Sigurvegari Gegndrepa

Bjöggi vinur minn, a.k.a Fast Bastard, gerði sér auðvitað lítið fyrir og tók Gegndrepa leikinn í nefið. Ég get ekki sagt að það hafi komið mér á óvart þar sem hann er þannig af guði gerður að hann vinnur yfirleitt ef hann ætlar sér það – nema kannski í CLUE þar sem ég rústa honum ;)

Ég var ekki lítið montin af honum á meðan ferlinu stóð og horfði á alla þættina. Fannst hann auðvitað komast best frá þessu, einföld en skipulögð bleyting í hvert skipti sem svínvirkaði. Hann var ekkert í því að brjótast inn í hús eða skýla sér á bakvið varamanninn sinn! Ég var reyndar með smá smjörþef af ferlinu öllu saman þar sem við heyrum oft í þessari elsku. Hann kom líka einu sinni hlaupandi hingað og bað um lyklana að bílnum okkar. Þá fékk hann án þess að við spyrðum nokkurs. Stuttu seinna kom hann aftur, þá hafði skotmarkið hans séð bílinn hans en ekki hann svo að hann vantaði nýjan bíl til að geta elt hana. Við Sveinbjörn vorum því ansi oft spennt að vita hvað væri að gerast þar sem hann átti það til að gefa okkur smá upplýsingar um það sem væri að fara að gerast en ekki mikið meira en það! Við vorum því ansi spennt að sjá þættina þar sem við fengum ekki öll smáatriðin!

Mér fannst þátturinn í gær soldið skondinn, fannst fyndið að sjá hvað gaurinn sem var næst seinastur út var fúll – skil hann MJÖG vel þar sem ég hefði áreiðanlega verið það líka en Bjöggi gerði bara nákvæmlega það sama og hann hafði gert við ansi marga áður. Ég hló því og skríkti eins og smástelpa en sá jafnframt að ég hlyti að vera álíka asnaleg þegar ég tapa! Spurning um að hætta þessari tapsárni einhvern tímann!

En ég á að vera að læra próf á morgun! Er reyndar búin að lesa svo mikið í dag að mér er bæði illt í rassinum og bakinu! HRESSANDI!

Námsefnið er líka yfirmáta uppbyggilegt, þunglyndi, átraskanir, sjálfsvíg, persónuleikaraskanir og fleira yfirmáta spennandi. Ég er ekki frá því að ég fái vott af hverjum sjúkdóm við að lesa lýsinguna á honum en lækna auðvitað sjálfa mig um leið með því að lesa meðferðina…

Þakka einmitt guði á meðan lestri stendur fyrir að vera ekki með þunglyndi á háu stigi þar sem ég get ímyndað mér að lyfin við því séu hreinn vibbi…

ÞOTIN…………………..

17 Responses to “Sigurvegari Gegndrepa”

  1. Robbi Says:

    Ég gjörsamlega hataði þennan Ron Manager, ég óskaði þess heitast að hann myndi ekki vinna.

    Var þess vegna mjög sáttur þegar Bjöggi tók hann út og vá hvað hann varð fúll, sjitturinn. Hann var næstum farinn að gráta. En ég meina, svona er lífið og hann tapaði, Bjöggi var betri keppandi.

    Það sem ég þoldi ekki við Ron Manager var hvað hann var alltaf orðljótur og leiðinlegur, alltaf með einhverja stæla og nöldrandi. Rosalega leiðinleg týpa. Hann er 25 ára og hagaði sér eins og versta gelgja á því skemmtilega skeiði.

    En djöfull var ég sáttur við Bjögga, hann er alveg OFUR-SVALUR!

  2. Hann er ofur-töffari. Enda varakærastinn minn ásamt Berg…jább, ég kann sko að velja þessa ofur-svölu. Sveinbjörn var reyndar smá klikk hjá mér en það er of seint að breyta því núna! Ég þarf þó ekki að óttast alla kvenkyns aðdáendurna sem þeir tveir fyrstnefndu hafa í haugum í kringum sig…

  3. Sæunn Says:

    Já, sammála Robba. Þegar hann braust inn þá fékk ég nett sjokk, hver gerir svona?
    Hann gekk alltof langt. Bjöggi spilaði heiðarlega og átti þetta svo sannarlega skilið.

  4. Hahahaha!
    Æði..!

  5. Kristín Birna Says:

    Ég sá ekki þáttinn fyrr en í gær sökum þess að ég er í útlandinu….og þrátt fyrir að ég hafi vitað hvernig þetta færi geislaði stoltið af mér í allann gærdag. Ég fékk herbergisfélaga mína til að setjast með mér og horfa á þetta til að ég gæti montað mig…… herbergisfélagarnir mínir skilja ekki íslensku!! ;)

  6. What segi ég nú bara!!!
    Hvað er fólk að tala um????
    Hverju er ég að missa af????

  7. Í þættinum gegndrepa leikur liðsfélagi þinn og ofurtöffari Björgvin Víkingsson eitt aðalhlutverkið. Þættirnir voru á dagskrá Sjás Eins og þú getur fundið þá á netinu. Til dæmis með því að nota þennan link hér: http://www.skjarinn.is/skjareinn/innlendir_thaettir/thattur/store126/item7809/

  8. Þórey,

    Bjöggi tók þótt í raunverleikasjónvarpi sem hét Gegndrepa og var sýnt á Skjá Einum.. Leikurinn er einskonar vatnsbyssu “hit-man” þáttur sem gengur út á þáttakendur fá ákveðinn skotmörk. Leikmaður A er t.d. með leikmann B sem skotmark, leikmaður B er með leikmann C sem skotmark en Leikmaður C er með A sem skotmark,etc, Þannig myndast hringur sem minnkar og minnkar við hvert “dráp” þangað til að eftir stendur einn sigurvegar sem fær 500 þús. í verðlaun. Sá sigurvegari var að sjálfsögðu Bjöggi.

    Þú getur séð þættina á http://www.skjarinn.is

  9. Ég svaraði Þórey í gærkvöldi, það hefur greinilega eitthvað misfarist!

  10. Ég verð nú bara að segja að ég er engan veginn sammála þér Robbi, Benni er einn af bestu vinum mínum og drengurinn er sko allt annað en leiðinlegur…þetta er einn mesti snillingur sem ég hef kynnst. Auðvitað var hann fúll, það hefði ég nú verið líka ef ég hefði verið þetta nálægt því að vinna 500 þús og ÆTLAÐ að geta það….en róum okkur á því að hann hafi verið að fara að grenja. Hann var það sem gerði það að verkum að ég (og margir fleiri) horfðu á hvern einasta þátt og mér fannst killin hans langskemmtilegust þar sem maður varð nett spenntur.

    En samt sem áður er ég sammála ykkur að Bjöggi stóð sig vel og var vel að þessu kominn enda ofur-svalur! :)

  11. Sæunn Says:

    Ásdís, Finnst þér semsagt eðlilegt að brjótast inn hjá einhverjum, og bara allt í lagi að gera það? Maður gerir það ekki, jafnvel þó 500 þúsund krónur séu í verðlaun.

  12. Ekki undir venjulegum kringumstæðum nei en þetta er bara leikur og það skrifuðu allir sem tóku þátt í honum undir skjal þar sem þau gerðu sér grein fyrir því að svona mætti gera.

  13. aha ok skil og takk fyrir útskýringarnar!
    Auðvitað vinnur Bjöggi, hann vinnur allt sem hann tekur þátt í….
    Bara snillngur :)

  14. Robbi Says:

    Ásdís, ég dæmi Ron Manager eingöngu út frá þættinum, ekki hvernig hann er í raunveruleikanum. Enda þekki ég hann ekki neitt og get því ekki sagt neitt um það hvernig hann er. Það getur vel verið að hann sé algjör snillingur. En ég stórefast um það. Gott samt að þér finnist hann æðislegur.

    Ástæðan fyrir því af hverju mér fannst hann hundleiðinlegur í þáttunum, eru nokkur atriði: Hann var alltof orðljótur (sagði m.a. “fokking þetta” og “fokking hitt” í annarri hverri setningu). Í síðasta hittinu sínu þegar hann braust inn hjá stelpunni og beið fyrir utan íbúðina hennar í grasinu, þá sagði hann: “Það liggur við að ég skíti á mig til að fá smá hita í mig.” Hver segir svona? Ég hef aldrei áður heyrt 25 ára karlmann sem á litla dóttur, tala svona viðbjóðslega. Ég fékk klígju við að heyra þetta. Svo var margt annað í hegðun hans og tali í þáttunum sem gerði það að verkum að ég fékk hreinlega óbeit á manninum.

    Það er skiljanlegt að vera tapsár þegar maður verður af 500 þús kr., en að sýna það svona í sjónvarpi er alveg fáránlegt, að segja þetta við nágrannastelpuna er bara ótrúlegur dónaskapur.

    Og hvað varðar killin hans, þá fannst mér lítið í þau varið. Bjöggi tók út sína menn á snarpan og öruggan hátt, hann var ekki með neina sýndarmennsku og óþarfa vesen.

    En allavega, ég ætla ekki að fara út í einhverjar rökræður varðandi Gegndrepa, við erum ósammála og það er alveg sama hvað ég segi, ég breyti þínu áliti eða þinni skoðun ekki. Það sama gildir um mig.

  15. Já það er rétt við breytum ekki skoðun hvors annars en mig langar bara að leiðrétta þann misskilning að hann eigi barn, það var “agent brjósklos” sem er pabbi.

  16. Sæunn Says:

    Ég hef ekki heyrt 25 ára gamlann strák tala svona. Þeir 25 ára strákar sem ég hef kynnst tala ekki svona, amk ekki Sveinbjörn, og þeir vinir Hafdísar sem ég hef hitt. Ég er náttúrulega svo ung, en vinir mínir tala ekki einu sinni svona og þeir eru 7 árum yngri en þessi Ron Manager.

  17. Bjöddþór Says:

    fokking þáttur….

Leave a Reply