Archive for May, 2006

114908998313432611

Posted in Almennt on 31.05.2006 by Hafdís Ósk

So much to do – and so little time to do it in!

Ég hef verið að vinna ansi mikið upp á síðkastið. Það hefur þó bara verið gaman þar sem starfið mitt er jú sérlega áhugavert. Ekki leiðinlegt að bregða sér um borð í skemmtiferðarskip í hverri viku og vera tekið eins og prinsessu! Þessir skipverjar eru líka ansi miklir daðrarar svo að mér finnst ég nánast vera heimsins fallegasta kona í dag! Ekki á hverjum degi sem hrósið kemur alveg í bunum á móti manni…Notalegt en verður samt soldið vandræðalegt með tímanum!

Ég náði mér í einhvern kvefskít og er því rám og kynþokkafull um þessar mundir, sýg ansi mikið upp í nefið, hnerra jafnvel oftar, er þung í hausnum og eiginlega bara bókstaflega full af hori sem er voða notalegt! Það hefur þó ekki mátt hægja mikið á mér þar sem það streyma inn skipin þessa dagana og mikið að gera til að undirbúa komu þeirra! Ég hef því bara haft það gott á kvöldin í stað þess að taka upp úr kössum og því hefur gengið ANSI hægt að gera allt klárt – leiðinlega hægt þar sem það er fátt meira pirrandi en að leita að dótinu sínu í kössum! Mér leiðist líka drasl svo að þetta tvennt er ekki að gera mér lífið léttara þessa dagana!

En ég þarf að fara að græja…

Bið að heilsa í bili,

114863902073320842

Posted in Almennt on 26.05.2006 by Hafdís Ósk

Það er komið sumar, og sólin skín á ný – vetur burtu farinn…

Jæja!
Ég er komin eitthvað áleiðis í því að raða þó svo að allt gangi fremur hægt hjá mér sökum mikillar leti og óákveðni! Þetta mjakast þó allt í rétta átt og fullum kössum fækkar óðum! Það er reyndar búið að vera ágætt að gera í vinnunni seinustu daga og í gær smellti ég mér á frjálsíþróttamót og í saumaklúbb svo að ég gerði afskaplega lítið! Í kvöld koma svo börnin mín til mín í pössun, Guðmundur Gígjar og Arney Dagmar og ég því orðin ansi spennt. Hugsa að það verði mikið fjör í Breiðholtinu þar sem við GG ætlum að grilla pylsur, fara í fótbolta og leika okkur. Já, það var ákveðið í gær á fundi! Þarf líka að passa mig á því að sýna Arney Dagmar ekki of mikla athygli þar sem litli vinur minn er ekki ýkja hrifinn af því – ég er auðvitað hans en ekki hennar. Hann ýtti Arney einmitt frá mér í gær og til mömmu sinnar og settist sjálfur hjá mér voða glaður. Svo smellti hann sér á hitt lærið á mér þegar hún sat hjá mér! Þau eru svo yndisleg þessar elskur!

Við erum komin með nýtt símanúmer! Fengum ansi gott númer sem verður ekki auglýst hér. Áhugasömum er þó bent á að kynna sér ja.is til að finna númerið. Nýja númerið er ansi líkt númeri hjá einni útvarpsstöð hér í borg – ég á alla vega ansi margar góðar minningar af því númeri síðan í den enda hringdum við vinkonurnar ansi ört þangað til að biðja um hitt og þetta! Það var náttúrulega ekkert annað að gera í sveitinni! Í gærdag var síðan hringt í mig, væntanlega til að biðja um óskalag eða eitthvað. Ég var voða vinaleg og gaf upp hið rétta númer. Í morgun kl.7.06 hringdi síðan eitthvað fífl í skakkt númer, ég var ekki eins skilningsrík þá þar sem ég átti dýrmætan hálftíma eftir af fegurðarblundinum mínum og þar sem mér tókst bara að sofa út til 8.30 á fimmtudagsmorgun hefði þessi hálftími verið ansi vel þeginn! Sérstakleg var þetta slæmt þar sem ég var smástund að átta mig á að síminn væri að hringja og þurfti svo að klofa yfir nokkra kassa og labba þessa 300 m inn í stofu frá svefnherberginu. Enda sofnaði ég ekkert meira eftir þetta. Síðan hafði ég óvart skip um hringinu á vekjaranum mínum og því vakti þessi brjálaða stuðtónlist mig í morgun svo að ég fékk nánast hjartaáfall. Stuttu seinna hringdi vinnusíminn minn tvisvar með stuttu millibili og ég þurfti að ýta símtólinu inn í eyrað til að skilja upplýsingar sem ég fékk á þýsk-ensku! Já, það er heppilegt að ég eigi auðvelt með að vakna á morgnana. Ég þurfti nefnilega líka að svara ansi skemmtilegu símtali kl.9 á fimmtudagsmorgun. Þakka guði fyrir að vera ekki skemmtanaglöð kona þessa dagana!

Um helgina er annars skipulagt að þrífa gömlu íbúðina svo að hún sé glansandi fín en auk þess þarf ég að vera dugleg að hengja upp ljós og annað slíkt til að gera þá nýju soldið vistlegri! Eldhúsið er ekki enn komið í gírinn en ég reikna með að það gerist ansi hratt í næstu viku – þá fáum við borðplötuna og svona. Annars get ég ekki sagt að ég mæli með HTH innréttingum þar sem þessi hefur verið ansi dugleg í því að hrella okkur! Það er mjög erfitt að festa þær upp og ansi margt er vanhugsað hjá þeim! En þetta kemur allt með kalda vatninu!

Ætla að reyna að finna mér eitthvað að gera,

Hilsen,

114830451159571052

Posted in Almennt on 22.05.2006 by Hafdís Ósk

Heil og sæl,

Það hefur verið brjálað að gera undanfarið – ég hef varla náð að líta upp úr kössum nú eða öðru varðandi íbúðina. Ég er búin að ná að mála hárið á mér all svakalega einu sinni, setja meiri málningu á hendurnar á mér en á veggina, mála flísar, skápa og annað sem ég átti EKKI að mála. Já, ég hefði átt að gorta meira af hæfni minni í því að mála í kringum allt…
Við fluttum formlega í gær og fengum til þess hjálp frá eðalfólki og frábærum vinum. ÍR-ingar klikka ekki frekar en fyrri daginn en fengu þó góða hjálp frá Skagfirðingum í þeim efnum, sá passaði vel upp á að ekkert rispaðist eða skemmdist og var með öryggið í fyrirrúmi. Ég vil nota tækifærið og þakka Bergþóri frænda mínum, Albert og syni hans, Bergrós og Davíð og Ellen vinkonu fyrir alla hjálpina. Þessar elskur náðu að bera allt út af Eggertsgötu og setja það í kerru, keyra upp í Breiðholt og setja allt inn á tæpum 3 tímum. Þar af fór rúmur klukkutími í að koma sófunum okkar inn í nýju stofuna. Hurðirnar þar eru víst ekki gerðar fyrir svona eðalsófa eins og okkar! Þetta tókst þó með góðu samstarfi okkar alla og ég er á því að önnur eins liðsheild hafi ekki sést! Til þess að sófarnir kæmust inn þurfti einungis að taka allar hurðir af hjörum, losa gérefti og hurðarkarminn eins og hann leggur sig af hurðinni inn í stofu og losa ljós og taka spegil af veggnum inn í forstofu! En þetta hafðist og kann ég þessum elskum bestu þakkir fyrir einstaka þolinmæði og útsjónarsemi! TAKK KÆRLEGA! Mamma var síðan svo yndisleg að bjóða liðinu í kaffi og kökur. Það var að sjálfsögðu ekkert slor þar sem mamma reiddi fram veigar handa rúmlega 20 manns en við vorum bara 10. Það átu auðvitað allir á sig gat og gott betur en það og þetta hjálpaði svo sannarlega til við að hlaða batteríin sem voru farin að blikka alla hressilega!

Við byrjuðum svo að taka upp og raða í gær en erum ekki komin ýkja langt í því, svefnherbergið er þó að taka á sig mynd enda sá staður sem þarf að komast í stand sem fyrst! Afar mikilvægt að sofa vel, miklu mikilvægara en að tengja sjónvarp og raða sófum þó svo að það sé atriði nr.2 á listanum hjá sjónvarpssjúklingum eins og okkur! Stefnan er að sjálfsögðu sett á að græja allt slíkt fyrir kl.20 í kvöld ;) Síðan tekur græjun á eldhúsi við og þá getum við farið að ferja stellið og annað eldhústengt. Við ákváðum að geyma það í gær þar sem þeir kassar yrðu bara fyrir, eldhúsið á nefnilega soldið í land að verða klárt. Það verður því ekkert innflut ingspartý fyrr en í fyrsta lagi í júní! Við bíðum komu vina sem yfirgefa okkur að vetri til…

Ég hef því soldinn tíma í að koma íbúðinni í gott stand áður en hugsa þó að ég verði einhvern tíma að gera hanna að ,,minni” þar sem heimilsblær fæst oft ekki fyrr en eftir smá tíma. Ég kem svo til með að vinna hörðum höndum að heimilislyktinni sem tekur vonandi stakkaskiptum! Það er annars ekkert grín að þrífa þetta ferlíki, það leynast alls staðar krókar og kimar sem eru fullir af ryki og sagi eftir marga fætur! Ég á svo enn eftir að mála ytri forstofuna – jább, um að gera að hafa tvær – og þá fer þetta að líta út eins og ég vil hafa það!

En ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt í vinnunni – á von á fyrsta skipinu mínu næsta miðvikudag og það næsta kemur síðan í lok maí og þá byrjar sko gamanið!

Kveðja.
Hafdís

114787804495293817

Posted in Almennt on 17.05.2006 by Hafdís Ósk

,,Hana nú” sagði hænan og lagðist á bakið!

Allur flutningur hefur frestast sökum eldhúsvandræða! Eitthvað rör var í lamasessi og ef við hefðum sleppt því að skipta um það hefði leki trúlega verið tímaspursvandamál – þar sem við erum ekki hrifin af svoleiðis ákváðum við að skipta um! Við erum síðan að bíða eftir að rafvirkinn komi og græji allt systemið þarna. Hann er fjölskylduvinur og er búinn að hafa mikið að gera svo að hann hefur ekkert getað mætt á svæðið – það fer þó vonandi að rætast úr því! Sveinbjörn og tengdó smelltu hluta af innréttingunni upp í gær á meðan ég málaði bókstaflega frá mér allt vit. Hugsa að ég hafi verið AÐEINS of mikið með nefið á kafi ofan í dollunni þar sem ég var soldið að mála undir og fyrir ofan og hliðar og annað sem krafðist þess að ég væri í aðeins nánara sambandi við málningardolluna en hollt þykir. Í kvöld heldur málningarvinnan áfram – síðasta herbergið er að smella saman og vonandi klárast innréttingin líka – það kemur væntanlega í ljós í kvöld!

Síðan er fyrirhugað að byrja að pakka á fimmtudagskvöldið og vonandi náum við að byrja að flytja á föstudag og getum þá klárað á laugardag/sunnudag! Þá hef ég 1,5 viku til að gera Höllina hreina og fína fyrir næstu íbúa og næ svo vonandi að gera kjallarann fínan bráðlega svo að ég geti farið að bjóða einhverjum skemmtilegum í heimsókn. Ég hef ekki séð andlitin á vinum mínum í alltof langan tíma og er nánast farin að gleyma hvernig þeir líta út! Úr þessu verður bætt hið fyrsta!

Hildur hjálpaði okkur reyndar að mála um daginn og því man ég eftir henni, Bjöggi rak líka inn nefið í fyrradag og hann er því í fersku minni – aðrir eru ekki eftirminnilegir í augnablikinu en það rifjast vonandi upp þegar málningarvíman rennur af mér! Annars hefði ég seint trúað því hvað ég get málað utan um hurðir og annað slíkt án þess að teipa allt í bak og fyrir. Ég er bara orðin asskoti flink að SKERA eins og er sagt á máli atvinnumannanna í þessari grein! Ég mála ekkert svo mikið út fyrir og þegar það gerist er það svo agnarsmátt að ég er enga stund að þurrka! Jább, ég er klárlega snillingur!

Annars er bara fjör í vinnunni og ég er ennþá að lifa það af að mæta í íbúðarvinnu eftir kl.5 og fram að miðnætti! Ég þarf þó bráðlega að fara að fá almennilegan svefn til að hressa mig við!

En ég þarf að fara að læra eitthvað nýtt, bið að heilsa í bili!

114771228302099931

Posted in Almennt on 15.05.2006 by Hafdís Ósk

Stiklað á stóru:

* flutningur í íbúðina gengur ágætlega, við skötuhjúin erum þó að verða ansi þreytt enda taka svona niðurrif á, bæði á sál og líkama!

* fyrsta einkunnin er komin í hús – hún var ágæt miðað við efni og aðstæður. Áfallið með frænda minn tók smá toll af mér og talsverðan lærdómstíma! Ég get því bara verið nokkuð sátt.

* það er viðbjóðslega sóðalegt að flísaleggja, það geri ég ekki aftur í bráð – ég þurfti reyndar bara að þrífa eftir Sveinbjörn sóða en það var nóg fyrir mig!

* Við erum ekki enn farin að flytja draslið frá 101 og upp í 109, áhugasamir um kassaburð eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband. Áætlaður flutningur er á miðvikudaginn eftir vinnu!

* Það er að mínu mati mun auðveldara að vera líkamlega þreyttur en andlega þreyttur – ég get þó talað rétt þegar ég er líkamlega þreytt…hitt er öllu verra!

* Við Sveinjörn fórum á eitt skemmtilegasta djamm sem sögur fara af á laugardaginn. Það var sumargleði hjá vinnunni hans, Línuhönnun. Hún var haldin á Hótel Borg og viðstaddir fengur tveggja rétta máltíð og Mohito í eftirmat. Ég var svo heppin að sitja við hlið eins sem var ekki að drekka og naut því góðs af þvi með auka Mohito. Sveinbjörn var síðan svo sætur að gefa mér sinn þar sem hann var upptekinn af því að drekka bjór – mín sat því kát með sína 3 og drakk úr þeim til skiptis! Sveinbjörn kenndi mér síðan alla mögulega suðræna dansa á dansgólfinu við undirleik Milljónamæringana. Páll Óskar er náttúrulega snillingur og drap mig nánast í byrjun með brjáluðu stuði. Bógómíl róaði þetta síðan aðeins niður en hélt samt uppi fjöri og svo kórónaði Raggi Bjarna kvöldið. Ég uppskar 2 feitar blöðrur á stóru tánum og hef varla getað labbað síðan…EÐALKVÖLD! Sálfræðiskvísurnar mínar heimsóttu okkur undir lok kvöldsins og gerðu það ógleymanlegt! Ég var alveg búin að gleyma hvað mér finnst gaman að dansa! Pétur Jóhann var líka með uppistand og hann er ótrúlegur – ég lá í hláturskrampa allan tímann – hann er einstakur!

Sem sagt, góð en erfið helgi að baki þar sem við unnum að minnsta kosti í 12 tíma á dag í íbúðinni. Hún er þó alveg að verða fullkominn og við því farin að hlakka ansi mikið til þess að flytja inn og njóta góðs af dugnaðinum okkar, tengdamömmu, tengdapabba og foreldra minna! Einstaka vinir hafa líka verið duglegir við að reka inn nefið og fá þér þakkir líka – þið vitið hver þið eruð ;)

Heyrumst…

114734658361500140

Posted in Almennt on 11.05.2006 by Hafdís Ósk

Í fréttum er þetta helst:

-Ég er búin í prófum – kláraði á þriðjudaginn! Það var afskaplega notalegt en af ofálagi var ég andlega fjarverandi í gærdag og kunni ekki einu sinni að tala! Mjög notaleg tilfinning!

-Sveinbjörn er búinn að rífa gamla eldhúsið úr nýju íbúðinni – græjaði það einn á þriðjudaginn. Í gær tók ég mig til og aðstoðaði við fríkkun íbúðarinnar. Og fékk meira að segja að beita kúbeinin og vera með læti – en það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri – þ.e að hafa læti!

-Ég byrja síðan í nýju vinnunni minni á mánudaginn – ekki hjá Vísa eins og mörg ykkar halda heldur hjá Samskip. Þar á ég að sjá um skemmtiferðarskipin sem koma til landsins og öllu sem þeim tengjast – þ.á.m að fara um borð þegar þau koma og áður en þau fara! Það verður sem sagt NÓG að gera hjá mér í sumar!

-Helgin fer væntanlega í að pakka niður úr Höllinni en til upplyftingar ætlum við Sveinbjörn að smella okkur á Suðræna sveiflu hjá vinnunni hans og að henni lokinni ætlum við að kíkja á próflokadjamm með vinkonum mínum sem eru að klára prófin í dag!

-Það eru sem sagt spennandi tímar framundan! En ég hef ekki tíma í meira spjall, þarf að fara að kaupa málningu og flísar og græja eldhúsinnréttinguna!

Heyrumst,

114711559208724133

Posted in Almennt on 08.05.2006 by Hafdís Ósk

Að gefnu tilefni vil ég benda á að þegar ég skrifaði að kúkað hefði verið í sturtuna í nýju íbúðinni meinti ég að sjálfsögðu bara að mér fyndist það vera skítugt og að hreinlætisstuðulinn væri ekki alveg samboðin mínum. Ég meinti að sjálfsögðu ekki að það hefði bókstaflega verið kúkað í sturtuna! Vildi bara koma þessu á framfæri. Auk þess var ekki búið að þrífa íbúðina þegar ég stalst til að skoða hana svo að það var lítið að marka!

Takk og bless!

114704716617105681

Posted in Almennt on 07.05.2006 by Hafdís Ósk

Ég er klárlega mesti snillingur í heimi!

Það er komið á tært, það er ekki séns að taka þann titil af mér í bráð! Mig langar varla að segja frá þessu en þar sem þetta er OF aulalegt til að vera satt þá verð ég barasta…

Ég er að fara í próf á þriðjudaginn, í fagi sem að ég hef tekið áður og er aðeins að ,,lagfæra”. Það er náttúrulega ekki frásögu færandi fyrir utan að ég hringdi í vinkonu mína í dag til að spyrja hana hvernig hún hefði lært fyrir þetta seinasta vor (kominn nýr kennari síðan ég tók þetta og því ákvað ég að tékka). Hún fer síðan að lýsa einhverjum sniðugum köflum í bókinni sem hún las fyrir prófið og ég skil ekkert í því afhverju ég finn þá ekki en átta mig þá á því að ég er auðvitað með nýja útgáfu af bókinni og síðar á því að kallinn er búinn að skipta um bók þar sem hún heitir ekki það sama! Ég ákveð nú samt að fá bókina lánaða hjá kellu þar sem henni gekk vel á prófinu margumtalaða og þar sem mér lýst ekki nógu vel á þá sem ég er með í höndunum! Þess ber auðvitað að geta að ég er bara búin að lesa byrjunina á bókinni mér til varnar er ég bún að lesa hina bókina í faginu spjaldanna á milli (hún er á íslensku sem er gott fyrir slugsa eins og mig).

Eftir smá vangaveltur yfir kennsluskránni sé ég svo að kennarinn er með vitlaust nafn á höfununum en ég kippi mér svo sem ekki mikið upp við það því að ég mundi eftir umræðum um nýja útgáfu í byrjun árs, útgáfu sem kennarinn vissi ekki einu sinni af og sagði okkur síðar að við MÆTTUM nota, hún væri ekkert SVO frábrugðin þeirri eldri. Vanalega er það akkúrat öfugt en…kennarinn er soldið spes! (það er þessi í hvítu gallabuxunum)!

Eftir að hafa lagt saman 2+2 ákvað ég að kíkja á bóksölu.is til að sjá hvort að þetta væri örugglega bókin sem ætti að nota. Hvað kemur í ljós – mér tókst að kaupa kennslubók í Aðferðafræði I en ekki í Aðferðafræði og ekki nóg með það – heldur keypti ég kennslubókina í Aðferðafræði I í Félagsfræði en ekki sálfræði! Það er nú næstum eins eða hvað?

Ég sit sem sagt uppi með bók sem er kennd í félagsfræði í svipuðu námskeiði þó sem ég hef ekki lesið og kostaði nákvæmlega það sama og hin! Þetta þýðir að sjálfsögðu að ég get með góðri samvisku skipt þessar vitlausu upp í námsbók í öðru fagi sem ég tek í haust! Þannig að ég rauninni endaði þetta vel fyrir mig þar sem ég GRÆÐI á því að vera slugsi og lesa ekki allar bækurnar mínar!

Þetta er samt eitt af því heimskulegasta sem mér hefur tekist!
Langlífasta heimskuparið fyrir víst!

114684404650349802

Posted in Almennt on 05.05.2006 by Hafdís Ósk

Alveg komin í gírinn!

Próf á morgun, ég hef haft afskaplega lítinn tíma til að læra fyrir það. Það sannast best í því hversu stressaðar vinkonur mínar eru sem eru búnar að liggja yfir þessu síðan á sunnudag en undirrituð hóf hins vegar ekki lestur fyrr en í gær sökum annars prófs í millitíðinni! Ég tek þessu hins vegar bara með stökustu ró og ætla bara að gera mitt besta, reyni að tapa mér ekki yfir því að hugsa hversu lítið heimspekilega þenkjandi ég er. Reyndar tókst mér að tengja kenningar Freuds við andleg málefni svo að eitthvað hlýtur að vera að gerast í kollinum á mér.

Ég er svo komin í hina heilögu þrenningu núna, fékk mér tromp, magic og er að hlusta á slökunartónlist sem Friðrik Karlsson samdi. Sá diska eftir hann á okurverði í blómabúð um daginn og við Jóhanna hlustuðu dáleiddar á brot úr nokkrum lögum en hefðum aldrei á ævinni tímt að kaupa einhvern diskinn þar sem þeir kostuðu rúmlega 3500 krónur. Ég áttaði mig svo á því áðan að ég átti ennþá inneign á tónlist.is síðan um jólin og ákvað að athuga hvort þeir lumuðu ekki á nokkrum vel völdum lögum og viti menn! Ég keypti mér auðvitað nokkur vel valinn og er núna að hlusta á þau og fyllist að sjálfsögðu hugarró við það eitt! Og allur heimsins fróðleikur kemur til með að streyma inn í hugann sem hefur engar hömlur á sér við þessa miklu slökun.

Auk þess finnst mér ég hafa grætt talsvert í dag, sparaði mér auðvitað nokkra þúsundkalla á að kaupa lög af netinu í stað þess að kaupa diskinn sjálfan – auk þess hefði ég aldrei getað valið á milli diska. Og þess utan eru öll lögin sem ég keypti um 12-15 mínútur og við það eitt græði ég alveg heilan helling þar sem ég kaupi þau lög á sama verði og ég hefði keypt 3 mínútna lag – hreinn gróði! Ég hugsa að ég geti glöð í hjarta keypt mér eins og eitt stykki bol fyrir próflokadjammið eftir rúma viku…

Já, og íbúðin er enn skítug og ógeðslega og ég farin að hafa verulegar áhyggjur af þessu! En ég smelli bara nýju lagi á ,,fóninn” og hætti að hugsa um þau leiðindi og fer frekar að einbeita mér að skemmtilegum kenningum eftir kalla sem eru löngu dauðir – nánast útdauðir!

Kveð að sinni!

114669015746374179

Posted in Almennt on 03.05.2006 by Hafdís Ósk

Líf mitt er einstaklega fjörugt og skemmtilegt þessa dagana. Í nótt var til dæmis svo mikil stemning að ég var vakandi til 4 og vaknaði síðan spræk kl.rúmlega 9. Vaknaði reyndar svona 12 sinnum í nótt við einhverjar brjálaðar pælingar varðandi framleiðslustað heila-og mænuvökva og hvaða lyf væri hægt að nota til að lækna áfengissýki. Jahá, það er sko ekki amalegt að vera ég þessa dagana. Ég fór í 60 krossa próf eftir hádegi í dag og get ekki sagt neitt um gengið í því, ég vissi jú einhver svör (að ég held) en var ekki alveg viss með önnur og einhver hafði ég barasta ekki hugmynd um, enda er þetta fag ekki alveg minn tebolli. 140000000000000 upplýsingar á hverri síðu og 199999999999 millljón hlutir í heilanum sem stjórna álíka mörgum öðrum hlutum sem þarf að þekkja muninn á og minnið mitt er nú ekki alveg óbrigðult.

Ég er svo að fara í ansi erfitt próf á laugardaginn þar sem þarf að læra ansi mikið og skipuleggja hvernig maður getur sett allar þær upplýsingar upp í ritgerðarspurningu! Ég get sem sagt ekki mikið hvílt mig og er einmitt byrjuð að læra. Búin að prenta út og skipuleggja möppuna mína góðu og er til í slaginn. Veit samt ekki hvað ég næ að innbyrða af upplýsingum í kvöld þar sem hausinn er ansi þreyttur og mótmælir hástöfum þrátt fyrir að hafa verið fóðraður af magic, kaffi og súkkulaði í dag! Glúkósi er einmitt næringarefni heilans, alltaf gaman að vita það. Ég er uppfull af ansi mismerkilegum upplýsingum eftir prófið í dag – hugsa að þær verði þó ansi fljótar að gleymast…

Æ, mig langar bara að fara og hvíla mig í góða sófanum mínum…

ZZZZzzzzzZZZzzzzZZZZzzzzZZZZZZzzzzzZzzZZzZZzzZzZZzZzZZzzzzzzzZZZZzZzZZZZZzZZzzzZZ

114657556366706594

Posted in Almennt on 02.05.2006 by Hafdís Ósk

Hversu sorglegur er maður orðinn þegar maður er farinn að biðja sjálfan sig afsökunar á eigin ropa? Já, ég er töff og já konur þurfa líka að ropa og prumpa eins og kallar – það er eðlilegt!

114649755748171640

Posted in Almennt on 01.05.2006 by Hafdís Ósk

Góðir hálsar,

Ég er á fullu í prófatíð og geri fátt annað en að læra, sofa, borða og hafa áhyggjur af því hvað ég slugsast meira en ég læri – já, ég er sem sagt enn við sama heygarðshornið. Ég náði að undirbúa mig ágætlega undir fyrsta prófið sem var seinasta laugardag, þar skrifaði ég ansi hreint mikið og ruglaði án efa einhverju sama þar sem það var jú afskaplega einfalt, sérstaklega fyrir vitleysing eins og mig sem þurfti að fara extra hratt yfir efnið. Ég held þó að það próf sleppi alveg. Dagurinn í gær var svo algjörlega ónýtur sökum þreytu og slens, ég lærði eiginlega ekki neitt en át þeim mun meira. Okkur var boðið í skírnarveislu og þangað fór ég sem fulltrúi fjölskyldunnar, okkar Sveinbjörns s.s – við erum jú fjölskylda. Það var að sjálfsögðu alveg ljómandi gott og eiginlega bara tvöfalt gaman þar sem frændur voru skírðir og þeir voru báðir afskaplega hressir og kátir.

Í dag er ég að reyna að hella mér út í lærdóm á ný en það hefur gengið ansi hreint brösulega. Ætla þó að fara að taka upp tímatöku-kerfið mitt á ný til að fá smá spennu í þetta og harka af mér. Ætla jú að reyna að standa mig í prófinu á miðvikudaginn. Þriðja prófið er svo á laugardaginn og það seinata á þriðjudaginn eftir rúma viku. Þá verður nú fyrst kátt í höllinni! Þá fer ég að græja nýju Höllina, margt sem þarf að gera þar áður en ég fer að flytja mitt hafurtask. Eins og staðan er í dag þarf ég að byrja að þrífa eftir sóðablóðin sem bjuggu þarna áður og löbbuðu á veggjunum og kúkuðu í sturtuna (þetta lítur alla vega þannig út). Þið getið sem sagt rétt ímyndað ykkur hvað það verður sótthreinsað þar sem minn feiti en jafnframt fallegi rass lætur sko ekki bjóða sér hvað sem er!

En ég þarf að fara að kynna mér microglia frumur aðeins betur….

That´s all folks…