Archive for October, 2006

Aumingjaskapur

Posted in Almennt on 30.10.2006 by Hafdís Ósk

Það er einhver leiðinda aumingjaskapur í mér þessa dagana. Ég er búin að vera með höfuðverk stanslaust síðan á miðvikudaginn. Þá píndi ég mig til að lesa þrátt fyrir að vera frekar slæm í hausnum. Daginn eftir var ég engu skárri og átti í enn meiri erfiðleikum með að læra. Síðan þá er ég búin að vera góð í einn dag, laugardaginn, annars er þetta bara að koma aftur og versna og dreifast niður í andlit og bak. Þetta er meira að segja svo gott að ef ég vakna á næturna þá er ég enn með höfuðverk. Ég er því orðin soldið pirruð á þessu og hef lýst yfir stríði, læt ekki einhvern ljótan verk hafa svona mikil áhrif á mig.

Í tilefni þess lærði ég fram á nótt í gær. Var að vesenast með að klára heimapróf í Tölfræði III. Rosa fjör. Var miklu lengur að gera það en ég ætlaði þar sem einbeitingin mín var ekki upp á marga fiska, en eftir nokkrar kökur var ég orðin miklu efnilegri og rumpaði nokkrum spurningum af eftir að afmælisgestirnir höfðu tíað sig heim. Sveinbjörn ásamt ansi mörgum öðrum merkilegum átti nefnilega afmæli á laugardaginn. Loksins kominn í hóp fullorðinna drengurinn. Það var þó ekki að sjá á honum á laugardaginn að hann væri eitthvað að fullorðnast þar sem hann fagnaði þvílíkt þegar einhver færði honum pakka! Já, það er ekki hægt að segja að við skötuhjúin höldum ekki fast í barnalegheitin!

Þar sem við erum orðin fullorðinn var partýið á rólegu nótunum og fólk naut þess bara að vera í góðra vina hópi og spjalla um heima og geima. Það er partý sem eru mér að skapi. Ég er auðvitað stundum til í algjöra vitleysu og hamagang en á öðrum stundum bara bara voðalega notalegt að hafa það gott með vinum sínum! Græjurnar okkar eyðilögðust reyndar í seinasta villta partýi sem var haldið hérna og því fékk tónlistin að lúta í lægra haldi.

En ég á eftir að lesa ansi marga kafla fyrir prófin mín um helgina og ætla að fara að hella mér í þá. Komin með brjálað skipulag sem verður ekki endurskoðað í bráð!

Ykkur bið ég að heilsa!

HEIMA ER BEZT

Posted in Almennt on 24.10.2006 by Hafdís Ósk

Komin heim – skemmti mér vel. Svaf lítið og borðaði ekki ýkja mikið sökum þess að maturinn var ofsalega vondur. Færeyingar eiga það til að ofelda allt og skilja ekki hvað medium þýðir. Hjá þeim er bara extra vel done! Mér fannst matargerðin líka soldið furðuleg oft á tíðum. Það var til dæmis boðið upp á pylsur og kartöflur, saman í rétti í morgunmat. Ég var sniðug og veiddi nokkrar pylsur frá og borðaði með eggjahrærunni minni. Skálarnar sem átti að borða kornflex (ekkert Cheerios til í Þórhöfn) voru á stærð við kertastjaka fyrir sprittkerti og því hefði ég þurft að fara svona 17000 ferðir til að fá nægju mína. Ég lagði ekki í þá þolinmæðisvinnu svo að ég lét mér nægja að prófa að borða pylsur og eggjahræru!

Annars er brjálað að gera hjá mér. Fer í 2 próf 7.nóvember og þarf að lesa ÓGEÐSLEGA mikið fyrir þau bæði! Annað er eiginlega upp á líf og dauða þar sem mér tókst að klúðra fyrsta prófinu í því fagi og þar sem mig langar að sleppa lokaprófinu þarf ég að standa mig í stykkinu! Sveinbjörn á svo afmæli á laugardaginn og þar sem hann er ekki sá allra myndarlegast í eldhúsinu þó svo að honum fari fram þá hugsa ég að ég eyði einhverjum tíma þar seinna í vikunni. Svo er heimapróf hjá mér í tölfræði um helgina sem einhver tími fer í og svo þarf ég að fara að kíkja á verkefni í fjórða faginu mínu!

Það er sem sagt rosa stuð hjá mér í vikunni og ég reikna því með að vera að læra eins mikið og ég mögulega get. Stefni að því að læra til að minnsta kosti 21 öll kvöld og reyna að byrja örlítið fyrr en vanalega!

Annars er ég bara góð! En þið?

Hilsen

Posted in Almennt on 21.10.2006 by Hafdís Ósk

Rosa stud i Færeyjum! Rigning rok og stemning!

Erum buin ad fara ut ad borda og fengum eitthvad færeyskt lostæti! I kvold er svo arshatidin mikla og kjoll og med thvi komst i hus fyrir flugtak. Hugsa ad folk verdi anægt med ad thurfa ekki ad hafa mig nakta i kvold!

Flugid var ekki thad besta, rosalega mikil okyrrd og svo er flugvollurinn keimlikur flugvellinum a Isafirdi, umvafin fjollum sem flytja med ser sviptivind – rosa fjor sem sagt!

Er buin ad sja nokkur ansi god skilti og skil meira ad segja færeysku ad mestu – alveg ad rusta Sveinbirni i skilning!

Svaf reyndar eiginlega ekki neitt thar sem pipulagnirnar a herberginu eru med draugagangi! Klinkiti klank! Fann ekki eyrnatappa og er thvi ansi svekkt yfir thvi ad geta ekki hellt mig thad fulla i kvold ad eg heyri ekki neitt – held ad thad se planid hja betri helmingnum!

Thar sem thetta lyklabord er verulega ofugsnuid og færeyskt ætla eg ad lata stadar numid!

HEJ!

Í draumaheimi

Posted in Almennt on 19.10.2006 by Hafdís Ósk

Í nótt var ansi mikið að gerast hjá mér. Mig dreymdi voða mikið og mundi voða mikið af því þegar ég vaknaði í morgun.

Í fyrsta lagi dreymdi mig að ég væri í einhverri íþróttamiðstöð. Ég var að hvetja liðsfélaga mína en ekki að keppa sjálf. Var á einhverjum tímapunkti í búningsklefa kvenna eitthvað að brasa og heyrði þá voðalega skrýtið hljóð. Guðný vinkona var þarna líka og sagði mér bara að kveikja á útvarpinu. Hljóðið var nefnilega eins og einhvers konar lágvært öskur eða eitthvað og við skyldum ekki alveg hvað þetta var. Útvarpið þaggaði ekkert niður í þessu og því reyndi ég að slökkva á loftræstingunni til að kveða hljóðið niður. Það tókst ekki heldur og því upphófst mikill spæjaraleikur hjá okkur vinkonunum þar sem við vorum á þessum tímapunkti búnar að ákveða að einhverju barni væri haldið nauðugu í íþróttahúsinu. Við leituðum í einhvern tíma án árangurs. Ég endaði svo á því að vakna og uppgötva að þetta sem líktist lágværu öskri væri bara flaut í nefinu á Sveinbirni! Já, ansi hressandi hvað utanaðkomandi atburðir geta haft áhrif á daglegt líf. Í draumnum ætlaði ég líka að skipta um startblokk fyrir Jóhönnu svo að hún fengi pottþétt bestu startblokkina og ætti því meiri möguleika á því að taka hinar stelpurnar í nefið! Já, segið svo ekki að ég sé góð vinkona!

Annars eru Færeyjar á morgun og ég er ennþá ekki með neitt til að vera í á aðalkvöldinu og því er ég aðeins farin að stressast upp! Þarf að kíkja aðeins í búð í dag og athuga hvort að ég geti ekki fundið eitthvað sniðugt! Annars leiðist mér alveg skelfilega að máta föt og því veit ég ekki hversu vel þetta gengur…

I´ll keep you posted!

Barnið í mér

Posted in Almennt on 16.10.2006 by Hafdís Ósk

Ef það er einhver eiginleiki sem ég hef passað upp á alla mína ævi er það barnið í mér! Ég hef alltaf vandað mig við að hafa smá vott af því þar sem það er hollt fyrir alla að halda svolítið í barnslega eiginleika.

Ég heiðraði þennan eiginleika minn í gær þegar við skötuhjúin fórum í bíó með litla frænda mínum, Maríusi 6 ára. Myndin sem varð fyrir valinu var The Wild, fínasta skemmtun þar sem við Sveinbjörn hlógum örugglega manna mest! Mér finnst reyndar ekkert eðlilega gaman að fara á teiknimyndir og langar nú þegar ótrúlega mikið á bæði Over the hedge og Cars – en þær hef ég ekki séð ennþá!

Ég á því pottþétt eftir að verða óþolandi mamman sem vill fara með í bíó, vera með að leika, vera með í leikjum og lætur börnin ekki í friði! Ég er því strax farin að vorkenna tilvonandi börnunum mínum! En ef eitthvað er að marka Einar Áskel er rosa gaman að hafa fullorðna með í leikjum, vona bara að það verði ekki búið að breytast!

Annars var ég lúði um helgina og lærði fram til 11 á föstudagskvöldið og grét svo fögrum tárum yfir First Knight (sem ég hef nota bene séð áður). Já, maður grætur aldrei of mikið yfir bíómyndum eða þáttum!

Annars er bara gúrkutíð í Breiðholti og lítið sem ekkert að frétta!

Eruð þið ekki með eitthvað slúður?

Fatlafól, fatlafól

Posted in Almennt on 14.10.2006 by Hafdís Ósk

Ég er greinilega ekki að standa mig í skriftum þessa dagana. Enn eitt sem ég þarf að fara að bæta í mínu lífi…

Sveinbjörn hinn sæti skellt sér í hnéspeglun í seinustu viku. Þar var innri liðþófinn á vinstra hnéi lagaður. sá var orðinn ansi rifinn og illa farinn. Læknirinn fjarlægði það sem var skemmt og tjasslaði mínum manni eins mikið saman og hægt var. Þessi elska, Sveinbjörn ekki læknirinn, er þar af leiðandi á hækjum og getur sig lítið hreyft. Fyrir vikið er ennþá meira að gera hjá mér þar sem hann getur varla borðað á mín. Það segir sig sjálft að það er ansi erfitt að bera mat frá eldhúsinu og inn í stofu/borðstofu á hækjum. Tengdamamma er einmitt komin af spítala og er á sjúkrahóteli um þessar mundir. Fyrir vikið er ég ansi virk í hjúkrunarstörfum í þessari viku. Búin að stjana ansi mikið við fatlafólið mitt og svo búin að fara með ýmsar nauðsynjar til tengdamömmu og kaupa öll nauðsynleg lyf fyrir bæði. Tengdamamma fékk reyndar sýkingu í saumana á bakinu þrátt fyrir varúðarráðstafanir en er held ég komin út af spítalanum aftur.  Ég hefði því betur skellt mér í hjúkrun á meðan ég fékk borgað fyrir að prófa öll möguleg fög í háskólanum…
Skólinn er hress eins og alltaf en ég er eiginlega ennþá að jafna mig eftir prófstressið og niðurstöður greindarprófsins. Ég get þó huggað mig við að vera jafngreind og að vera ekki með neinn áberandi veikleika. Finnst soldið skondið að vera mjög góð í mynsturgreiningu og að finna hvað vantar á myndir og einhverju álíka dúlli. Sá þarna að athyglisgáfan mín er greinilega vel þjálfuð :)

Við förum síðan á árshátíð til Færeyja næstu helgi. Ég er farin að hlakka ansi mikið til að komast í burtu og njóta lífsins á hóteli. Og svo hlakka ég auðvitað ansi mikið til þess að hlusta á færeysku – finnst það ansi skemmtilegt tungumál.

En ég þarf víst að fara að einbeita mér að eins og einu stykki tölfræðiskýrslu!

Bið að heilsa að sinni!

Ýmislegt

Posted in Almennt on 08.10.2006 by Hafdís Ósk

Það hefur margt á daga mína drifið síðan seinast.

Ég fór í próf á laugardagsmorgun. Það er eitt af því ljótasta sem kennari getur gert nemendum sínum þar sem þeir eru dauðadæmdir til að eyða öllum föstudeginum og þar með töldu kvöldinu í að læra og fyrir vikið styttist helgin um helming. Ég var að læra fram á nótt á föstudaginn og vaknaði síðan hæfilega snemma á laugardaginn til að renna yfir glósur. Passaði mig þó á því að sofa alla vega í 7 tíma svo að ég yrði nú ekki stúrinn.

Klukkutíma eftir prófið skellti ég mér síðan heim til Agnesar vinkonu minnar. Hún er í framhaldsnámi í sálfræði og eitt af verkefnunum hennar þar er að greindarprófa 3 einstaklinga með alvöru greindarprófi. Prófi sem tekur 3 tíma í framkvæmd. Það fer þannig fram að hún leggur 13 mismunandi próf fyrir mig sem prófa misjöfn svið. Ég var mjög misgóð – lang lélegust í stærðfræði (vissi það nú reyndar fyrirfram) en var reyndar líka ansi óheppin. Það var tekinn tími á stærðfræðiþrautunum og því varð ég stressuð og var að reyna að drífa mig og fyrir vikið svaraði ég nokkrum spurningum ansi fljótfærnislega. Áttaði mig á mistökunum stuttu seinna en þá var það of seint. Ansi svekkjandi. Það er margt ansi flókið í þessum prófum og ég átti oft í heilmiklum vandræðum en var ansi sterk á öðrum sviðum. Er þó ekki búin að fá niðurstöðurnar ennþá þar sem hún þarf að vinna úr prófinu og fylla út eftir tilteknum stöðlum. Þar sem prófið hefur ekki verið staðlað (lagað að íslenskum aðstæðum) er ekki alveg að marka greindartöluna sem kemur út úr því en það ætti samt að gefa mér einhverjar vísbendingar um hvar hæfileikar mínir liggja og hvar ekki!

Eftir þetta þriggja tíma partý fór ég í barnaafmæli. Þar var auðvitað svaka stuð. Ég fékk fullt af hárgreiðslum og heyrði ansi marga góða brandara. Auðvitað fékk ég líka fínar kökur og annað slíkt sem bættu svo sannarlega upp allt orkutapið úr prófunum.

Á morgun er ansi þéttskipaður dagur, mikið um að vera í skólanum á morgun og margt að læra…

Heialíúbba

Posted in Almennt on 05.10.2006 by Hafdís Ósk

Lífið gengur sinn vanagang!

Ég fer í skólann, stundum á æfingu, borða, horfi á sjónvarpið, tala í símann og sef. Ég kann ágætlega við rútínur en einstaka sinnum finnst mér gott að brjóta þær soldið upp og gera eitthvað sem ég er ekki vön að gera í rútínuviku. Í gær var mér til dæmis óvænt boðið í dýrindis mat hjá Evu, Gunna og Hrafni Inga sem er einn af mestu sjarmörum þessa heims. Hann er rúmlega 7 mánaða og finnst athygli ofsalega góð og finnst við Sveinbjörn ennþá vera soldið skrýtin og skemmtileg, það fer af honum þegar hann eldist!

Fyrir vikið var gærdagurinn svo miklu skemmtilegri en ég hélt að hann yrði þar sem ég var ekki búin að ráðgera að heimsækja skötuhjúin og svo var auðvitað gaman hjá okkur eins og alltaf þegar við hittumst. Skil ekki hvers vegna við gerum ekki meira af því.

Og þá kem ég kannski að kjarna málsins. Maður hittir vini sína og kunningja misoft en alltaf þegar maður druslast til að hitta liðið þá er svo svakalega gaman og maður skilur ekkert í sér að gera þetta ekki oftar. Nokkrum dögum seinna er maður samt soldið búinn að gleyma því hvað þetta var skemmtilegt. Svo er fólk auðvitað svo upptekið að það er ómögulegt fyrir 5 manna hóp að hittast á degi sem hentar öllum.  Mér finnst alveg skelfilegt hvernig heimurinn í dag er að verða!

Og svo sakna ég allra sem búa í útlöndum (og ég þekki) alveg ofsalega mikið!

Ég vildi að ég væri ofsalega rík, ætti fullt af frítíma og gæti bara heimsótt alla sem mig langar að heimsækja…þá þyrfti ég að fara til London, Svíþjóðar, Danmerkur, á nokkra staði í Bandaríkjunum og svo er ég pottþétt að gleyma einhverju en…

Já og svo er ég sísvöng þessa dagana og það er ansi erfitt þegar maður er að læra á bókhlöðunni og má bara borða á afmörkuðum svæðum!

Og þetta var sérstaklega leiðinlegt blogg svo að ég set punkt hér.

I FEEL GOOD…

Posted in Almennt on 03.10.2006 by Hafdís Ósk

Ég skellti mér á æfingu í fyrsta skipti í alltof langan tíma í gær – ÞAÐ VAR SVO GOTT! Og auðvitað skemmtilegt líka! Félagar mínir eru reyndar búnir að æfa í 2 vikur núna svo að ég er kannski ekki ALVEG á sama stað og hinir. En mér fannst samt voða gaman að gera eitthvað þó ég tæki ekki alveg jafn marga spretti og aðrir og væri seinust! Stundum er voða gott að gera hluti á sínum eigin forsendum! Mér leið líka alveg svakalega vel í gærkvöldi og naut þess að hafa það gott upp í sófa það sem eftir leið kvölds þar sem ég hef ekki haft ýkja mikinn tíma í svoleiðis dúll seinustu daga og kem ekki til með að hafa það næstu daga. Það er nefnilega próf hjá mér aftur næsta laugardag, þessi stemning hættir aldrei ;)

Var ég búin að segja ykkur að við Sveinbjörn erum á dansnámskeiði? Það er ekkert smá skemmtilegt og við erum líka ofsalega klár ;) Reyndar er Sveinbjörn ofsalega klár og lætur mig bara líta vel út með því að stýra mér í réttar áttir – já, ótrúlegt en satt þá get ég látið af stjórn (svona þegar ég vanda mig). Við erum alla vega búin að læra alveg fullt, fullt. Ég er meira að segja búin að læra smá tangó og quickstep sem ég hélt að ég gæti ALDREI lært þar sem takturinn í því er nákvæmlega enginn! Sveinbjörn heyrir hins vegar takt í þessu öllu og snarar mér til og frá þessi elska.

Við skötuhjúin förum svo til Færeyja eftir rúmar 2 vikur. Það er árshátíð hjá vinnunni hans Sveinbjörns í Færeyjum og við ákváðum að skella okkur með. Ekki á hverjum degi sem maður fer til Færeyja og því fannst okkur þetta upplagt tækifæri!

En ég þarf víst að fara að læra – þessar blaðsíður lesa sig því miður ekki sjálfar!

 Læt heyra frá mér fljótlega…