Próf, verkefni, verkefni, próf, próf

Já, lífið er ansi fjörugt þessa dagana. Ég var í prófi seinasta laugardag. Lærði u.þ.b af mér rassinn fyrir það. Hafði reyndar afskaplega lítinn tíma til að troða fróðleiknum inn í hugann og því var um maraþontroðslu að ræða á hverjum degi. Prófið gekk hins vegar ágætlega að ég held. Þann sama dag þurfti ég að klára seinasta skilaverkefnið mitt í tölfræði. Það gekk frekar hratt fyrir sig þar sem ég hafði unnið svipað verkefni áður. Fyrir vikið komst ég heim þægilega snemma til að geta horft á mynd nr. 2 af Pirates. Ágætis afþreying en ekki mikið meira en það.

Á sunnudaginn vorum við Sveinbjörn upp í skóla frá hádegi og fram til miðnættis. Ég þurfti að skrifa tvær greinargerðir um rannsóknargreinar í vinnusálfræði og skila þeim í gær. Ég var sem betur fer búinn með helminginn af þessu verkefni þar sem þetta tók þvílíkt langan tíma. Það þarf ansi oft að lesa svona greinar vel yfir til að komast að kjarna málsins þar sem enskan er kannski aðeins flóknari en ég á að venjast. Það þarf líka að hafa fyrir því að leita að nauðsynlegum upplýsingum og því þurfti ég voða mikið að fletta fram og tilbaka og lesa hvora grein fyrir sig ansi oft! En þetta hófst þó og ég skilaði kát í gær. Næsta laugardag er síðan síðasta hlutaprófið mitt. Það verður ansi ljúft þegar það er búið. Þá er formlegri kennslu lokið og upplestrarfrí hafið. Ég byrja í prófum 11.des og þarf því að halda vel á spöðunum eftir næstu helgi. Á eftir að lesa ANSI mikið fyrir fyrsta prófið og sömu sögu má segja um þriðja og síðasta prófið mitt en ég hef bara 1 dag frá prófi 2 og fram að prófi 3 svo að ég þarf eitthvað að skipuleggja og vesenast. Reikna með að skipulagsfræðingurinn minn hún Agnes komi sterk inn í það plan!

Eins og þið sjáið er lífið mitt ekkert sérstaklega spennandi um þessar mundir en það rætist vonandi eitthvað úr því í vikunni og ég vænti þess að koma með ansi skemmtilegar fréttir hérna inn á fimmtudagskvöld eða föstudagsmorgun – svo að þið ættuð að vera rétt stillt!

Bið að heilsa í bili,

5 Responses to “Próf, verkefni, verkefni, próf, próf”

  1. Bjössi Arngríms Says:

    Úúúúúúúú er kominn sá tími. Bíð spenntur

  2. Gangi þér roooosa vel að læra!

  3. Já ég get ekki sagt að ég sakni þess að vera á kafi í verkefnavinnu eða lesa á fullu undir jólaprófin. Ég hef reyndar nóg annað að stressa mig yfir en samt fegin að vera bara að kenna en ekki að læra. Þú verður líka svo fegin þegar þetta er búið.. Vertu dugleg að læra, leiðinlegt að sjá eftir einhverju þegar prófin eru búin og viljað hafa verið aðeins duglegri að læra..

    Vona að þetta hús fari að komast í rétt lag þannig að við getum farið að bjóða ykkur í mat.. Eldhúsið verður svakalegt og get ekki beðið eftir að fara elda og bjóða fólki í mat..

    Kveðja úr grindó

  4. Þú hefur bara samband þegar þú vilt að ég skipuleggi þig niður í ræmur, elskan :)

  5. Erna Dögg Says:

    Bíð MJÖG spennt eftir fréttunum !!!!

Leave a Reply