Archive for August, 2007

Heimskulegar spurningar

Posted in Almennt on 22.08.2007 by Hafdís Ósk

Mér finnst sumar spurningar heimskulegri en aðrar og skil oft ekki hvað fólk er að spá þegar það lætur þær út úr sér. Sú sem trónir á toppnum hjá mér er spurningin ,,ertu ólétt?” Mér finnst hún afar heimskuleg og ég skil ómögulega tilganginn með henni. Ef að fólk á von á barni þá kemur upp sá tímapunktur að það skýri sínum nánustu frá því. En það á allt sinn tíma og mér finnst mikilvægt að fólk fái sjálft að ákveða hvenær sá tímapunktur kemur. Fyrir vikið spyr ég ekki að þessu. Mér finnst allt í lagi að vera með vangaveltur við einhverja aðra um hvort að einhvers sé e.t.v óléttur þar sem slíkt flokkast ekki undir baktal og er bara að gamni gert og yfirleitt til að svala forvitni sinni.

Mér finnst líka heimskulegt að spyrja einhvern annan hvort að hann hafi fitnað. Því að það getur verið soldið erfitt og oft kvalafullt að svara þeirri spurningu. Svo skil ég heldur ekki alveg tilganginn með henni. Er það leið til að benda manni á það eða tilraun til að niðurlægja náungann? Ég held að maður taki best eftir því að maður hafi fitnað sjálfur og þarf því ekki á aðstoð annarra að halda með að segja manni það.

Heimskuleg en vel meint spurning er líka sú þegar fólk spyr hvort að þú hafir verið í klippingu. Sjálf spyr ég oft að þessari spurningu en finnst hún samt sem áður heimskuleg þar sem henni fylgir yfirleitt – flott á þér hárið hvort sem svarið er já eða nei. Þannig að í rauninni væri bara nóg að segja það strax í stað þess að spyrja!

Þessa dagana fæ ég mikið af ,,gengur ekki bara vel?” spurningunni. Fólk vill iðulega fá stutt og laggott svar við þeirri spurningu í stað þess að heyra. Nei, sonur minn argar öllum stundum og ég fæ engan svefnfrið. Það er reyndar ekki rétt í mínu tilfelli en oft er eitthvað að angra þessi kríli sem tæki of langan tíma að skýra hálf ókunnugu fólki frá. Ég segi því alltaf bara ,,jú, mjög vel – hann er svo yndislegur þessi elska” og læt svo bara gott heita. Einstaka sinnum bæti ég þó við að hann hafi fengið ungbarnakveisu á tímabili en það sé sem betur fer liðin tíð.

Eru einhverjar spurningar sem ykkur þykir vera heimskulegri en aðrar?

Skipasunds open

Posted in Almennt on 20.08.2007 by Hafdís Ósk

Ég hélt Kubb-mót í bakgarðinum hjá foreldrum mínum um helgina. Þangað bauð ég nokkrum velvöldum vitleysingum að koma. Röð tilviljana varð reyndar til þess að einungis hluti af þátttakendum sá sér fært að mæta og fékk ég mislangan fyrirvara á því. Þar af leiðandi varð ekkert úr mótinu og þess í stað sátum við nokkur að veigum sem voru áætlaðar fyrir ansi marga og lékum okkur bara í kubb í staðinn og tókum svo keppni í að standa á höndum, hoppuðum á trampólíni og fífluðumst eins og við ættum lífið að leysa.

Stundum er bara svo ofsalega skemmtilegt að virkja barnið í sér soldið!

Jafnframt var ákveðið að mótið yrði haldið hátíðlegt á næsta ári og þá yrðu sigurvegarar í Kubb krýndir! Áhugasamir geta því farið að æfa sig þar sem ég reikna með að keppni verði afar hörð!

300

Posted in Almennt on 20.08.2007 by Hafdís Ósk

Sigurjón vinur minn skrifaði þessi orð um kvikmyndina 300 í mars s.l:

Ég hef séð allmörg listaverk um ævina, sum hefur mér fundist flott, önnur ekki.

Aldrei hef ég séð 24 falleg listaverk á sekúndu í tvo tíma stanslaust, fyrr en í kvöld.

300 the movie

Þessi mynd er alvarleg.

 Þar sem hann er öllu listrænni en ég trúði ég þessu svona tæplega. Hann er jú afar fær ljósmyndari og því vanur að sjá það listræna í hlutum sem eru bara hversdagslegir fyrir mér. Ég horfði hins vegar á þessa mynd í gær og VÁ. Hver einasti rammi er flottur. Það er hægt að stoppa myndina hvenær sem er og fá fallega mynd út. Þetta er án efa flottasta mynd sem ég hef séð og ekki sakar að hún er líka góð. Mæli sem sagt hiklaust með henni fyrir þessa 3 sem eru ekki búnir að sjá hana!

Ég sat alla vega dolfallin yfir henni allan tímann!

Frí og ferðalög

Posted in Almennt on 13.08.2007 by Hafdís Ósk

Eins og áður sagði skelltum við fjölskyldan okkur til Vopnafjarðar um verslunarmannahelgina. Á mínum yngri árum var ávallt líf og fjör um þá helgi í þorpinu góða en það er af sem áður var. Núna eru svokallaðir Vopnafjarðardagar alltaf í viku og ná hámarki helgina fyrir verslunarmannahelgi. Þá er líf og fjör í bænum og fjöldinn allur af fólki sem kemur til að rifja upp gamla daga, hitta ættingja og vini og skemmta sér á gamaldags böllum.

Við fórum ekki til Vopnafjarðar í leit að skemmtilegheitum og því var ágætt að koma helgi of seint. Svona til að skýra aðeins síðustu færslu missti ég ömmu mína í byrjun ágúst, 1.ágúst nánar tiltekið. Hún bjó í kjallaranum hjá mömmu og pabba og hafði gert það síðan við fluttum í bæinn og foreldrar mínir keyptu húsið hennar. Frá því að ég var pínulítið peð hef ég verið náin ömmu minni og mér þótti óskaplega vænt um hana. Við pössuðum vel saman og vorum góðar vinkonur. Hún var að verða 91 árs og því var þetta ekki óvænt en samt sem áður fyllist maður alltaf söknuði og svona missir er ofsalega erfiður. Amma hafði verið veik í vetur en var búin að ná sér og átti gott sumar. Ég óttaðist á tímabili að hún myndi ekki ná að sjá son minn en hún gerði sko gott betur en það. Ég á nokkrar flottar myndir af þeim saman og systir mín tók yndislegt myndband af ömmu að spjalla við Sævar. Þau voru líka sérstaklega hrifin hvort af öðru og hann brosti alltaf þegar hann sá hana.

Amma var í heimsókn hjá bróður sínum á Vopnafirði þegar hún dó svo að við fjölskyldan fórum austur til að sækja líkið. Pabbi fékk lánaðan pallbíl og þau fluttu kistu með sér austur og tóku hana með sér til Reykjavíkur. Við gátum ekki hugsað okkur að senda hana með flutningabíl hingað og því varð þetta lausnin. Við Sveinbjörn ákváðum að fara með til að hitta ættingjana okkar aðeins og vildum eyða þessum erfiða tíma í faðmi fjölskyldunnar.

Núna skiljið þið kannski aðeins betur vangaveltur mínar hér að neðan!

Lífið heldur áfram og minningin um uppáhalds ömmu mína, lifir með mér að eilífu!

Blessuð sé minning hennar.

Blessuð sértu sveitin mín

Posted in Almennt on 04.08.2007 by Hafdís Ósk

Góðan dag!

Að þessu sinni sit ég við tölvu heima hjá mömmu hennar Ellenar á Vopnafirði og rita nokkur orð. Við skötuhjúin ákváðum að skella okkur ásamt foreldrum mínum til Vopnafjarðar og hittum þar fyrir frænda minn frá Þýskalandi. Við gistum fyrstu nóttina í gömlu sveitinni minni en flúðum til ,,fósturmóður” minnar í gærkvöldi þar sem rúmið sem við vorum í uppi í sveit var ekki upp á neinn fisk. Eins og staðan er núna er ég húsfreyjan á fósturheimili mínu þar sem húsmóðirin og -bóndinn skelltu sér í útilegu í rigningunni og eru ekki væntanleg aftur fyrr en seinna í dag.

Á Vopnafirði er að sjálfsögðu rigning og þoka eins og alltaf þegar ég kem í heimsókn. Mér finnst alltaf jafn notalegt að koma HEIM og ég finn hvað stressið lekur fljótt af mér þegar ég er á þessum slóðum. Það er líka stanslaus sunnudagur hérna þessa dagana þar sem fólk er vant að fara úr þorpinu um þessar mundir og því er ekki mikið um truflanir.

Lífið mitt tók nokkuð óvænt stökk í seinustu viku og þetta stökk kemur til með að hafa áhrif á mig og mína um ókomin ár og kemur væntanlega til með að eiga eftir að verða erfitt að venjast. Lífið heldur samt áfram þrátt fyrir breytingar og eins og ég fjallaði um í grein minni hér fyrir neðan verður maður að læra að aðlagast.

Í gær ræddum við Sveinbjörn aðeins við frænda minn um reglur sem aðstandendur Einnar með öllu (Akureyri) hafa sett varðandi unglinga. Mér finnst ekki gott þegar allir eru settir í sama flokk og öllum unglingum upp í 23 ára er bannaður aðgangur að tjaldstæðum bæjarins. Ég fór á útihátíð á Akureyri þegar ég var 19 ára og þá drakk ég hvorki né slóst og sýndi held ég afskaplega prúðmannlega framkomu. Þó að ég sé ansi sérstök þá er ég ekki einstök og ég er fullviss um að einhver prúð ungmenni hugðust skemmta sér á Akureyri og þá er frekar fúlt að vera settur í hóp með rotnu eplunum og ef ég væri unglingur á þessum aldri þá væri ég verulega fúl um þessar mundir. Að mínu mati á ekki að sýna fólki vantraust fyrir fram – það er ekki góð regla.

En ég er að hugsa um að fara að koma mér út í rigninguna og njóta þess að vera til!

Hafið það gott um helgina!