Archive for June, 2007

Heyskapur og bruni – lokaþáttur

Posted in Almennt on 26.06.2007 by Hafdís Ósk

Það hefur margt á daga mína drifið síðan seinast var ritað á þessa blessuðu síðu. Ég var í fyrsta skipti ein með litla kútinn minn yfir nótt. Sú nótt var ekki mjög frábrugðin öðrum nóttum fyrir utan að Sveinbjörn var ekki sofandi við hliðina á mér á meðan ég þrælaði mér út. Annarri breytingu tók ég ekki eftir!

Við mæðginin eyddum svo helginni í góðu yfirlæti hjá foreldrum mínum. Á laugardaginn tókum við virkan þátt í garðtiltekt fjölskyldunnar þar sem allir nema sá stutti tóku þátt. Á eftir var garðurinn svona ljómandi fallegur og flottur. Sævar Daði svaf þennan dugnað þó alveg af sér og fannst alveg prýðilegt að sofa á meðan afi hans skar niður limgerðið og konurnar rökuðu og söfnuðu saman greinum. Ég klæddi mig í samræmi við veður þennan dag og var í sumarlegum kjól og stuttum buxum. Allan daginn dundaði ég mér við að tékka á húðinni minni til að vera alveg viss um að hún væri góð þar sem foreldrar mínir bjuggu ekki svo vel að eiga til sólarvörn. Þegar ég kom inn um kvöldið tók ég eftir því að ég var VEL rauð á bringunni og á upphandleggjunum. Þessi roði versnaði bara þegar leið á kvöldið og enn þann dag í dag loðir þessi uppáhalds litur minn við bringuna mína en upphandleggirnir hafa snarskánað. Ég er yfirleitt ofsalega skynsöm þegar kemur að sólinni og er því vel svekkt yfir þessari niðurstöðu. Þetta þýðir líka að ég þarf að vera vel klædd næstu daga í stað þess að vera léttklædd í góða veðrinu. Ekki skemmtilegt! Svo er ekki gott að vera með auma bringu á meðan brjóstagjöf stendur þar sem Sævar Daði á það til að strjúka mér á meðan henni stendur og það er ekki gott fyrir auma húð!

Þessa dagana er lokaþáttur í nánast öllum þáttaröðum sem við erum að horfa á og því er útlit fyrir að við höfum ekkert að gera á kvöldin í sumar og því er eins gott að fólk verði duglegt að heimsækja okkur! Nema eitthvað nýtt og spennandi fari að byrja…So you think you can dance kvöld eru þó alla föstudaga og laugardaga og þá er sko kátt í höllinni! Allir velkomnir!

Í gær var síðan heyskapur í Hléskógum. Það er ekki hægt að kalla slátt á garðinum neitt annað þar sem garðurinn er HUGE og því er frekar verið að heyja en að slá. Ég rakaði fullt, fullt og hlustaði þar á milli eftir syni mínum. Seinna starfið var frekar krefjandi þar sem það er líka verið að vinna í götunni og akkúrat í gær voru þeir að pússa eitthvað drasl með tilheyrandi hávaða og látum. Það var því ómögulegt að heyra barnsgrát innan um sláttuvélanið og lætin í þeim!

En það á að vera úti þegar það er svona gott veður svo að ég ætla að drífa fjölskylduna með mér!

Þangað til næst – ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera…

Tár á hvörmum

Posted in Almennt on 18.06.2007 by Hafdís Ósk

Ég réð ekki við viðbrögðin mín þegar ég horfði á þetta myndband. Þetta er það næsta sem ég hef komist því að sjá engil að ég held. Ekkert smá einlægt og yndislegt framlag. Ég grét í fyrsta skipti sem ég sá þetta og táraðist þegar ég horfði á þetta aftur! Mæli með því að þið kíkið á þetta!

Annars er ansi annasamri helgi lokið. Skírnin var á laugardagsmorgun kl.10 og svo útskrift eftir hádegi. Litli kúturinn okkar fékk nafnið Sævar Daði. Það er ekki í höfuðið á neinum en í fjölskyldunni minni hefur verið smá sjó-þema svo að þetta er aðeins í stíl við það.

Útskriftirnar okkar voru síðan eftir hádegi og á meðan var Sævar í pössun hjá foreldrum mínum og svaf allan tímann. Ofsalega stilltur og prúður og hann hélt uppteknum hætti í veislunni og var eins og engill allan tímann. Já, hann notaði daginn til að vera stilltur eins og mamma sín! Útskrifin gekk annars vel og mér leiddist ekkert allan tímann. Greinilega orðin þjálfuð í svona upplestri úr símaskránni eins og Sigurjón vinur minn orðaði það.

En ég er að hugsa um að nýta 2 seinustu vikurnar sem Sveinbjörn er í fæðingarorlofi til hins ítrasta og gera eitthvað skemmtilegt með S-unum mínum í dag!

Vildi bara aðeins láta heyra frá okkur!

Stór dagur

Posted in Almennt on 11.06.2007 by Hafdís Ósk

Laugardagurinn 16. júní verður stór dagur í lífi litlu fjölskyldunnar. Þá ætlum við skötuhjúin að láta skíra son okkar og þegar því er lokið tekur tvöföld útskrift í Laugardalshöll við. Þessa dagana erum við því á fullu að ákveða hvernig við ætlum að hafa daginn, græja föt á allt liðið, velja besta nafnið af nokkrum möguleikum og skipuleggja hvaða veitingar eigi að vera í boði. Þetta eru ansi margar ákvarðanir fyrir óákveðið fólk eins og okkur og því höfum við þurft að taka á honum stóra okkar seinustu daga. Mamma hefur aðeins verið að reka á eftir okkur varðandi ákvarðanatöku og leggur hart að okkur svo að það gerist eitthvað. Við erum nefnilega afskaplega lík hvað ákvarðanir varðar, hvorugt okkar vill taka lokaákvörðun. Sem endar auðvitað á því að ég tek ákvarðanir þar sem ég er ekki eins þrjósk og vægi yfirleitt á undan. Það er líka gott ef eitthvað klúðrast þar sem þá er hægt að kenna mér um það.

Fallegasti vagn landsins leit síðan dagsins ljós í seinustu viku. Þá fór ansi stolt móðir með hann í göngutúr en varð frekar svekkt þegar það fór að rigna og rauði liturinn þurfti að víkja fyrir gráum þegar regnhlífin var sett yfir. Dagana á eftir var ekki hægt að monta sig af þeim rauða og því var móðirin bara gráklædd í stíl við vagninn en afar stolt. Svo rann upp föstudagur og það var alveg bongó blíða úti og þar sem við vinkonurnar höfðum ákveðið að hittast niður í Vogahverfi hjá Guðrúnu Ingu fannst mér tilvalið að arka þangað með rauðu þrumuna.  Við mæðginin lögðum frekar snemma af stað og vorum frekar montin með okkur. Þegar við vorum rétt að komast framhjá Mjóddinni byrjaðu nokkrir dropar að detta. Mín var ekki lengi að smella regnhlífinni á vagninn til að passa að hann yrði ekki blettóttur. Þegar niður í Elliðaárdal kom var kominn úði sem er einmitt uppáhalds skokkveðrið mitt. Milt og úði. En Hafdís var ekki mikið lengur í Paradís en Adam. Þegar við vorum komin hálfa leið í Elliðaárdalnum byrjaði að rigna eins og hellt væri úr fötu og ég varð gegndrepa á orskotsstundu. Þá var ég ekki afsakaplega hrifin af þessari hugmynd minni en síður hrifin af veðurguðunum fyrir að smella þessum ósköpum á mig eftir glaðasólskinið fyrr um daginn.

Þegar ég var komin á leiðarenda var ég það rennandi blaut að ég hefði ekki getað tekið barnið mitt uppúr vagninum án þess að rennbleyta það. Fyrir vikið ákvað ég að labba heim til mömmu og fá að fara í þurr föt og þurrka á mér hárið. Sveinbjörn kom síðan og færði mér bílinn og þurr föt svo að ég kæmist til að hitta vinkonur mínar án þess að rennbleyta þær og umhverfið. Þetta var því ekki besti göngutúr sem ég hef farið í!

;) Læt heyra í mér síðar!

Ekki dauð úr öllum æðum

Posted in Almennt on 02.06.2007 by Hafdís Ósk

IT´S A LIFE!

Já, ég veit ekki hvort að þið voruð búin að afskrifa mig þar sem lítið sem ekkert hefur heyrst frá mér né sést til mín undanfarið en lengi lifir í gömlum glæðum!

Undanfarið hef ég einbeitt mér alfarið að því að vera mamma, vinkona og eins góð kærasta og mér er unnt. Fyrir vikið er ég búin að vera að vesenast fullt alla daga og afar lítið í tölvunni!

Sveinbjörn skilaði verkefninu sínu í vikunni og varði það sömuleiðis. Honum gekk svona ljómandi vel eins og mér og því má segja að seinasta önnin okkar hafi farið fram úr okkar björtustu vonum! Ekki amalegt að enda á því að brillera í skólanum! Allt er jú gott sem endar vel!

Rakel vinkona kom líka í stutta heimsókn til landsins og ég mátti til með að hitta hana eins mikið og mér var unnt þar sem ég sé hana ekki almennilega fyrr en í haust þegar þau Hilmar flytja aftur heim. Það var auðvitað ofsalega gaman að sjá hana og fá að knúsa hana soldið og bjargar alveg geðheilsu minni þangað til í september.

Frjálsíþróttakrakkarnir kíktu í heimsókn í gærkvöldi. Eins og alltaf var afskaplega gaman að sjá þau þó að ég hefði eytt talsverðu af tímanum í að hugsa um litla skinnið mitt. Það var þó gaman að sjá þeirra fríðu fés þó það væri ekki nema í smástund!

Næsta mál  á dagskrá er að finna nafn á litla manninn okkar. Ólíkt mörgum vorum við ekki komin með nafn áður en hann fæddist þar sem okkur langaði að sjá þessa elsku fyrst og fá að kynnast týpunni aðeins. Núna er orðið nokkuð ljóst að sá stutti er verulega ákveðinn og fastur fyrir en að sama skapi algjör gullmoli. Get þó ekki sagt að það hjálpi mér eitthvað en við erum þó aðeins byrjuð að pæla. Svo þurfum við að ákveða hvað eða hvort við gerum eitthvað þegar við útskrifumst og hvort við eigum að skíra þann sama dag og halda því þrefalda veislu. Þetta verður allt ákveðið á næstu dögum og því smá pressa á okkur skötuhjúunum um þessar mundir! En þetta reddast allt saman – það gerir það alltaf!

Að öðru leyti finnst mér skrýtið að vera svona mikið heima en ég held að það venjist afskaplega vel. Ég er að hugsa um að kaupa mér smá afþreyingarefni á næstunni – hugsa að það verði í formi litabókar og einhvers álíka gáfulegs sem lætur mig halda í barnið í mér! Svo ætla ég að tengja plötuspilarann við græjurnar og fara að rifja upp gamla daga með því að hlusta á Smjattpattana, Dýrin í Hálsaskógi, Kardemommubæinn og fleiri gamlar og góðar plötur. Held að það verði talsvert fjör hjá mér og mínum ;)

En ég ætla að horfa á The Rock áður en ég fer að sofa!

Góðar stundir!