Archive for July, 2006

115330280381165429

Posted in Almennt on 19.07.2006 by Hafdís Ósk

Það er að fara að skella á brjálæði í vinnunni. Samstarfskona mín er komin í frí og ég því ein í kotinu. Ég er upptekin flest kvöld og alltaf með eitthvað á dagskrá. Eins og staðan er í dag er 1 kvöld í þessari viku laust – það er í kvöld. Í næstu viku byrjar brjálæðið – þá er ég með skemmtiferðarskip upp á næstum því hvern einasta dag! Í tilefni af því ákvað ég að útbúa mér dagatal á netinu um daginn. Það var farið að verða ansi flókið að skipuleggja fram í tímann þar sem dagskráin mín er ansi gloppótt! Næstu tvær helgar er ég að vinna á föstudag og sunnudag og því verður lítið um brjálaða gleði en ég geri mitt besta til að hafa alla vega smá gleði í gangi!

Hafið samband ef þið hafið áhuga á dagatalinu og í framhaldinu á því að hitta mig/okkur!

BLESSSSSSS

115330263750188531

Posted in Almennt on 19.07.2006 by Hafdís Ósk

Ef einhvern vantar duglegt fólk í heyskap er ég meira en lítið til í að smella mér – ég er ágætlega vön. Hef gert flest allt. Mér finnst voða sport að aka traktor og snúa, þá get ég sungið hástöfum og enginn heyrir í mér. Allra skemmtilegast finnst mér þó að vefja/pakka inn rúllum. Það er alveg verk fyrir konu eins og mig sem leitast við að verða alltaf betri og fljótari! Ég er alla vega til ef einhver vill fá mig. Ég get boðið Sigurjón í kaupbæti, hann er jafn spenntur og ég! Við yrðum held ég ágætis teymi!

115330261022062001

Posted in Almennt on 19.07.2006 by Hafdís Ósk

Ég fylltist einni mestu fortíðarþrá sem um getur í sögu minni í gærdag.
Á göngu minni heim úr vinnunni fór ég ósjálfrátt að rifja upp gamla tíma. Ég gekk í gegnum Elliðaárdalinn sem getur verið afskaplega fallegur og í gær var hann í sínu fínasta pússi eftir að hafa fengið smá rignarskúr á sig. Ef ég hefði ekki verið með bakpoka og veski hefði ég án efa verið að valhoppa og syngja – ég hefði auðvitað sungið ef ég hefði ekki alltaf verið að mæta einhverjum.
En þrátt fyrir að vera í fallegu umhverfi í góðu veðri var það ekki nóg – það vantaði nauðsynlega eitthvað til að ég gæti notið umhverfisins til hins ítrasta – KYRRÐ!
Bílaumferðin í Reykjavík getur stundum gert mig geðveika þrátt fyrir að ég sé að eðlisfari þolinmóð þegar kemur að þess háttar hlutum. Hávaðamengunin hér í bæ er að verða svakaleg. Bílarnir eru að verða stærri og um leið háværari, fólk er oft að verða fátækara og hefur þá síður efni á að gera við bílana sína sem verða yfirleitt um leið háværari. Þetta allt gerir mig geðveika!
Eins og staðan er núna þarf ég kyrrðina mína. Ég þrái að fara í heyskap þar sem ekkert heyrist nema niðurinn í dráttarvél. Mig langar að liggja á túni út í sveit og horfa á skýin svífa hjá og þurfa ekki að hlusta á neitt með lækjarniðinn og eigin hugsanir. Mig langar að sofna í algerri kyrrð, þar sem ekkert heyrist nema sönglið í fuglunum. MIG LANGAR HEIM TIL VOPNAFJARÐAR!
Ég held ég hafi aldrei verið með svona mikla heimþrá. Ég man eftir því í fyrra þegara ég fór HEIM í jarðarför, kvöldið sem ég kom og lagðist á koddann. Það er langt síðan mér hefur liðið jafn vel. Það er fátt betra en að sofna í algerri kyrrð og ró!

Þessa dagana langar mig sem sagt fátt annað en að komast upp í sveit með góða bók, liggja í leti og hafa það gott og njóta þess að þurfa ekki að vera í stressi og umferðaröngþveiti!
Það er því orðið ljóst að þegar ég fjárfesti í íbúð verður það væntanlega ekki í Reykjavík. Ég held að ég hafi áttað mig á því í gær að ég þarf að búa meira upp í sveit – sveitastelpan í mér er farin að toga í hina sem reynir að vera borgarstelpa!
Þessi fortíðarþrá mín kemur nú samt ekki á besta tíma þar sem stærri borgir eru eitthvað sem er í pípunum hjá okkur skötuhjúunum um þessar mundir! Spurning um að fara að hugsa sinn gang – nú eða að hysja bara upp um sig buxurnar og láta sig hafa að búa ekki í draumaumhverfinu!

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili,

115287442806137376

Posted in Almennt on 14.07.2006 by Hafdís Ósk

Footloose var snilld. Ég skemmti mér ofsalega vel!
Mjög vel heppnuð sýning sem ég mæli eindregið með!

Annars er ég ekki hrifin af þessu ógeðisveðri – hver er til í roadtrip?

115272392784653062

Posted in Almennt on 12.07.2006 by Hafdís Ósk

Hæhó

Þessi vika og sú næsta eru heldur rólegri en ég á að venjast. Það er svo sem ágætt þar sem ég þarf að bæta mér upp smávægis svefnleysi. Ég er nefnilega þannig af guði gerð að 8 tímar eru eiginlega lög frekar en nauðsyn. Ég virka alveg með minni svefni en með tíð og tíma sest þreytan í mig og ég finn að ég þarf að sofa! Samt þarf ég yfirleitt mest á því að halda yfir daginn en þegar ég er kominn upp í rúm á kvöldin er ég alveg laus við að vera þreytt og get því ómögulega sofnað! Ég þarf líka ansi oft að hugsa svo mikið og tjáningarþörf mín er held ég sjaldan meiri en akkúrat uppi í rúmi á kvöldin! Sveinbjörn er sem betur fer (fyrir sig) ansi þjálfaður í því að sofna í miðjum sögum – hann missir reyndar iðulega af einhverjum skemmtilegum vangaveltum sem ég á til að gleyma daginn eftir!

Í kvöld er ég að fara út að borða með fjölskyldunni hans Sveinbjörns. Er að fara að hitta föðurbróður hans sem býr í Noregi og ég hef bara hitt einu sinni áður. Hann talar með miklum norskum hreim og syngur því frekar en að tala – mjög skondið! Ég smitast auðvitað af þessu og fer að syngja með :)

Á morgun er svo Footloose með stórfjölskyldunni. Ég verð að viðurkenna að ég er soldið spennt enda algjör sökker á svona sýningar! Læt vita hvernig það fer!

Síðan verð ég aðeins að tjá mig um sjálfvirka kveikjara á klósettum. Mér finnst þetta vera óþolandi fyrirbæri þar sem ég kann MUN betur við mig í myrkrinu og vil helst geta slökkt þegar ég er að ,,athafna” mig – afsakið orðbragðið! Mæli sem sagt með því að það verði hægt að setja slökkvara á kveikjarana fyrir fólk eins og mig! Fyrirfram reikna ég þó með að vera ansi sér á báti í þessum efnum en….

En hún Erna mín er komin að sækja mig – LATER…

115254991433328700

Posted in Almennt on 10.07.2006 by Hafdís Ósk

Heja!

Viðburðrarík helgi að baki eins og svo oft áður!

Við skötuhjúin kíktum á Kristínu Birnu á föstudagskvöldið og áttum með henni notalega kvöldstund yfir spilamennsku og góðgæti! Hún er höfðingi að sækja heim þessi elska og ávallt gaman að vera með henni!

Á laugardag smellti ég mér á Esjuna með Rakel og Guðrúnu Ingu. Við lentum í rigningu og leiðindum en vorum samt frekar duglegar. Rakel tók allan fatapakkann í ferðinni. Fór allt frá því að vera bara á hlýrabol og yfir í peysu og jakka og var með hettu á höfðinu. Já, það skiptust sem sagt á skin og skúrir! Við vorum allar þreyttar en afar kátar með ferðina! Við vorum tæpa 2 tíma en stoppuðum smá upp á Steini og fengum okkur vænan slurk úr ánni! Mikið svakalega er vatn úr á miklu betra en það sem maður fær úr krananum! YNDISLEGT alveg hreint. Það jafnast þó ekkert á við vatnið á Vopnafirði, það er klárlega best í heimi!

Við fórum svo út að borða á laugardagskvöldið með Maríu og Óla og dóttur þeirra sem skemmti okkur mikið með yndislegheitum! Okkur var svo boðið heim til Guðrúnar Ingu en sökum mikillar þreytu og leti höfðum við okkur ekki upp úr sófanum og fórum bara snemma að sofa! Við sváfum síðan fram eftir og fórum svo í heyskap! Það er ekki hægt að segja að það að slá 1200 m2 garðinn okkar sé eitthvað annað en heyskapur! Það vantaði bara heyblásarann og Björn frænda minn heitinn til að skipa fyrir og þá hefði þetta verið fullkomið! Pabbi bjargaði geðheilsu okkar með því að lána okkur ofurvélina sína sem gat slegið grasið sem náði Sveinbirni upp að geirvörtu og var það hátt að við týndum nánast tengdamömmu! Þetta hafðist þó allt að lokum og það lítur út fyrir að all nokkrar ferðir verði farnar á sorpu með afraksturinn! Garðurinn sem er á þremur pöllum var sem sagt sleginn á 3 dögum og mörgum tímum! Sveinbjörn fór fyrst eina umferð með vélina í hæstu stillingu og svo aðra með hana í neðstu! Okkur sem búum bara í húsinu en eigum það ekki fannst tilvalið að smella upp sumarhúsi til útleigu þarna nú eða mini-golfvelli! Það yrði fínt djobb fyrir tengdamömmu að ráðskast með golfarar sem ættu leið hjá! Garðurinn er alla vega nógu stór fyrir ágætis völl!

Áhugasömum um beða-reitingu sem eru ekki með ofnæmi er velkomið að kíkja á heimsókn á næstunni! Boðið verður upp á kaffi og með því!

Með kærri kveðju,
Stjórnin

Seinni part dags nýttum við síðan í að sóla okkur og uppskar nefið á mér ríkulega – fagurrautt er það og fallegt í dag! Ég kippi mér að sjálfsögðu ekki mikið upp við það og hyggst skarta rauðu á morgun í stíl við nebbann! Aðrir hlutar voru vel sólvarðir með vörn en ég virðist hafa gleymt örlítilli rönd á höndunum og er því smá rauð á litlum bletti á hvorum handlegg. Frekar huggulegt þó ég segi sjálf frá og alveg í stíl við meterslanga örið mitt sem ég fékk við bakstur!

Annars er ég með skip í dag og þarf að hætta þessari vitleysu!

Blessuð…

115203262163733386

Posted in Almennt on 04.07.2006 by Hafdís Ósk

Hitt og þetta

*Það er ansi mikið að gera hjá mér þessa dagana. Ef ég er ekki að vinna þá er ég ansi dugleg í því að hitta skemmtilegt fólk og gera eitthvað skemmtilegt! Ég er nánast búin að hitta alla Danmerkurfarana mína – er reyndar bara rétt búin að sjá Maríu klippikona en betri helminginn hennar sé ég á hverjum degi í vinnunni svo að ég er þó ,,inn” í málum þar á bæ! Það er betra en ekkert! Rakel og Himmi eru auðvitað ofarlega á listanum yfir þá sem við höfum hitt mikið. Við erum ansi dugleg að finna okkur tíma til að gera eitthvað saman – veit þó ekki hvort það verður eitthvað framhald á því í bráð þar sem ég lét keppnisskapið ná tökum á mér um daginn og barði Rakel – við hugsum of líkt og því gerði hún alltaf það sem ég ætlaði að gera og þar sem hún var á undan mér í röðinni kom þetta sér ekki vel fyrir mig! Ég kyssti hana reyndar eftir á og reyndi að vera soldið almennileg við hana en ég hugsa að hún hætti ekki fyrr en hún hefur danglað soldið í mig! Ég á það skilið! Ég varð þó 2 í þessu spili – að ég held eftir spennandi lokasprett.

Það er ansi þétt dagskrá skemmtiferðarskipa í þessari viku. Vek athygli ykkar á því að eitt glæsilegasta skip í heiminum er væntanlegt hingað til lands á fimmtudaginn, 6.júlí. Það heitir Queen Elizabeth II og er með hátt í 2000 farþega og er eitt stærsta skipið í bransanum og víst einkar glæsilegt! Ég bíð alla vega ansi spennt! Verður ekki leiðinlegt að fara um borð í hana Elísabetu II. Á sama tíma er annað skip niður á bryggju og því er hægt að slá 2 flugur í 1 höggi með því að sjá 2 skip í einni ferð! Þessi skip verða Á Skarfabakka og Korngarði en það eru bakkar rétt hjá aðalstöðvum Eimskips og hjá Vöruhúsinu. Þegar þangað er komið ætti þetta ekki að fara framhjá ykkur! Skipin koma OF snemma á fimmtudaginn og fara um kvöldmatarleyti!

Ég er ansi svekkt yfir HM. Fæst af mínum liðum eru að skila sér í úrslit. Ég er orðin svo örvæntingarfull að ég er farin að halda með Þýskalandi – það segir sitt um vonleysið! Update: korteri fyrir leik í gær skipti ég snarlega um skoðun og ákvað að halda með Ítalíu. Það nægir mér að segja að sú skoðun mín breyttist eingöngu við það að horfa á liðin fara út úr rútunni. Þarf ég að segja eitthvað meira? Fyrir leikinn um helgina fannst mér mikið til liðs Portúgala koma en hegðun þeirra á móti Englendingum gerði lítið úr vonum þeirra um að ég yrði dyggur stuðningsmaður liðsins! Spánn hefur vinninginn í erjum þessara þjóða um mitt liðsinni.

En ég er að hugsa um að fara að smella mér heim!

Later,