Ég VISSI það
Ég vissi að hún væri ekki eðlileg!
Ég hef aldrei verið hrifin af þessari konu, án þess að geta rökstutt þá tilfinningu mína. En núna er ég sannfærðari en nokkru sinni fyrr um að hún sé ekki alveg heil á geði og að það vanti eitthvað AÐEINS upp á að hún sé eins og fólk er flest! Kannski er þetta slæmt samband við pabba hennar sem kemur í veg fyrir að hún geti faðmað fólk – hver veit. En ég er alla vega sannfærðari en nokkru sinni um að hún sé ekki fyrir mig og mikið afskaplega er ég fegin að hafa fengið einhverja staðfestingu á því! Ætli það sé ekki erfitt að vera þriggja barna móðir og vera illa við knús, kúr og grát? Maður bara spyr sig!
Annars er fyrsti í fríi í dag! Ég svaf auðvitað alltof lengi. Sveinbjörn var eitthvað að angra mig með hrotum í nótt, hann er svo leiðinlega kvefaður þessi elska! Ég var á tímabili að hugsa um að flýja hann en ákvað að harka af mér þar sem ég er nagli! Í dag er svo stefnan sett á að fegra heimilið, baka kannski eins og eina sort af smákökum, ganga frá skóladóti og umfram allt hafa það gott!
Annars er ég á því að Ladykillers sé ein alversta mynd sem ég hef reynt að horfa á! Ég hef sjaldan skemmt mér jafn illa yfir mynd! Þetta er örugglega sú mynd sem ég skil síst á eftir Groundhog Day!
Miami Vice var hins vegar ágætis afþreying…nokkuð góð bara!
En mikið ofsalega fannst mér Bond góð! Hrikalega ánægð með þá bíóferð! Og mikið svakalega var konan í byrjun myndarinnar kynþokkafull. Soldið mjó fyrir minn smekk þó en rosalega flott samt sem áður! Og auðvitað skemmdi ekkert fyrir henni að hún væri í rauðum kjól…
19.12.2006 at 12:44
Ég var nú alltaf soldið skotin í henni í gamla daga. En hún er nú farin að fara allt of mikið í taugarnar á mér. Sérstaklega þar sem hún fær að sofa í sama bóli og Brad Pitt. Það væri nú ekki leiðinlegt, sérstaklega ekki um jólin.
En þó maður sé flottur þá þarf maður ekki að vera eðlilegur. Ætli ég sé þá ekki andstæðan…!!!
20.12.2006 at 03:00
Shit, hún er ennþá heitari í augum stráka eftir þetta komment…
20.12.2006 at 11:09
Ég hugsa að fæstir af þessum stjörnum flokkist undir eðlilegt fólk. Held að það fylgi því sjálfkrafa að vera frægur að vera soldið spes. Ég er reyndar spes án þess að vera fræg, soldið svekkelsi með það…
Sigurjón – ég er farin að efast um smekk þinn á kvenfólki…Svo held ég að þú sért knúsu-kall í laumi…
Annars get ég ekki séð að það að þola ekki grát sé kostur. Hugsaðu þér hvað það er hressandi að hafa konu sem slíka sér við hlið þegar eitthvað bjátar á, eins og fjölskyldu- eða vinamissir…
20.12.2006 at 15:51
Það skal enginn segja mér það að Jolie sé með kvikasilfur í æðum sínum. Auðvitað grætur hún þegar það á við, auðvitað vill hún faðma þá sem hún elskar. Mannsekja eins og hún þarf örugglega að “þola” mörg faðmlög frá fólki sem hún þekkir lítið sem ekki neitt. Kannski er hún bara líkari körlum heldur en konum, ég meina karlar gráta síður en konur, þeir nenna síður að knúsast og faðmast.
Hún þarf örugglega ekki að segja mikið svo 1000 slúðurblöð riti 1000 útgáfur af því sem hún sagði. Ég hef ofar en einu sinni séð það gerast í búðunum hér að 2 slúðurblöðum er stillt upp hlið við hlið og það er algjörlega sitthvor skilaboðin á þeim. Fyrr í haust sá ég blað þar sem stóð á forsíðunni að Jolie og Pitt væru að fara að hætta saman. Við hliðina á því blaði var annað blað þar sem stóð og forsíðunni að þau væru að fara að gifta sig. Mér þótti það nokkuð magnað, fólk er bara látið ráða því hvora söguna það vill lesa og trúa, sama hvort það séu sannar eða ekki.
Annars er þetta orðið aðeins of langt komment um eitthvað sem mér er nokkuð sama um. Ég er “Aniston-maður” þannig að Jolie er ekki vinur minn. En ég held að hún sé samt manneskja eins og ég og þú, samt aðeins meira eins og ég
20.12.2006 at 20:20
Hef aldrei þolað Angelinu Jolie, skil ekki hvað karlmönnum þykir hún sexí. Ég vil ekki ganga svo langt að segja að hún sé ljót, en falleg er hún ekki.
20.12.2006 at 22:44
Sigurjón – auðvitað getur maður ekki trúað öllu sem maður les, helmingurinn af því sem er skrifað um þau er auðvitað bara eintómt bull og vitleysa! En ég held samt að ef að maður segir að maður sé lítið gefin fyrir faðmlög, kúr og grát að þá gildi það almennt. Ekki bara gagnvart ókunnugum. Ég er sjálf ekkert gefin fyrir faðmlög frá ókunnugum og hugsa að allir séu á sama máli í þeim efnum. Sjálf kúri ég bara hjá kærastanum mínum og mjög líklega hjá barninu mínu í framtíðinni en annars er ég ekki mikið gefin fyrir að kúra hjá fólki. Auðvitað er erfitt að horfa á alla gráta, sérstaklega þá sem manni standa næst…
Svo að ég á bágt með að trúa því að hún sé að tala um að það sé óþægilegt að kúra hjá og faðma ókunnuga þar sem mér finnst þessi tvö orð ekki eiga heima í sömu andrá og maður minnist á ókunnuga. En auðvitað er ég ekki fræg og veit ekkert um þann heim sem frægðinni fylgir!
Þakka þér fyrir langt komment um ekki neitt – gleður mitt litla hjarta sem er hrifið af bulli um allt og ekki neitt
Robbi – algjörlega sammála!
21.12.2006 at 12:53
Sammála og ósammála. Hún er auðvitað obbóslega falleg og kynþokkafull og svo virðist hún vera voða góð; hjálpar fólki sem á erfitt (er sendiherra sameinuðuþjóðanna, ætleiðir börn sem eru munaðarlaus osfrv osfrv). Ég tel mig vera mannvin og þoli ekki að sjá þegar farið er illa með “litla manninn” en samt sem áður virðist ég ekki vera hrifin af henni ungfrú Jolie. Hún er auðvitað furðufugl, var með blóð fyrrverandi í “krús” utan um hálsinn. Það sem pirraði mig samt mest var að hún “stal” Brad kallinum frá henni Jennifer…ég ætlaði að gera það!!!
21.12.2006 at 18:00
Ég er bara sammála síðasta ræðumanni.
Hefði ekki getað orðað þetta betur.
Ég er komin í jólafrí, en ekki komin á heimaslóðir vegna veðurs.
Viltu krossa putta fyrir mig dúllus..?
Hafið það svo gott um jólin og ekki gleyma að borða yfir þig. Það er algert möst..!
knús R
22.12.2006 at 00:54
Ég er líka sammála Evu. Þetta átti auðvitað ekki að segja neitt um að hún væri slæm manneskja – alls ekki. Held að hún sé alveg búin að sanna að hún sé góð kona þrátt fyrir að hún sé ekki eðlileg að mínu mati
Puttarnir eru krosslagðir fyrir þig og tvær vinkonur sem þurfa að komast heim til sín. Verð því að vona að það verði flogið vestur, austur og norður…
Áfram góða veður!
Hugsa að það verði auðvelt fyrir mig að borða yfir mig – hef jú bulletproof afsökun fyrir því að borða of mikið
Hafðu það gott um jólin sömuleiðis mín kæra…