Gleðilega páska!

Þá er páskafríið runnið upp. Ég hugsa að ég finni nú ekkert gríðarlega mikið fyrir því þar sem ba ritgerðir fara yfirleitt ekki í frí. Ég er heldur ekki í neinu fagi í skólanum núna og er því ekki að fá frí frá neinu. Reyndar ákváðum við Eva að vera aðeins rólegri um páskana en við höfum hingað til verið og því hyggst ég nýta páskana að einhverju leyti til að safna kröftum fyrir komandi átök – bæði í formi gagnasöfnunar og útpungunar!

Í gær tókum við skötuhjúin okkur til og fórum í smá hreiðurgerð. Ég raðaði krúttlegum fötum í skiptikommóðu og strauk þeim mikið á meðan því stóð. Síðan festum við hilluna á borðið svo að núna er hægt að skipta um bleyju ef svo ber undir. Sveinbjörn setti saman eitt stykki fataskáp svo að við höfum pláss undir aukameðlim sem kemur væntanlega til með að eiga fleiri föt en við bæði til samans. Svo gerðum við langþráða hreingerninu, skúruðum, skrúbbuðum og bónuðum. Það var afskaplega notaleg tilfinning og mér leið svo miklu betur á eftir. Við tókum líka svefnherbergið okkar í gegn svo að núna fer allt að vera tilbúið fyrir komu krónprinsins. Núna eigum við bara eftir að græja rúmið og kaupa nokkra smáhluti og þá er þetta bara allt komið! Það er voða gott að vera búin að þessu þar sem ég hugsa að við höfum ekki tíma til að gera þetta þegar nær dregur.

Eva ritgerðarfélagi var síðan svo almennileg að lána mér seríu 2 og 3 af 24 og því þarf ég að beita mig hörðu til að ná að lesa það sem ég ætla að lesa um helgina! En ég hef alltaf verið þekkt fyrir að vera nagli svo að ég efast ekkert um staðfestu mína!

Bergur og Bjöggi eru annars töffarar helgarinnar. Áður en þessar elskur skelltu sér í æfingabúðir til Spánar redduðu þeir Kólus páskaeggi handa okkur skötuhjúunum. Ég bíð því ansi spennt eftir að sunnudagurinn renni upp svo að ég get smakkað þetta laumu páskaegg sem ekki er hægt að fá nema með óhefðbundnum aðferðum. Ég er búin að reyna að sannfæra Sveinbjörn um að leyfa mér að smakka það en hann er harður strákurinn og segir að ég megi ekki nálgast það fyrr en á sunnudaginn! En mikið hlakka ég til…

En ég ætla að lesa eins og eina grein og sannfæra Sveinbjörn svo um að horfa á 24 með mér ;)

Góða helgi

8 Responses to “Gleðilega páska!”

  1. Bjössi Arngríms Says:

    Ég keypti mér Kólus páskaegg 2003 og það er fullt af nammi en súkkulaðið í egginu sjálfu er ekki eins gott og hjá Nóa/Síríusi.

    Annars ungar þú út en maður pungar út fyrir einhverju s.s. einu stykki Kólus páskaeggi 2003.

  2. Já, ég veit :) Mér finnst bara svo miklu fínna að punga einhverju út ;)
    Mér finnst nammið hvort eð er yfirleitt betra en eggið sjálft…
    Reyndar langar mig líka í Góu lakkrísegg en ég hugsa að þetta HUGE kólus egg ætti að duga okkur!

  3. Gunnhildur Says:

    mmm páskaegg.. mér fannst þetta kólus-egg ekkert spes (fyrir utan nammið innan í). Í ár fæ ég nr 3 frá Nóa sem ég er nú reyndar pínu svekkt yfir því ég fæ alltaf egg nr 4! – þó svo Bjössi hafi staðið sig vel í því að koma með páskaegg þá held ég að það hefði nú ekki drepið hann að hafa 200 g meira í pokanum sínum þegar hann kom.
    on the other hand, ætli það drepi mig nokkuð að éta aðeins minna páskaegg – get þá alltaf fengið mér af egginu hennar Arneyjar líka þar sem ég leyfi henni ekki enn að fá nammi (verður sí-erfiðara þó)

  4. Páskaegg eru góð! Og það drepur þig sko pottþétt ekki mjónan þín! Svo er súkkulaði gott fyrir heilann og þér veitir ekkert af því í öllum lærdómnum þínum!

    Minni á að ég reyndi að sannfæra Bjössa um að kaupa stærsta eggið handa þér…

    Og ég hugsa að ég verði jafn hörð og þú í nammileysinu. Krakkar eiga ekki að fá nammi fyrr en þau hafa vit á því að biðja um það sjálf…

  5. Ég tók forskot á sæluna og stútaði einu Nóa eggi númer 5 í gærkvöldi, enda hefur maður ekki gott af því að borða nema eitt egg á dag!
    Það var æði að hitta þig og fá að strjúka kúlunni um daginn – vá, hvað ég hlakka til að fá að strjúka litla manninum þegar hann lætur sjá sig, trúi bara ekki að þú sért búin að ná jafnlangt og ég náði og að hann geti bara farið að láta sjá sig hvenær sem er!!!

  6. Sveinbjörn er harður húsbóndi. Annars hefði ég örugglega látið freistast ;)
    Sammála því að það sé ekki gott að borða nema 1 á dag – held að 1 á dag komi skapinu í lag. Annars er ég svo lítill súkkulaðigrís að ég gæti ekki fyrir mitt litla líf klárað páskaegg nr.5 á einum degi. Þarf alveg heila viku í það að minnsta kosti og hef oftar en ekki þurft að láta pabba/mömmu nú eða Sveinbjörn draga mig að landi!

    Það var sömuleiðis gaman að hitta þig, gerum þetta alltof sjaldan og já, soldið skrýtið hvað það er stutt í fæðingu prinsins! ;)

  7. Bjössi Arngríms Says:

    Ég veit ekki í hvaða heimi Gunnhildur lifir en ég keypti handa henni páskaegg númer sex, og númer 3 handa krökkunum (og þar sem Arney fær ábyggilega ekki að borða sitt egg, fæ ég ábyggilega að borða hennar).

  8. Eins gott að þú leiðréttir þennan misskilning. Egg nr.6 er svo miklu betra en nr.3 ;)

Leave a Reply