Við Eva kláruðum merkan áfanga í okkar lífi rétt í þessu þegar seinasti punkturinn var settur í ritgerðina okkar og lokayfirlestur fór fram. Á morgun fara herlegheitin í prentsmiðju og svo skilum við ritgerðinni líklega af okkur á morgun eða hinn.
Það er soldið skrýtið að vera búinn að klára þennan áfanga þar sem við erum búnar að vera svo lengi að vinna í þessu. En GUÐ hvað það er gott að vera búin með þetta! YNDISLEG TILFINNING! Núna get ég farið að einbeita mér að því að hafa það gott með litla stráknum mínum, farið í göngutúra, lagt mig á daginn, gert fínt heima hjá mér, farið í heimsóknir og notið þess að gera ekki neitt! Lífið er yndislegt!
Núna er ég að njóta þess að horfa á sjónvarpið og hafa það gott svo að ég ætla að halda því áfram!
Heyri í ykkur seinna!