Vildi bara aðeins láta heyra í mér!
Ég er s.s ennþá ólétt og ennþá ansi spræk bara! Náði algjörlega að hlaða batteríin um helgina þegar smá hlé varð á verkefnaskrifum sökum verkefnaleysis! Við stöllurnar erum nánast búnar með allt sem við getum klárað eins og staðan í dag og getum því ekkert gert neitt nema fínpússað og skeggrætt þangað til að gögnin fara að streyma í hús! Við fórum þó á fund í gær og svo rak ég aðeins á eftir þessu í dag svo að þetta fer vonandi að komast á rétt ról hvað og hvenær!
Þar sem ég er ólétt á ég að eyða þessu síðustu og að ég hef heyrt verstu dögum í að gera ekki neitt með tærnar upp í loft. Þar sem það hefur aldrei átt við mig hef ég tekið ansi virka hvíld og finnst betra að vera með tærnar upp í loft í lóðréttri stellingu frekar en þeirri láréttu. Fyrir vikið ég er auðvitað búin að ganga frá inni í svefnherbergi. Snéri því öllu við um helgina og ákvað hvernig ég vildi láta það líta út. Greyið Sveinbjörn fær auðvitað engu ráðið frekar en fyrri daginn – en honum þykir það svo sem ekkert agalegt. Ég er líka búin að taka til í geymslunni og raða aðeins í skápa. Þeir litu svo ofsalega illa út og það segir sig sjálft að nýfætt barn tekur eftir subbuskap sem slíkum! Sveinbjörn er búinn að reyna að skamma mig en það bítur ekkert á mig. Honum fannst ég til dæmis ekki gáfuleg í gær þegar ég var búin að henda kössum fram á gang og var að henda út úr búrinu. Hann tók herlegheitin upp á myndband og finnst ég vera voðalega erfið ólétt kona! Ég hef auðvitað aldrei flokkast undir að vera venjuleg og því gæti ég ómögulega legið í leti í margar vikur. Enda tel ég líklegt að konur sem eiga börn fyrir geti ekki leyft sér slíkan munað og því sé ég ekkert að storka örlögunum með mínu atferli! Ég virðist alla vega ekki vera að gera mér neitt illt þar sem ég er ennþá mjög hraust og líður vel!
Seinustu daga hef ég síðan notað í að heimsækja skemmtilegt fólk sem ég veit ekki hvenær ég hef tækifæri til að sækja heim aftur. Ansi gott að eiga smá frí frá verkefnagerð og geta leyft sér slíkan lúxus. Ég einbeitt mér að barnafólkinu í mínu lífi og hef því séð ansi mikið af rúsínurassgötum undanfarið og auðvitað æft mig soldið í leiðinni – ekki veitir mér af!
Í dag fór ég svo í verslunarferð og keypti seinustu hlutina (að ég held) svo að núna ætti allt að vera klárt. Þarf bara að koma þeim hlutum fyrir og þá er ég bara orðin góð! Reikna reyndar með að taka fataskápinn í gegn áður en yfir líkur en það er bara hressandi!
Rest snýst um fótbolta svo að þeir sem ekki hafa áhuga á honum geta hætt að lesa hér…
Ég horfði að sjálfsögðu á LEIKINN í gær. Var ansi stressuð fyrirfram en grunaði þó að mínir menn myndi taka þetta svona 2-0. Sú varð ekki raunin þar sem þeir ákváðu að skora bara 7 mörk á móti 1 marki Romamanna. Ég hafði ekki undan að horfa á mörkin þar sem ég var auðvitað að vesenast aðeins á meðan leiknum stóð! Þetta var bara full time job að skoða mörk enda var nánast skorað mark á 10 mínútna fresti! Ansi góður leikur og fínt fyrir sjálfsálitið! Ég var auðvitað ekki mjög hress eftir helgina svo að þetta lyfti mér aðeins upp (mínir menn töpuðu s.s á móti Portsmouth í deildinni um helgina). Staðan fyrir væntanlega fæðingu er þó ansi sterk. Manchester United er að ég held 18 stigum á undan Liverpool og líklega ekki nema 2 vikur í kútinn. Pabbi fær því líklega að kaupa fallegri búninginn handa stráknum og í framhaldinu getur Sveinbjörn haldið brennuna sem hann er búinn að vera að bíða eftir að halda. Ég veit reyndar ekki hvað pabbi verður sáttur með að hann brenni Manchesterbúninginn. Fyrir þá sem ekki vita er veðmál í gangi á milli Sveinbjörns og pabba sem felst í því að pabbi átti að kaupa félagsbúning þess liðs (Man.Utd eða Liverpool) sem yrði ofar í deildinni daginn sem prinsinn fæðist. Við pabbi erum búin að vera borubrött í ansi langan tíma…
En ég ætla að segja þetta gott að sinni, verið þið sæl!