Archive for February, 2007

Brjóst, brjóst, læri, læri – tækifæri

Posted in Almennt on 27.02.2007 by Hafdís Ósk

Ég er loksins orðin gjaldgeng í ofurgelluklúbbinn, þ.e ég uppfylli eitt skilyrðið! Í fyrsta skipti á ævinni passa ég í brjóstahaldara sem er með D skálum. Reyndar ekki alveg í 32 D sem á að vera flottast en…Reyndar er ekki næstum eins skemmtilegt að vera með stór brjóst og ég hélt…

Annars er ég svona um það bil að drepast úr formi þessa dagana. Fékk mér göngutúr í gær og var alveg búin á því í bakinu og fótunum eftir það og í dag er ég með harðsperrur framan á fótleggjunum! Afskaplega hressandi að fá hálfgerða beinhimnubólgu af litlum göngutúr. Ég þarf greinilega að vera dugleg næstu 7 vikurnar svo að ég deyji ekki af því að rembast örlítið…

Einhverra hluta vegna tókst mér að kaupa 2 kjóla og 1 peysu þegar ég fór í Smáralind til að laga gleraugun mín og kaupa mér brjóstahaldara! Ljótu útstillingar í búðum sem villa manni sýn og eyða peningunum manns…Eins gott að Sveinbjörn er á sterkjum verkjastillandi lyfjum…

Sveinbjörn var í liðþófaaðgerð 2 á hægra hnéinu (2 á seinustu 6 mánuðum). Hann fór í aðgerð í október sem heppnaðist ekki nógu vel og því var hann sendur aftur til að taka meira af þófanum og freista þess að laga hann almennilega. Fyrir vikið er ég í hlutverki hjúkrunarkonu þessa dagana og stjana við rassgatið á fatlafólinu. Honum finnst það ljómandi gott og mun betra hlutskipti en að dekra við mig. Ég sé þetta þannig að hann fái febrúar og mars og ég apríl og hluta af maí áður en einhver lítill gaur fer að heimta alla okkar athygli!

Verkefnið er annars komið á fullt. Við erum að byrja að safna gögnum í þessar viku og stefnum að því að safna eins miklum gögnum og við getum í mars svo að við getum klárað að skrifa ritgerðina í apríl áður en stubbur mætir á svæðið. Ansi þétt skipulag en það yrði SVO gott ef það myndi haldast.

Annars skil ég ekki hvers vegna fólk finnur sig knúið til að tilkynna óléttum konum að þær séu feitar. Hefur fólk aldrei heyrt talað um tilfinningar, hormónabrengl og þunglyndi? Ég skil þetta alla vega ekki og prísa mig sæla fyrir að vera með harðan skráp…Ég hef þó ekkert sérstaklega gaman af því að heyra fullyrðingar um að ég sé frekar mikil miðað við meðgöngulengd, spurningar um hvort að ég sé alveg að fara að eiga nú eða samanburð við aðrar óléttar konur. Fólk ræður auðvitað sjálft hvað það gerir en mér finnst þetta álíka viðeigandi og að tilkynna fólki að það sé feitt nú eða miða það við einhvern annan sem er svo miklu mjórri og betri! Ég vil þó árétta að ég er ekki að drepast úr biturleika, vildi bara benda á að þetta flokkast undir ókurteisi í minni orðabók!

Annars er bara allt við sama heygarðshornið…

Foreldranámskeið

Posted in Almennt on 21.02.2007 by Hafdís Ósk

Við skötuhjúin skráðum okkur á svokallað foreldranámskeið. Þau herlegheit kostuðu auðvitað fullt af peningum eins og allt sem tengist barnsburði og börnum. Afar hressandi að reyna að græða á hamingjusömum pörum sem vilja allt fyrir barnið sitt gera og stefna að því að standa sig eins vel og mögulegt er!

Námskeiðið byrjaði á mánudaginn og verður 4 tímar í heildina, hver tími er síðan 2 klst. Við lærðum auðvitað helling í fyrsta tímanum og slatta í dag. Búið að fræða okkur um allt sem tengist meðgöngu og fæðingunni sjálfri, þar með talið stellingar sem er best að vera í þegar kemur að útvíkkun og rembing – afar skemmtilegt. Sömuleiðis fæðingarstellingar og alls kyns lyf og lyfleysur sem eiga að létta konunni lífið á meðan ósköpunum stendur. Ég veit ekki alveg hvar ég stend í þessu öllu. Ljósmæður gera auðvitað í því að predika um kosti þess að eiga á sem náttúrulegastan máta. Ég er auðvitað alveg sammála því þar sem ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af of mikilli lyfjanotkun. Þorði m.a aldrei að taka fæðubótarefni á meðan ég var að æfa þar sem ég óttaðist að eitthvað efni á bannlista væri í þeim og að ég yrði tekin á lyfjaprófi! Afar heimskulegt en mér fannst það þó réttlætanlegt! Á hinn bóginn er ég algjör kjúklingur þegar kemur að sársauka og hef verið kölluð óhemja af móður minni í mörg ár. Það var til dæmis heil serímónía að taka af mér plástur þegar ég var lítil þar sem mér fannst það svo hrikalega vont! Jább, ég sagði að ég væri kjúklingur!

Síðan þá hef ég reyndar gengið í gegnum minn skammt af meiðslum og leiðindum og held því að ég sé betur í stakk búin undir þetta en þegar ég var 10 ára. Fyrir vikið sannfæri ég sjálfa mig um að ég sé nagli og eigi eftir að rúlla þessu upp. Ég veit líka að hugarfarið kemur manni langa leið og ætla því ekki að stressa mig á einhverju sem ég get ekki breytt – það hjálpar mér auðvitað ekki neitt. Þetta er bara eitthvað sem ég tek á þegar það kemur!

Ég sá síðan 2 myndbönd af fæðingum og það hristi ekki jafn mikið upp í mér og hélt. Var soldið hrædd um að ég myndi missa móðinn og komast aftur í 12-ára gírinn minn þegar ég hét því að eignast aldrei börn þar sem ég var svo viss um að þetta væri svo svakalega vont að ég gæti þetta aldrei! Þegar ég horfði á myndbandið í dag fannst mér hins vegar svo merkilegt þegar barnið kom út og mamman fékk það í fangið að ég fékk svakalega ánægjutilfinningu og þurfti eiginlega bara að vanda mig við að missa mig ekki í tilfinninganæmi í stofu fullri af óléttu fólki! Fyrir vikið held ég mig bara við fyrri ákvörðun mína um að þetta verði bara eitthvað sem ég tek á þegar þar að kemur og að ég geti þetta eins og aðrir! Spurning um að taka bara keppnisskapið og gömlu góðu þrjóskuna á þetta…

En aftur að námskeiðinu. Þetta ætti í rauninni að heita fæðingarnámskeið en ekki foreldranámskeið þar sem maður er jú bara að fræðast um gang fæðingar og hvenær sé tímabært að gera þetta og hitt! Mér finnst reyndar mjög ganglegt að vita hvað eigi að líða langur tími á milli hríða áður en ég bruna á fæðingardeildina – ég hafði ekki hugmynd um það fyrir. Mér finnst líka gott að vita hvaða lyf eru í boði og hvaða áhrif þau hafa á barnið. Og svo er auðvitað gott að sjá hvað hjálpar til við að lina sársaukann og fínt að geta æft sig heima áður en kemur að þessu! Mér finnst þetta þó ekki vera 12000 króna virði…langt í frá! Kannski er ég orðin nískupúki…

Annars er bara gott að frétta og allir hressir!

Þangað til næst, verið þið hress, ekkert stress og bless…

Hömlur

Posted in Almennt on 16.02.2007 by Hafdís Ósk

Ég á það til að vera soldið ofvirk!

Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að hafa nóg að gera og helst eins marga hluti og hægt er í einu! Þá líður mér ofsalega vel og þannig vinn ég líka yfirleitt best! Síðan ég varð ólétt hef ég soldið fundið fyrir því að ég get ekki gert allt sem ég myndi vilja gera – og eiginlega ekki neitt af því í einu! Hingað til hef ég verið afskaplega þolinmóð í þessum efnum og reynt eftir fremsta megni að hegða mér skynsamlega! Það hefur þó komið upp á að ég ofreyni mig örlítið. Fram til þess hefur það þó komið sjaldnar fyrir en ég hefði talið í byrjun. Ég fór þó nokkuð vel yfir strikið fyrir 2 vikum síðan. Þá tókum við Sveinbjörn til í bílskúrnum, töldum dósir og flöskur, fórum í búð, hann ryksugaði síðan íbúðina og ég skúraði. Ég þreif baðið og öll borð og setti kerti í alla 1000 kertastjakana sem ég á. Síðan eldaði ég og gerði mig sæta! Þegar ég kom úr sturtu var ég gjörsamlega búin á því. Það var ekki til orkudropi í líkamanum á mér! Eftir að hafa svolgrað í mig smá vatni og slatta af Gatorade var ég hins vegar til í tuskið á ný og hélt því uppi fjörinu í matarboðinu!

Í morgun ákvað ég svo að taka soldið til í þessari ruslageymslu sem íbúðin okkar er orðin! Vanalega get ég gert slíkt í einni atrennu en í morgun fann ég að það myndi ekki vera ýkja sniðugt. Þar sem ég varð að hvíla mig aðeins á milli verka ákvað ég bara að plögga einum Grey´s Anatomy þætti í tækið og taka meira til þegar hann væri búinn! Þar sem ég var enn svo þreytt eftir einn þátt, fannst mér upplagt að horfa bara á annan! Hver veit hvernig þetta endar hjá mér?

Ég giska á að ég mæti í náttföstunum, náttsloppnum og með skítugt hár á árshátíðina í kvöld þar sem ég náði ekki að slökkva á Greys´áður en ég þurfti að leggja af stað….

Þannig að ef þið viljið sjá ólétta konu í bleikum náttfötum og slopp á árshátíð – þá er Skíðaskálinn í Hveradölum algjörlega málið!

Sjáumst…

Ofurheyrn og annað fjör

Posted in Almennt on 15.02.2007 by Hafdís Ósk

Við skötuhjúin erum gædd þeirri náðargáfu að vera með ofurheyrn! Þessi náðargáfa kemur þó ekki fram í daglegu tali heldur frekar þegar kemur að hljóðum sem eiga EKKI að heyrast! Þar af leiðandi heyrum við skrölt í bílnum okkar, smell í sjálfskiptingunni, suð í sjónvarpinu, glamur í lögnum, vatn renna og svo mætti lengi telja. Þessi gáfa er helst til hvimleit þegar við erum að fara að sofa þar sem nánast allir lagnir hússins eru í veggnum sem rúmið okkar stendur upp við! Fyrir vikið erum við afar meðvituð um það þegar fólkið á efri hæðinni er að þvo sér um hendur, fara í sturtu, þvo upp og annað sem krefst þess að láta vatnið renna. Því miður heyrum við líka í þeim þegar þau fara á klósettið þar sem bæði salerni efri hæðarinnar eru staðsett fyrir ofan höfuðið á okkur. Fyrir vikið getum við greint hvort að viðkomandi var að pissa eða eitthvað þaðan af verra og hvort að sá hinn sami sturtaði niður og þvoði sér um hendur! Ég get ekki séð neinn kost í þessu í fljótu bragði en ef ég bregð mér í gervi fröken Pollýönnu er áreiðanlega hægt að benda á að með því að heyra þetta veit ég að ég er ekki heyrnarlaus!

Skröltið í bílnum og smellirnir í sjálfskiptingunni voru hins vegar lagaðir eftir að við bárum fram formlega kvörtun.

Íbúar efri hæðarinnar reyna eftir fremsta megni að sturta ekki mikið niður eftir að klukkan slær 12 á miðnætti og reyna að hemja sturtuferðir um svipað leyti! Að sama skapi hafa þau verið beðin um að reyna að setja klósettpappír ofan í skálina áður en eitthvað stórt er framleitt þar svo að við njótum ekki beinnar lýsingar af þeim verknaði!

Annars er bara allt í góðu standi…

Blaut, blautari, blautust

Posted in Almennt on 14.02.2007 by Hafdís Ósk

Ég ætlaði að þvo bílinn rétt í þessu. Nýji fíni bíllinn okkar var orðinn leiðinlega skítugur og hann er ekki næstum eins flottur þegar hann er skítugur. Eins og fínni óléttri frú sæmir skutlaðist ég í Sóltúnið og ætlaði glöð í hjarta að keyra í gegnum sjálfvirku stöðina sem er þar staðsett! Röðin þar var hins vegar stærri en maginn á mér og því ákvað ég að þrátt fyrir gríðarlega þolinmæði væri röð af því tagi ekki fyrir fólk eins og mig. Enda sá ég við nánari athugun að meginþorri biðraðarinnar samanstóð af fólkinu sem býr á elliheimilinu við hliðina og hefur ekkert betra að gera en að hlusta á útvarpið í bílnum nema kannski að hlusta á útvarpið heima hjá sér! Ég ákvað því að vera töffari og skellti mér á bílaplanið hjá Shell. Ég veit ekki alveg hvernig mér datt það í hug þar sem ég á að hafa þekkt sjálfa mig í 25 ár og gott betur en það! Þetta endaði auðvitað á því að ég þvoði sjálfa mig betur en bílinn! Ég var alla vega rennandi blaut og fín, með nýpússuð gleraugu og blaut upp að hnjám þegar ég var búin með herlegheitin. Auðvitað var ekki verandi í kápunni minni heldur þar sem ég skvetti nánast öllu vatni bæjarins á hana! Hún er því bara kát í skottinu á bílnum. Það var hins vegar öllu verra með buxurnar mínar sem eru ansi blautar og verða það væntanlega eitthvað fram eftir degi! En ég get hrósað happi yfir því að vera í víðum buxum í stað þröngra – heppilegt!

Næst hlusta ég frekar á góða kallinn á öxlinni mér sem veit að það á ekki að hleypa fólki eins og mér nálægt slöngum og fer bara í gegnum sjálfvirka stöð. Nú eða dressa mig sérstaklega upp til að þrífa bílinn…Svo er nokkuð ljóst að ég er ekki vinsælasta konan þegar kemur að bílaþvotti þar sem ég skvetti örugglega dálitlum slatta á fólkið í kringum mig! Ég var heldur ekki parhrifin af skutbílnum mínum þegar gæji á Austin Mini renndi inn á planið – honum tókst nefnilega að þvo allan bílinn sinn á meðan ég kláraði eina hlið af fjórum!

Stundum er lífið ekki sanngjarnt…

En ég get huggað mig við að hann kemur ekki 6 borðstofustólum inn í sinn bíl…

Það sem ekki má!

Posted in Almennt on 12.02.2007 by Hafdís Ósk

Ég hef alla tíð þótt soldið öfugsnúin og á það til að gera hluti akkúrat öfugt við það sem mér er ráðlagt að gera. Þetta kemur reyndar sérstaklega fyrir þegar tengdamóðir mín tilvonandi er að skipa mér eitthvað fyrir, þá á ég það til að gera hlutinn ekki eins og hún bað mig um heldur finn ég mína eigin leið. Ég á það nefnilega til að taka ekkert afskaplega vel við skipunum annarra, þó er það misjafnt eftir því hver flytur boðin!

Annað sem ég hef stundum glímt við er að langa alltaf að gera hluti sem ég má ekki gera hverju sinni – nú eða get einhverra hluta vegna ekki gert. Þessa dagana langar mig til dæmis alveg svakalega að fara út að hlaupa, sem er nokkuð sem mér finnst mjög skemmtilegt en get ómögulega gert. Mér finnst göngutúrar bara ekki neitt skemmtilegir miðað við hversu skemmtilegt mér þykir að fara út að hlaupa. Mér finnst reyndar skemmtilegra að gera hvoru tveggja ef ég er með góðan félagsskap! Á Frjálsíþróttamótinu um helgina langaði mig hins vegar rosalega til að keppa, en það er tilfinning sem ég hef ekki fundið fyrir í háa herrans tíð. Datt meira að segja í hug að ég hefði nú getað haldið mér í góðu formi á meðgöngunni og jafnvel keppt á mótinu! Hugsa að ég hefði fyrst litið vel út í keppnisbúningnum með bumbuna út í loftið!

Þó er eitt sem er stranglega bannað á meðgöngu sem mig hefur ekki langað að gera, ég hef ekki haft neinn áhuga á áfengi síðan ég varð ólétt. Svona fyrir utan flöskubjórinn sem ég lét Sveinbjörn drekka í upphafi meðgöngu þar sem hann kallaði á mig inn í ísskáp – og mér finnst bjór ekki einu sinni góður! Þess utan hef ég ekki haft neinn áhuga á drykkju. Það kemur fólki kannski ekkert mikið á óvart þar sem ég hef seint talist til hóps ofdrykkjufólks!

Annars erum við skötuhjúin að skoða mynbandsupptökuvélar þessa stundina. Við höfum að sjálfsögðu ekkert vit á slíkum græjum en með aðstoð Sigurjóns myndavélasénís  fundum við síðu þar sem notendur og spekingar tjá skoðanir sínar á hinni og þessari gerðinni og að auki er gerður verðsamanburður! Þetta er auðvitað draumasíða fyrir mann eins og Sveinbjörn sem nýtur þess að gera verðsamanburði og velta svona hlutum fyrir sér fram og tilbaka…Ég hugsa því að ákvörðun verði tekin einhvern tímann fyrir jól…En eins og staðan er í dag er ein vél að heilla okkur umfram aðrar og miðað við vélarnar í næstu sætum er hún talsvert ódýrari svo að kannski er þetta bara of gott til að vera satt!

Annars langar mig að deila því með ykkur hversu skemmtilegt það er að vera með hlaupasting heilu og hálfu dagana – sérstaklega þar sem ég er ekki að gera neitt annað en að sitja! En þetta er víst eðlilegur fylgihlutur bumbunnar, þar sem liðböndin mín eru ekkert á því að linast neitt! Já, stundum er erfitt að vera þrjóskur að innan sem utan…

Sögur úr sveitinni

Posted in Almennt on 08.02.2007 by Hafdís Ósk

Í sakleysi mínu var ég að leita að brjóstagjafapúða á netinu í gær. Í kjölfarið sá ég auðvitað nokkra skemmtilega og jafnframt spennandi hluti sem eru til fyrir lítil börn í dag og eitt af því sem vakti hvað mestan áhuga hjá mér var koppur með spiladós! Koppurinn spilar sem sagt lag þegar barnið er búið að pissa og/eða kúka! Mér fannst þetta ansi sniðugt þar sem að ég átti margar af mínu notalegustu stundum á koppnum í gamla daga og gat hæglega setið á koppnum tímunum saman og leikið mér og lesið bækur! Ef að spiladós hefði spilað lag fyrir mig hefði ég örugglega aldrei farið af koppnum. Hvað þá ef koppurinn hefði litið út eins og hestur eða stóll eins og tíðkast í dag…Ég hafði nefnilega afskaplega gaman af því að vera á koppnum og fannst verulega notalegt að sitja þar og dunda mér. Það sakaði auðvitað ekki að veggurinn sem var fyrir aftan mig var með heitu röri í og það jók enn á ánægjuna! Þegar ég hafði lokið mér af stóð ég voða hróðug upp, klappaði fyrir sjálfri mér og sagði ,,vei, dúleg”! Síðan settist ég bara kát niður aftur og hélt áfram að leika mér!

Samkvæmt foreldrum mínum var ég afskaplega yndisleg sem barn en það eltist víst af mér með aldrinum – því miður. Ég viðurkenni að ég væri alveg til í eins og eitt stykki af rólegu barni, það verður reyndar að leyfa mér að leika við það eins og mér sýnist og hafa þolinmæði í að skutlast með mér hingað og þangað…Annars er alveg týpískt að ég fái skaðræðisdýr eins og systur mína sem var ekki kyrr í nema 1 sekúndu og var horfin ef maður leit af henni. Hún fær síðan örugglega ofsalega þægilegt barn þegar þar að kemur og þarf ekkert að hafa fyrir því…

En þetta skýrist víst fyrr en ég held…

Góðar stundir,

Við sama heygarðshornið

Posted in Almennt on 07.02.2007 by Hafdís Ósk

Lífið gengur sinn vanagang þessa dagana. Ég vakna iðulega á sama tíma og fer á svipuðum tíma upp í skóla. Þar dunda ég mér við að lesa misskemmtilegar heimildir til að undirbúa mig fyrir verkefnið sem ég á að skila í lok þessarar annar! Það hefur gengið ágætlega hingað til og eftir fund með leiðbeinendunum okkar í morgun er ljóst að allt fer að fara á fullt í næstu viku! Þá byrjar vonandi gagnasöfnun í rólegheitunum og svo er líklegt að hún aukist næstu vikurnar á eftir! Þetta er s.s allt í réttum farvegi!

Ég viðurkenni að sú staðreynd að barnið sé væntanlegt eftir 10 vikur er mér alltaf ofarlega í huga, það er soldið erfitt að sjá hvort að þetta náist allt fyrir þann tíma en stefnan er sett á það eins og staðan er í dag! Markmið nr.1 verður að klára gagnasöfnun og ná að slá þau inn í þar til gert kerfi áður en þessi elska ákveður að mæta á svæðið, samkvæmt Sigurjóni stórvini mínum verður það eigi síðar en 19.apríl og í raun helst ekki fyrir þann dag heldur! Það er auðvitað allt í lagi að ritgerðin verði ekki komin í sitt endanlega form áður en það gerist. Ég hlýt að geta litið af þessari elsku í smá tíma til að rita nokkur vel valin orð!

Sveinbjörn er líka kominn á fullt í sínu verkefni og formleg keppni okkar á milli er hafin! Hann fékk auðvitað smá forskot þar sem hans verkefni er jú helmingi stærra en mitt!

Annars er það helst í fréttum að borðstofustólar eru komnir í hús og prýða núna borðstofuna okkur til mikillar ánægju! Þeir eru náttúrulega einstaklega fallegir og vel valdir og svo sakar auðvitað ekki fyrir hversu þægilegt er að sitja í þeim! Þeir hafa bæði verið vígðir í matarboði og sömuleiðis á spilakvöldi og stóðu sig eins og hetjur á meðan þeim atburðum stóð! Áhugasamir geta fengið skoðunarferðir á milli 20-21 á þriðjudags og miðvikudagskvöldum, eða með því að panta tíma!

Við mæðginin erum hins vegar orðin svöng og hyggjumst bæta úr því!

Góðar stundir,

Skilningsleysi

Posted in Almennt on 06.02.2007 by Hafdís Ósk

Það er margt í þessum heimi sem ég skil ekki og kem örugglega aldrei til með að skilja til fullnustu, þó svo að ég leggi mig alla fram og viska mín aukist með hverju árinu sem líður!

Eitt af því sem ég held að falli í þennan flokk eru femínistar! Ég hef aldrei alveg skilið hvernig það sé betra að konur séu körlum æðri heldur en staðan er í dag! Ég er mikill talsmaður jafnréttis og finnst að það eigi að dæma fólk út frá sömu forsendum, ekki út frá kyni! Mér finnst samt ekki að ef að tveir einstaklingar eru jafn hæfir og eru af sitthvoru kyninu að konan eigi að fá starfið af þeirri sök einni að hún er kona! Mér finnst að það eigi alltaf að velja hæfasta manninn eða konuna í starfið og að sá aðili eigi að fá starfið sökum hæfileika sinna en ekki vegna þess að hann/hún er af ákveðnu kyni!

Verkfræðistofur hafa undanfarið verið að leiðrétta kynjahlutfallið hjá sér með því að ráða eingöngu til starfa konur! Fyrir vikið fá konur í auknum mæli starf á verkfræðistofum sem er auðvitað gott og blessað en á móti kemur að karlarnir fá síður vinnu og þurfa því oft á tíðum að leita á önnur mið! Ástæðan fyrir því að konur eru í minnihluta á verkfræðistofum er sú að þær voru síður í verkfræði fyrir nokkrum árum. Núna er öldin hins vegar önnur þar sem kynjahlutfallið er mjög svipað. Konur eru hins vegar í meirihluta í flestum öðrum deildum háskólans! Mér finnst vera ójafnrétti að ráða nánast bara inn konur á verkfræðistofur og í önnur verkfræðitengd störf þar sem karlar hafi ríkt þar fyrr á tíðum. Hvernig verður staðan þá eftir 20 ár?

Ég sá í Fréttablaðinu í dag að Femínistar ætla að sniðganga ákveðin fyrirtæki á næstunni þangað til þau breyta háttum sínum. Þar á meðal er DV en femínistar ætla að sniðganga það blað sökum auglýsinga sem blaðið hefur leyft Geira í Goldfinger (eða hvað sem hann nú heitir) að auglýsa staðinn sinn á síðum blaðsins! Geiri borgar væntanlega fyrir auglýsinguna eins og aðrir og mér finnst DV ekki vera að svíkja konur fyrir að neita ekki að taka við auglýsingu frá fyrirtæki út í bæ! Ég les reyndar aldrei DV og hef því ekki séð þessar auglýsingar svo að þetta er birt með þeim fyrirvara að þær séu ekki þeim mun ósmekklegri!

Það að sniðganga fyrirtæki skil ég alla vega ekki alveg! Ég vel reyndar oft frekar eitt fyrirtæki yfir annað en það er einungis af þeim sökum að mér líkar að einhverju leyti betur að versla við það fyrirtæki en sambærileg! Ég versla til dæmis aðallega við Atlantsolíu og hef gert í ansi langan tíma, ástæðurnar fyrir því eru nokkrar en aðalástæðan er kannski sú að góðvinur minni stjórnar því fyrirtæki og ég vil leggja mitt af mörkum til að það verk hans gangi vel! Mér finnst líka ágætt að hvíla aðeins risana þrjá á olíumarkaði þar sem þeir fóru ansi illa að ráði sínu hér um árið og því fínt að fá smá ferskan blæ á markað!

En ég er komin svo langt út fyrir efnið að það hálfa væri sko hellingur…

Ætla því að halda áfram að kynna mér heimildirnar mínar skemmtilegu!

Í fréttum er þetta helst

Posted in Almennt on 04.02.2007 by Hafdís Ósk

Við Sveinbjörn ræðum reglulega það sem hæst ber í fréttum hverju sinni. Við erum vanalega sammála þegar kemur að skoðunum á fréttum og hversu ósammála við erum sumum ræðumönnum. Í morgun rak ég augun í frétt í Fréttablaðinu sem sagði frá því að Dómarafélag Íslands hefði gert athugasemd við frétt í Morgunblaðinu um helgina. Þeir töldu að myndbirtingar af þeim dómurum sem styttu dóm yfir kynferðisafbrotamanni úr 2 árum í 1, 5 ár ættu ekki við nein rök að styðjast og að sú frétt flokkaðist einna helst undir æsifréttamennsku. Þessari ályktun dómarafélagsins er ég ALLS EKKI sammála. Mér finnst bara allt í lagi að birta myndir af þeim dómurum sem eru að dæma hverju sinni, og að sama skapi finnst mér gott og blessað að skrifa nöfnin þeirra. Þeir vinna frekar opinbert starf og ákvarðanir þeirra í vinnunni snerta alla þjóðina. Það skiptir okkur jú máli hvernig tekið er á málefnum sem koma upp í þjóðfélaginu, hversu þungir dómar falla og hvernig þeir taka á erfiðum málum.

Mér finnst í raun jafn eðlilegt að birta myndir af dómurum sem dæma og að birta myndir af ráðherrum og forsvarsmönnum fyrirtækja. Mér finnst alla vega alveg eðlilegt að mynd af þeim sé yfir ákvörðunum þeirra. Fín hvatning fyrir svona dómara að almenningur viti hver er að dæma glæpamenn í fangelsi og hversu þunga dóma þeir fá. Mér finnst auðvitað fáránlegt að maður sem brýtur gegn ungum börnum fái 1.5 ár! Sérstaklega í ljósi þess að hann verður laus innan árs…Ég hélt að það hefði sýnt sig að þessir menn eru það sjúkir að það þýðir ekkert að sleppa þeim, þeir þurfa verulega meðhöndlun áður en þeir fá aftur tækifæri út í samfélaginu!

En ég ætla að halda áfram að læra svo að bakið á mér verði ekki alþakið svipuförum á morgun…

Áfram…

Posted in Almennt on 01.02.2007 by Hafdís Ósk

Ég gleymdi auðvitað að taka fram í pistli mínum hér að neðan að sökum mikillar tapsárni (sem ég hef sjaldan upplifað áður), ætla ég að halda með Pólverjum og Frökkum í keppninni um 1.-4. sætið! Ég vona að Frakkar komi til með að rúlla yfir Þjóðverja sem hafa að mínu mati fengið hóp fólks upp á móti sér með leiðinlegum karakter í leik gegn okkar mönnum. Mér leiðst lið sem púa af litlum sem engum sökum og hvað þá þegar einhver gerir eitthvað óvart! Með þessu sýndu Þjóðverjar sinn innri mann og fá því ekkert nema skít og skammir frá mér!

Pólverjar eru ekki ofarlega á listanum yfir þjóðir sem mér líkar vel við í kjölfar þessa móts en þó eru þeir langtum ofar en þeir sem áður töldust til frænda vorra!

Því segi ég – ÁFRAM PÓLLAND og ÁFRAM FRAKKLAND!

Ég vona bara að Frakkar rústi þessu…