Komið þið margblessuð og sæl,
Ég veit ekki hversu margir hafa þolinmóðir beðið eftir fréttum af mér en vonandi einhverjir!
Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér í vinnunni undanfarið og 70 yfirvinnutímar í júlí og 63 í júní segja mest til um það! Ég er búin að vera ein á báti í 3 vikur og stundum hef ég verið á barmi þess að verða geðveik! Það getur tekið á að vera í þjónustustarfi þar sem allt sem út af bregður er þér að kenna og það á sérstaklega við um mig. Ég hef aldrei verið hrifin af því að eitthvað sé mér að kenna – keppnisskap mitt og sú staðreynd að hópíþróttir eiga ekki við mig eru bestu dæmin um það! En í þessum bransa er miklu betra að biðjast bara afsökunar og lofa bót og betrun. Ég hugsa að ég verði þolinmóðari eftir þetta sumar!
Ég er búin að þurfa að vakna kl.5-6 á morgnana ansi lengi og hef því verið þreytt ansi lengi. Ég næ ekki næstum því alltaf að leggja mig aftur seinna um morguninn og staðreyndin er sú að það er betra að ná samfelldum svefni en 3-4 tímum með 3-4 tíma millibili! Þetta er vont en það venst og bráðum fer þessi törn að verða búin!
Þrátt fyrir þetta hef ég gefið mér tíma til að hitta þá sem skipta mig máli í lífinu. Búin að fara í ansi mörg góð afmæli og get-to-gether undanfarið og auk þess hef ég verið ansi lunkin í því að smella mér í heimsóknir með stuttum fyrirvara! Ég er búin að læra að spila nýtt spil sem á hug minn allan um þessar mundir – Kubb! Það er víkingaleikur frá Norðurlöndum sem er ansi hreint skemmtilegur og einn helsti kostur þess spils er að líkamlegt atgervi kemur málinu ekkert við! Heppni og leikni spila stóran hluta og leiknin felst þá einna helst í því að geta kastað boðhlaupskefli úr tré! Ég tapa reyndar alltof oft í þessum leik en Sveinbjörn er sá eini sem fær að kenna á því þar sem hann vinnur mig yfirleitt gerpið. Það er alltaf að sannast betur að ég er heppnari í ástum en hann!
Agnes vinkona heimsótti okkur í gær og í tilefni þess tókum við ærlega til í kotinu sem var orðið helst til skítugt. Í framhaldi af því erum við að hugsa um að ráða hana til að koma í heimsókn vikulega svo að það sé alltaf hreint og fínt hjá okkur! Fínt að fá á sig smá heimsóknarpressu til að halda öllu í skefjum! Reyndar erum við afar lítið heima um þessar mundir og því má segja að við höfum bara ekki haft tíma til að taka til.
Ég horfði á Supernova í fyrsta skipti í beinni í gær og akkúrat þá datt útsendingin út áður en ég komst að því hver færi heim. Ég er búin að bíða eftir því að falska gerpið, a.k.a Zayra detti út en ég þarf að bíða eitthvað lengur eftir því!
Ég ákvað fyrir nokkru síðan að sleppa sumarprófinu mínu og sitja fagið í haust. Þessa ákvörðun tók ég í samráði við kennarann minn sem sagði mér að það væri sniðugra. Ég hefði heldur ekki náð að læra neitt fyrir prófið þar sem ég er jú að vinna eins og geðsjúk kona og samstarfskona mín verður akkúrat í fríi þegar prófið er.
Ofnæmi hefur sett strik í reikning okkar skötuhjúa. Við erum bæði hnerrandi og grenjandi mest allan daginn og það verður ansi þreytandi til lengdar. Það er þó hátíð miðað við verkinn sem ég er alltaf með í hálsinum núna sem leiðir svo út í eyru og þennan sljóleika sem fylgir þessum vibba! Sveinbjörn er þó búinn að vera verri af okkur tveimur svo að ég get ekki mikið kvartað!
Í fyrsta skipti í ansi langan tíma horfði ég á stórt frjálsíþróttamót og fann ekki hjá mér neina löngun til að keppa! Ætli líkamsástand mitt hafi ekki stór áhrif á það en ég reikna með að ég hafi ekki verið í verra formi í lífinu. Ég hef ekki haft orku til að æfa eftir alla þessa vinnu en hef þó náð að gera eitthvað í hverri viku en ekki næstum eins mikið og ég ætlaði! Hyggst þó bæta úr þessu hið snarasta og skella mér á 4 æfingar í næstu viku! Oft hefur verið nauðsyn en…
Annars er ég sannfærð um að það sé fallegra að vera feitur en horaður – þetta er allt spurning um sannfæringarkraft!
Plön helgarinnar eru að ráðast. Við skötuhjúin stefnum að útilegu með Kristínu og Bjögga þar sem spil og skemmtilegheit verða allsráðandi! Ég er orðin ansi spennt og tilhugsunin um þessa útilegu hefur haldið geðheilsunni í skefjum seinustu vikurnar! Ég er samt að vinna til 18 á föstudaginn og frá 9 á mánudaginn en það gefur okkur samt tíma til að fara eitthvað aðeins út fyrir bæjarmörkin, spila kubb, Catan og Carcasonne eins og við höfum aldrei gert áður
Ef einhverjir hafa áhuga á því að bætast í hópinn liggja umsóknareyðublöð fyrir hjá undirritaðri! Hæfniskröfur eru: skemmtilegheit, kunnátta í Catan og Carcasonne, það að hrjóta ekki og nenna að vera með 4 vitleysingum í 2-3 daga!
En jæja, verkin hérna vinna sig víst ekki sjálf…
Góða helgi!