End of an era
Við Eva kláruðum merkan áfanga í okkar lífi rétt í þessu þegar seinasti punkturinn var settur í ritgerðina okkar og lokayfirlestur fór fram. Á morgun fara herlegheitin í prentsmiðju og svo skilum við ritgerðinni líklega af okkur á morgun eða hinn.
Það er soldið skrýtið að vera búinn að klára þennan áfanga þar sem við erum búnar að vera svo lengi að vinna í þessu. En GUÐ hvað það er gott að vera búin með þetta! YNDISLEG TILFINNING! Núna get ég farið að einbeita mér að því að hafa það gott með litla stráknum mínum, farið í göngutúra, lagt mig á daginn, gert fínt heima hjá mér, farið í heimsóknir og notið þess að gera ekki neitt! Lífið er yndislegt!
Núna er ég að njóta þess að horfa á sjónvarpið og hafa það gott svo að ég ætla að halda því áfram!
Heyri í ykkur seinna!
21.05.2007 at 22:08
innilega til hamingju með þetta skvís, alltaf gott að klára þessar lokaritgerðir..
21.05.2007 at 23:14
Til hamingju með þennan áfanga
Og enn meira til hamingju með soninn
Já, lífið er yndislegt.
22.05.2007 at 00:32
Til hamingju með þetta elskan!! – Nú getur haft það gott með litla krúttinu þínu.
Btw – ég er ekki með vinnu í sumar og ætla mér að eyða sem mestum tíma með fjölskyldu og vinum…og æfa eins og vitleysingur. Þú mátt semsagt búast við því að ég komi með þér í einhverja af þessum göngutúrum!
22.05.2007 at 07:31
Jei jei til lukku Hafdís sálfræðingur
TRÚI ÞVÍ sko vel að þér líði vel núna enda merkum áfanga náð.
22.05.2007 at 09:33
Til hamingju! Það er enginn smá sprettur á þér þessa dagana; eignast son, klára námið og ég veit ekki hvað og hvað. Þú mátt ekki flýta þér of mikið …. þú verður bara búinn með allt áður en þú nærð þrítugsaldrinum
Njóttu þess nú að slappa smá af, þú mátt svo búast við að ég láti heyra í mér á næstu dögum.
22.05.2007 at 10:09
Til hamingju
22.05.2007 at 11:05
Til hamingju með áfangann Háfdís.
Þvílíkur dugnaður í stelpunni.
22.05.2007 at 11:06
Til hamingju með skilin
22.05.2007 at 13:53
Innilega til hamingju
Vona að ég geti líka sagt frá því opinberlega í lok þessa árs að ég sé búin að skila BA verkefni í félagsfræði og heimspeki, úuuuuuu hvað ég hlakka til !!!!!!!!!
22.05.2007 at 15:15
Til lykke
22.05.2007 at 16:03
Til hamingju skvísur, verðum í bandi fyrir hitting áður en HH fer út ………!!
23.05.2007 at 03:51
Til Hamingju Skvís!! Get rétt ímyndað mér að þetta sé léttir:)
23.05.2007 at 12:00
Þakka ykkur fyrir! Þetta er sko yndisleg tilfinning og mikill léttir
Núna get ég loksins farið að vera full-time mom
23.05.2007 at 23:36
Til hamingju! Þú ert algjör snillingur.