Við Sveinbjörn fjárfestum fyrir skömmu í dvd upptökutæki. Við fengum smá pening í útskriftargjöf fyrr í ár og vorum búin að ákveða að kaupa okkur slíkt tæki fyrir hann. Nýlega fórum við í leiðangur og enduðum á því að kaupa okkur Pioneer upptökutæki með 160 Gb hörðum disk og fullt af skemmtilegum fídusum eins og maður segir á ægilega slæmri íslensku. Smám saman höfum við verið að læra á græjuna og erum alltaf að komast meira og meira að því hvað þetta er mikil snilld. Það er hægt að taka heila upptöku og skipta henni niður í nokkrar. Það er hægt að klippa auglýsingar út, skíra upptökurnar, flokka þær niður, raða og gera allan andsk…Við erum verulega ánægð með gripinn og vitum ekki hvað við gerðum fyrir komu þess. Ég er ánægðust með að geta sett á pásu þegar ég er að horfa á einhvern hátt því að þá get ég hugað að syni mínum á meðan einhverjum spennandi þætti stendur en ekki misst af neinu né þurft að bíða eftir að upptakan klárist til að horfa. Ansi hreint notalegt. Ég næ þættinum oft aftur með því að spóla hreinlega yfir auglýsingarnar.
Við ákváðum að kaupa okkur alvöru græju þar sem maður er ekki að kaupa svona tæki á hverjum degi. Reyndar fengum við upplýsingar um að maður gæti fengið eitthvað digital Ísland upptökutæki en við erum auðvitað ekki með stöð 2 og erum held ég ekki á leiðinni með að fá okkur slíkt á næstunni og við ályktuðum sem svo að við gætum þá notað þetta næstu árin alla vega. Ég er alla vega verulega stoltur eigandi. Núna þarf ég bara að læra að færa myndir og þætti frá tölvunni og yfir á gripinn góða og þá eru mér allir vegir færir. Einhverjir sjálfboðaliðar sem vilja fikta með mér?