll af kolli. Þegar rétt nafn kom upp átti að gríta boltanum í jörðina og hlaupa eins langt og hægt var þangað til að sá sem gat rétt náði boltanum og gargaði eitthvað annað. Þá mátti giskarinn taka 3 hopp og svo 10 hænuskref – minnir mig og átti svo að reyna að hitta ofan í körfu sem var mynduð úr handleggjunum. Mikið gaman – mikið grín! Dimmalimm náði aldrei verulegum vinsældum hjá okkur en við fórum þó stundum í þann snilldarleik. Skotboltar voru að sjálfsögðu til með nokkrum útfærslum og við vorum ansi dugleg að breyta til í þeim efnum! Annars fannst mér sjálfri voða gaman í boðhlaupum og spretthlaupum af öllum gerðum þar sem ég átti það til að vera fyrst. Ég hef sem sagt alltaf verið ansi hrifin af því að vinna!

Í dag væri ég svo miklu meira til í að vera að leika mér áhyggjulaus, umvafin góðum vinum. Þess í stað er ég með samviskubit yfir leti í lestri og með áhyggjur af komandi tíð en það er víst óhjákvæmilegur fylgifiskur fullorðinsáranna og mótlætið á víst að herða mann en ekki öfugt.

Í dag hefur fjörfiskur angrað mig í öðru auganu og ég get ekki með nokkru móti losnað við hann. Þó að ég sé sjálf fiskur hef ég afskaplega lítið gaman af þessu frænda mínum!

Hvaða leikir voru í uppáhaldi hjá ykkur þegar þið voruð yngri og getið þið gefið mér einhverjar upplýsingar um þessa sem ég ræddi um hér að ofan?

114579398854579922

Posted in Almennt on 23.04.2006 by Hafdís Ósk

Vangaveltur!

Í nokkur ár hef ég velt því fyrir mér afhverju fólk er reiðubúnara að gleðjast með manni þegar lífið er gott en vill síður vera til staðar fyrir mann þegar það er ekki eins gott. Ég veit að margir eiga í erfiðleikum með að tjá samúð sína, vita ekki hvað þeir eiga að segja og halda að það séu til einhver töfraorð sem bæti allt en þeir kunni þau bara ekki! Ég vil halda að ég sé jafn tilbúin að gleðjast og gráta með fólki (ég er alla vega með töluverða reynslu af bæði hlátri og grátri). Ég hef misst nána ættingja í gegnum árin og upplifað hversu asnalegir vinir manns verða í kringum mann í kjölfarið! Mér finnst alveg eðlilegt að yngri krakkar viti ekkert hvað þau eigi að gera þar sem reynsla þeirra af lífinu er bara ekki nægilega mikil en mér finnst mjög skrýtið þegar fullorðið fólk ræður ekki við það. Auðvitað er fólk mismiklar tilfinningaverur og eiga því miserfitt með að halda haus þegar það talar við fólk um málefni hjartans en mér finnst það samt ekki vera nein afsökun. Stelpa sem ég kannast við missti pabba sinn fyrir ekki svo löngu síðan og ég hágrét bara af því að hugsa til hennar og svo táraðist ég mikið þegar ég fór og vottaði henni samúð mína – ég er bara þannig! Ég gæti labbað inn í hvaða jarðarför sem er og grátið þó að ég þekkti fólkið ekki neitt. Ég er voða dugleg í því að skynja sársauka annarra og get léttilega grátið fögrum tárum út af engu – þess vegna á ég til dæmis voða auðvelt með að gráta yfir Tarsan teiknimyndinni, Nágrönnum og hvaða sápuóperu sem er!

Ég veit ekki afhverju ég fór allt í einu að spá í þetta, en þetta er alla vega komið hjá mér í dag!

114563286933153232

Posted in Almennt on 21.04.2006 by Hafdís Ósk

Nýjar fréttir!

Það hefur ýmislegt gerst síðan ég skrifaði seinast, sumt þó merkilegra en annað!

Systir mín greindist með sjúkdóm sem kallast Góðkynja bindivefssjúkdómur (Ehlers-Danlos Syndrome (EDS))og í dag var ég greind með þennan sama sjúkdóm! Við erum sem sagt ofurhreyfanlegar! Liðir og liðamót geta læst (reyndar bara olnbogar á mér) og hreyfst of mikið. Líkaminn er alltaf að reyna að stabilísera sig af því að við hreyfumst of mikið og það álag veldur bólgum og sársauka. Ég hef til dæmis verið að drepast í úlnliðunum síðan fyrir jól og þarf alltaf að passa að beita þeim ekki vitlaust. Þessi sjúkdómur veldur því að ég má ekki lyfta of þungt, ekki hlaupa of langt og svo mætti lengi telja!

Ef ykkur langar að vita eitthvað meira fann ég upplýsingar um hann hér

Annars ætla ég bara að líta á þetta með jákvæðu hugarfari. Núna veit ég alla vega hvað er að mér og nokkurn veginn hvernig ég get dregið úr því. Ég þarf að hreyfa mig, samt ekki of mikið og þarf að halda mér í léttari kantinum. Fínt að heyra lækni segja það, þá tek ég kannski á því í eitt skipti fyrir öll! Samt soldið svekkt yfir lyftingum og hlaupum en ég tek þá bara fleiri endurtekningar og hjóla eða hleyp í sundi í staðinn. Það er ekki eins og ég hafi verið greind fötluð eða með krabbamein eða eitthvað álíka!

Lengi lærir sem lifir og ég skal reyna að halda þessu í lágmarki!

Ég var síðan í prófi í dag og tókst að klúðra einni spurningu vegna tímaskorts, soldið svekkt þar sem ég var staðráðin í því að fá 10! Hugsa að ég svekki mig á þessu í dag, morgun og hinn og svo ætla ég að gleyma þessu!

En ég ætla að fara að læra fyrir fyrsta prófið mitt og gera styrktaræfingar fyrir bólgna líkamann minn!

Blessuð,

114554014624001549

Posted in Almennt on 20.04.2006 by Hafdís Ósk

Heil og sæl,

Ég vona að það gleðji einhver ykkar að ég er ennþá á lífi! Það hefur verið ansi mikið að gera hjá mér seinustu daga og allir mínir skriftarhæfileikar beindust að ritgerðarsmíð og þar sem þeir eru af afar skornum skammti mátti ég ekki við því að eyða þeim á þessa síðu! Ég var sem sagt að skila seinni ritgerðinni minni í einu námskeiði og þar sem sú fyrri var ekki mikið til að hrópa húrra fyrir þurfti ég að gera betur núna – vonum bara að það hafi virkað!

Undanfarið hef ég sem sagt gert voða lítið annað en að kynna mér heimildir, skrifa, stroka út, breyta og bæta svo að líf mitt er ekki fjörugt þessa dagana!

Ég átti reyndar 25 ára skírnarafmæli 18.apríl og sama dag áttu foreldrar mínir silfurbrúðkaup! Frekar lukkuleg með það! Miðað við þeirra tölu erum við Sveinbjörn náttúrulega bara kjúklingar að hafa bara verið saman í 5 ár og við náum víst ekki að vera búin að vera gift jafn lengi og þau þar sem þau giftu sig þegar þau voru 24 ára – á sama tíma og þau eignuðust mig! Ég er sem sagt vel á eftir áætlun!

Annars er próf hjá mér á morgun, best að fara að kynna sér það eitthvað svo að ég eigi nú örugglega eftir að brillera á því! Síðan er seinasti skóladagurinn í næstu viku og þá er skelfilega stutt í próf. Ég byrja í prófum 29.apríl og klára 9.maí! Strax eftir próf fer ég í það að flytja sem verður stuð þar sem Sveinbjörn er upptekinn til 20.maí – en ég er kraftakerling og get þetta alveg sjálf!

Sjálfboðaliðum verður þó tekið með opnum örmum!

114520475212928433

Posted in Almennt on 16.04.2006 by Hafdís Ósk

Gleðilegan Páska(eggja)dag!

Ég er búin að hafa það afskaplega gott í dag! Búin að vera að reyna að læra soldið ásamt því að horfa á einhvern voða spennandi þátt og hvíla mig! Við Sveinbjörn afrekuðum að sofa til 12 frá kl.1 um nóttina.

Mig langaði ekki í páskaeggið mitt (nr.3) fyrr en rétt í þessu þegar ég var búin að fá mér skinkuhorn í kaffi og svekkelsinu get ég vart líst! Það er nánast ekkert nammi inn í egginu, það er allt í endalausum pokum og í þokkabót ógeðslega vont nammi. Bara einhver vond hlaup og svo önnur vond hlaup með sykri utan á, 2 litlar kúlur og 2 vindlar! Er Nói Siríus ekki að grínast með þetta? Ég er alla vega ekki lítið svekkt, brá á ráð sem ég fékk frá Sigurjóni vini mínum og keypti bara lakkrís út í búð og er að borða páskaeggið eins og eitt sett – það er aðeins að bjarga þessu svekkelsi mínu!

Ég hef reyndar aldrei fengið svona lítið páskaegg en ég bað mömmu um að gefa okkur ekki stórt egg þar sem við hefðum ekki gott af því og auk þess grunaði mig að tengdamamma myndi eitthvað tapa sér í þessum efnum. Við höfum reyndar ekki enn náð í þá dýrð en eitthvað segir mér að það verði stærra en nr.3!

Eins gott að ég á vön á spilafélögum í kvöld, þá get ég látið þá háma þetta í sig! Ég vil eiga möguleika á því að kaupa páskaegg sem er með almennilegu nammi inn í, væri alveg til í lítið egg sem væri stútfullt af nammi þar sem mér finnst eggið sjálft bara lala – það er auðvitað miklu betra samt með lakkrísnum en ég er samt sem áður MJÖG svekkt yfir þessu öllu saman!

Hugga mig reyndar við að ég er að fara að borða dýrindis, dýrindis mat hjá mömmu minni. Held að það sé RIB eye kjöt í matinn sem er að mínu mati eitt það besta sem ég hef smakkað. Svo vænti ég þess að það verði góðar kartöflur og salat eins og móður minni er einni lagið og því er tilhlökkunin mikil!

En ég þarf að reyna að klára að lesa heimildirnar mínar betur áður en ég fer að græja mig svo að ég kveð að sinni!

Njótið þið seinustu frídagana til hins ítrasta!

114494895823443037

Posted in Almennt on 13.04.2006 by Hafdís Ósk

Páskaspekin í ár – settu saman þína setningu. Fyrst velurðu mánuðinn sem þú fæddist í, þar næst daginn og að lokum þriðja stafinn í FÖÐURnafninu þínu!

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember-Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Grjót
16. Hund
17. Klámstjörnu
18. Þvagprufu
19. Pung
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Birgittu Haukdal
29. Bjór
30. Tappatogara
31. Stólpípu

Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu -

A- Af því að ég elska súkkulaði
B- Af því að mér leiddist
C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Af því mér finnst egg góð
H- Af því að ég er á sýru
I- Af því ég misteig mig
J- Af því ég er með vörtu
K- Af því mér líkar Cheer
L- Af því að ég var skökk/skakkur
M- Af því ég var full/ur
N- Af því að mamma sagði mér að gera það
O- Af því ég er hýr
P- Af því ér er einmanna
Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Af því að ég er gröð/graður
S- Af því mig langar að deyja
T- Af því ég hata skóla
U- Af því ég þarf að fróa mér
V- Af því að ég elska náttfata party
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Af því að ég elska prump
Þ- Af því að það róar mig
Ö- Af því ég er að safna rassahárum

Hjá mér er þetta sem sagt mars-1-T!
Ég svaf sem sagt hjá hóru af því að ég hata skóla! Ansi hreint hressandi!
Sveinbjörn naut ásta með Birgittu Haukdal af því að mamma hans sagði honum að gera það! Ég fer að passa mig á tengdó og Birgittu Haukdal og hleypi Sveinbirni ekki út úr húsi!

Hvað fáið þið?

114476185792950222

Posted in Almennt on 11.04.2006 by Hafdís Ósk

Á mínum yngri árum var ég ein af mestu pjattrófum veraldar þegar kom að ákveðnum hlutum. Ég mátti til að mynda varla sjá niðurfall án þess að kúgast verulega og nánast æla. Þið getið þá ímyndað ykkur hvað gerðist þegar ég sá ofan í niðurfall nú eða fann lyktina af einhverjum viðbjóði. Ég var meira að segja það slæm að ég gat ekki tekið hár úr hárbursta og sturtað þeim niður klósettið þar sem ég kúgaðist við það eitt að horfa á hárin í klósettinu. Jú, og auðvitað henti ég Cheeriosinu ef ég fann hár ofan í því og fékk mér nýtt…jább, ég var engin venjuleg stúlkukind!

Ég held að ég sé vaxin upp úr þessum dyntum mínum þar sem ég lá nánast með hausinn ofan í niðurfallinu okkar um helgina og veiddi upp úr því alls kyns ógeð og henti og skolaði það allt saman og þvoði. Það er fátt auðveldara en að hreinsa hárbursta og Cheerios telst til þvílíkra munaðarvara að mér dytti aldrei í hug að henda svo miklu sem einum hring!

Í gær tókst mér nánast að frysta af mér höndina! Þannig er mál með vexti að ég keypti mér svona fancy pancy kveikjara fyrir nokkru síðan, svona gaskveikjara sem lítur næstum út eins og byssa. Það felst nefnilega mikill tímasparnaður í svona tæki fyrir mig því þá þarf ég ekki að taka öll 30 kertin upp úr stjökunum á meðan ég kveiki og setja þau aftur ofan í. Ég brenni mig líka síður á puttunum við það að kveikja á kertunum í 6 og 7 kerta stjökunum því að ég nenni ómögulega að stoppa á milli og láta kveikjarann kólna – það er bara tímaeyðsla! Fyrir vikið sit ég oft uppi með ansi sáran þumalputta og svo ég tali nú ekki um rauðan!

Gasið í þessum fína kveikjara mínum kláraðist fyrir skemmstu og núna um helgina mundi ég eftir því að fara að kaupa áfyllingargas. Ég spurði auðvitað hvernig ætti að gera þetta á Shell stöðinni og einhver góður strákur sýndi mér hvað þetta væri lítið mál og benti mér á gatið sem gasstúturinn átti að fara inn í. Ég hrósaði happi og henti þessu auðvitað í karlmanninn á heimilinu þegar ég kom heim! Hann bisaði heillengi við þetta en gafst svo upp þegar ég var eitthvað að gagnrýna hann og lét mig um þetta! Auðvitað gat ég ekki gefist upp líka og varð því að sýna honum hvernig ALVÖRU handlagin heimilsfrú fer að þessu! Það endaði þó ekki betur en svo að ég varð öll út í ÍSKÖLDU gasi og frysti nánast af mér hendurnar og hefði léttilega getað kveikt í sjálfri mér í þokkabót en gasið fór í kveikjarann og hann er nothæfur aftur sem var jú einu sinni tilgangurinn og því vann ég baráttu kynjanna :) JEI!

Ég var reyndar ansi aum í höndinni í allan gærdag en það var samt SVO þess virði!

Ég bið þó engan að apa þennan asnaskap eftir mér. Verið í hönskum þegar þið ætlið að fylla á kveikjara og gerið það helst sem fjærst öllu eldfimu og verið helst utandyra þar sem það vill oft eitthvað sleppa út í gasformi! Þrífið svo kveikjarann áður en þið prófið að kveikja á honum og verið helst ekki eins þrjósk og ég!

Brunarvarnareftirlitið styrkti þessa frásögn!

114475650771009623

Posted in Almennt on 11.04.2006 by Hafdís Ósk

Nokkrar hugleiðingar:

- Hvort vaskarðu upp undir bununni eða lætur renna í annað vaskinn og vaskar upp ofan í vatninu og skolar svo af?

- Hvernig líst ykkur á hugmyndir Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að færa okkur yfir á sumartíma svo að við getum notið góða veðursins, þegar þess nýtur við og að færa 2 frídaga að helgi svo að fólk fái almennilegt frí?

- Haldið þið að sjálfstraustið ykkar hafi áhrif á ykkar daglega líf og það sem þið takið ykkur fyrir hendur? Gerið þið hluti frekar ef þið hafið trú á ykkur og getu ykkar?

Til að útskýra aðeins mitt mál þá var mamma að skamma mig fyrir að vaska upp undir bununni heima hjá henni og reif af mér uppþvottaburstann og sagði mér að ég myndi nota svo mikið vatn með því að vaska upp undir bununni. Heima hjá okkur er nefnilega bara 1 vaskur og svo bara svona hilla og því get ég ekki vaskað leirtauið upp ofan í honum þar sem ég þyrfti þá að setja leirtauið í grindina með sápu og og taka það aftur úr til að skola það og setja það aftur í – of mikill tvíverknaður að mínu mati og óþarfa vesen!
Ég er hrifin af hugmyndunum hans Guðlaugs, þetta er eitthvað sem við fjölskyldan erum búin að tala um í mörg ár. Um að gera að færa frídagana nær helgi og jafnvel að færa einn yfir í annan mánuð en apríl þar sem þar eru milljón frídagar hvort eð er! Hvernig væri að smella einum í júlí t.d? Ég er ekki alveg búin að ákveða mig með sumartímann en við fyrstu sýn sýnist mér þetta vera soldið sniðugt. Auðvitað er voða leiðinlegt að þurfa að færa allar klukkur fram en ég hugsa að maður sætti sig við það til þess að fá smá sólarljós eftir vinnu á daginn.
Þriðja vangaveltan er soldið í tengslum við ritgerð sem ég er að fara að skrifa – þetta er mjög common sense efni svo að mér datt í hug að sjá hvað þið hefðuð um þetta að segja – endilega látið ljós ykkar skína :)

Annars er ég bara góð!

114466686210726283

Posted in Almennt on 10.04.2006 by Hafdís Ósk

Önnur gerð af stjörnuspá:

Hrútur (20. mars ? 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður í að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg út í loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl ? 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðandi. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí ? 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní ? 23, júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí ? 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst ? 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september ? 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvarðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október ? 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast út af engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember ? 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21.desember ? 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar ? 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar ? 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Ég er fiskur og verð að viðurkenna að hluti af þessu passar einkar vel við mig…veit ekki alveg hvernig ég á að taka því!

114459020248956291

Posted in Almennt on 09.04.2006 by Hafdís Ósk

Samkvæmt skilgreiningu spaugstofunnar á einkennum fuglaflensunnar þarf rúmlega helmingur allra kvenna á Íslandi að fara að passa sig – þar sem eitt af einkennum hennar eru spóaleggir og þá hafa áreiðanlega meira en 50% kvenna og ansi stór hluti karla líka! Mér fannst brandarinn þeirra nokkuð góður og ég var glöð að hafa móður mína mér við hlið þegar þeir fullyrtu að gæsahúð og spóaleggir þýddu að viðkomandi væri með fuglaflensuna – mamma er nefnilega nánast með jafn lélegan húmor og ég sem er mjög gott fyrir mig! Systir mín kemur líka sterk inn í þessum efnum og þá er a.m.k einhver þarna úti sem finnst ég vera fyndin – jákvætt mjög!

Við Sveinbjörn horfðum á Idol á föstudaginn, það er nokkuð sem við höfum ekki gert mikið af undanfarnar vikur. Ég var því ekki búin að lifa mig neitt svakalega mikið inn í þetta en ég hélt þó meira með Ínu en Snorra. Það var einhver tónn í röddinni á honum sem fór eitthvað í mig, eitthvað sem að ég kunni ekki að meta en hann stóð sig nú samt vel strákurinn. Hún er bara meira mín týpa, hress og lífsglöð og gefur sig alla í þetta en þar sem hún er jú ung að árum á þetta bara eftir að fleyta henni áfram! Hún fær pottþétt eitthvað að gera stelpuskjátan!

Við skelltum okkur svo í bíó í gærkvöldi, V for Vandetta varð fyrir valinu þar sem hvorugt okkar vissi nokkuð um myndina. Við vorum bæði afskaplega ánægð með hana og fannst hún bara fínasta skemmtun. Þetta er svona mynd sem vekur mann soldið til umhugsunar og það er þarft í þjóðfélaginu sem við lifum í! Mæli sem sagt með henni!

Við erum einnig búin að tapa okkur yfir Prison Break – horfðum á 14 þáttinn í gær og í þessum skrifuðu orðum eru þættir 15 og 16 að rúlla í gegn hjá mér! Hlakka ekki lítið til að sjá fleiri enda einir mest spennandi þættir sem um getur í sögu spennuþátta!
Annars verður maður dáldið leiður á því oft þegar maður fær engin svör við spurningum sínum – eins og LOST þættirnir eru. Maður verður bara pirraður að þurfa að bíða í viku! Ég vildi að einhver stöð tæki að sér að sýna svona spennandi þætti í einni bunu svo að maður gæti bara horft á þá alla í einu! Ég held að stöð2 hafi einhvern tímann gert þetta með 24 en ég þori ekki að fullyrða neitt þar sem ég hef ekki fylgst almennilega með þeirri stöð síðan 2003! Það breytist þó væntanlega í sumar og ég verð að viðurkenna að ég er orðin dáldið spennt enda margir eðal þættir þar á dagskrá!

En ég var víst að taka til og hef hugsað mér að halda því áfram!

Later,

114439969216154140

Posted in Almennt on 07.04.2006 by Hafdís Ósk

Ég er alltaf að halda því fram að ég sofi svo laust að ég myndi vakna upp við mús sem trítlaði framhjá! Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að þegar ég er í djúpum svefni á þetta ekki við en það hvarflaði ekki að mér að svalahurðin gæti fokið upp á gátt og ég yrði ekki vör við neitt! Ég virðist því hafa haft rangt fyrir mér og það er nokkuð sem ég forðast eins og heitan eldinn þar sem það fer verulega í taugarnar á mér!

Hitastigið inn í íbúðinni er því undir frostmarki og um leið hafði Siggi stormur líka rangt fyrir sér í gær þegar hann talaði um 2-3°hita í dag! Mér líður strax betur við að einhver annar hafi klikkað líka!

Annars er ég bara þakklát fyrir að búa ekki á 1.hæð þar sem hver sem er hefði getað rölt inn til okkar í nótt og stolið öllu steini léttara. Afhverju segir maður steini léttara? Steinar eru jú misþungir! Kannski er það af því að það er hægt að finna steina í öllum stærðum og gerðum og eflaust eru margir steinar þarna úti sem eru þyngri en öll búslóðin okkar til samans!

Já, ég er soldið þreytt – er að fara í próf kl.11. Allir heimsins lífeðlisstraumar kæmu sér afskaplega vel þar sem ég er ekkert sérstaklega klár í því að muna hvaða hormón tengjast allri kynhegðun og að periaqueductal grey matter sé til að mynda eitt af þeim efnum sem skipta máli í female sexual behavior! En núna vitið þið það!

Áfram hormón!