Ekki dauð úr öllum æðum

IT´S A LIFE!

Já, ég veit ekki hvort að þið voruð búin að afskrifa mig þar sem lítið sem ekkert hefur heyrst frá mér né sést til mín undanfarið en lengi lifir í gömlum glæðum!

Undanfarið hef ég einbeitt mér alfarið að því að vera mamma, vinkona og eins góð kærasta og mér er unnt. Fyrir vikið er ég búin að vera að vesenast fullt alla daga og afar lítið í tölvunni!

Sveinbjörn skilaði verkefninu sínu í vikunni og varði það sömuleiðis. Honum gekk svona ljómandi vel eins og mér og því má segja að seinasta önnin okkar hafi farið fram úr okkar björtustu vonum! Ekki amalegt að enda á því að brillera í skólanum! Allt er jú gott sem endar vel!

Rakel vinkona kom líka í stutta heimsókn til landsins og ég mátti til með að hitta hana eins mikið og mér var unnt þar sem ég sé hana ekki almennilega fyrr en í haust þegar þau Hilmar flytja aftur heim. Það var auðvitað ofsalega gaman að sjá hana og fá að knúsa hana soldið og bjargar alveg geðheilsu minni þangað til í september.

Frjálsíþróttakrakkarnir kíktu í heimsókn í gærkvöldi. Eins og alltaf var afskaplega gaman að sjá þau þó að ég hefði eytt talsverðu af tímanum í að hugsa um litla skinnið mitt. Það var þó gaman að sjá þeirra fríðu fés þó það væri ekki nema í smástund!

Næsta mál  á dagskrá er að finna nafn á litla manninn okkar. Ólíkt mörgum vorum við ekki komin með nafn áður en hann fæddist þar sem okkur langaði að sjá þessa elsku fyrst og fá að kynnast týpunni aðeins. Núna er orðið nokkuð ljóst að sá stutti er verulega ákveðinn og fastur fyrir en að sama skapi algjör gullmoli. Get þó ekki sagt að það hjálpi mér eitthvað en við erum þó aðeins byrjuð að pæla. Svo þurfum við að ákveða hvað eða hvort við gerum eitthvað þegar við útskrifumst og hvort við eigum að skíra þann sama dag og halda því þrefalda veislu. Þetta verður allt ákveðið á næstu dögum og því smá pressa á okkur skötuhjúunum um þessar mundir! En þetta reddast allt saman – það gerir það alltaf!

Að öðru leyti finnst mér skrýtið að vera svona mikið heima en ég held að það venjist afskaplega vel. Ég er að hugsa um að kaupa mér smá afþreyingarefni á næstunni – hugsa að það verði í formi litabókar og einhvers álíka gáfulegs sem lætur mig halda í barnið í mér! Svo ætla ég að tengja plötuspilarann við græjurnar og fara að rifja upp gamla daga með því að hlusta á Smjattpattana, Dýrin í Hálsaskógi, Kardemommubæinn og fleiri gamlar og góðar plötur. Held að það verði talsvert fjör hjá mér og mínum ;)

En ég ætla að horfa á The Rock áður en ég fer að sofa!

Góðar stundir!

9 Responses to “Ekki dauð úr öllum æðum”

  1. Snepill Says:

    Fyrst ad tid erud ekki buin ad finna nafn er tá ekki betra ad skíra bara í ágúst?? ;0) Til hamingju Sveinbjorn med árangurinn, kemur svosum ekki a óvart! Annars líst mér vel a plonin hjá tér Hafdís ad hlusta og lita…ég mun vera med tér i anda

  2. Já það var gaman að kíkja í heimsókn. Litli snúlli var nú bara hinn skemmtilegasti, byrjaður að taka eftir umhverfinu og svona. Er ekki frá því að það sé stutt í að ég nái að kenna honum high-five.

    Annars er ég með Kardimommubærinn og Dýrin í Hálsaskógi á mp3 hjá mér. Skal láta þig fá eintak.

  3. Hafdís Ósk Says:

    Hildur – eins og staðan er í dag erum við ekkert að færast nær því að finna nafn á litla gutann og því hljómar ágúst ekkert svo óraunhæft eins og staðan er í dag…
    Svo lofa ég að vera góð við andann þinn og leika við hann!

    Bergur – fyrirfram þökk! Hlakka mikið til að fá að hlýða á þessa klassík á ný á meðan ég lita nú eða leik mér að því að byggja legókastala ;) Og já sá stutti er að sjálfsögðu undrabarn eins og önnur…

  4. Já og meðan ég man:

    “Losers always whine about their best, winners go home and fuck the prom queen!”

  5. ohhhh…. smjattpattarnir. Þeir voru uppáhalds.
    Man samt eiginlega ekki neitt, en er alveg viss að geta sungið hástöfum með ef ég myndi heyra.

    Smjattpattar þeir byggðu bú, þeir búa þar víst ennþá nú…. man ekki meir.

  6. …þeir fundu þarna allt til alls – áður en varði. Þarna Pála Púrra er, Petru maður líka sér….;)

    Ég bíð kannski bara í Smjattpattateiti bráðlega…

  7. Bjössi Arngríms Says:

    “Núna er orðið nokkuð ljóst að sá stutti er verulega ákveðinn og fastur fyrir en að sama skapi algjör gullmoli”

    hmm þetta er ekki spurning. Drengurinn kemur til með að heita Gunnhildur

  8. Hafdís Ósk Says:

    hehe – það er auðvitað spurning hvort að ég fái ekki bara samþykki fyrir Gunnhildar hjá mannanafnanefnd ;)

  9. Dear Friend!
    Welcome to my “Blog”, with electronic adress URL: http://nikotev.wordpress.com/
    In the new variant of the blog there are very much new informers, themes, banners and analisys by the variouse problems of the military history and policy. They will be very interesting for you! In the world system of the cybersytes, the blog received a high mark “600,5″.
    Your friend Nikolay Kotev

Leave a Reply