Archive for October, 2007

Grasekkja

Posted in Almennt on 24.10.2007 by Hafdís Ósk

Næstu dagana verðum við mæðginin bara ein í kotinu. Sveinbjörn fór í ENN eina viðskiptaferðina og í þetta skiptið til skrilljón staða og þar á meðal held ég að Fjarskanistan sé á listanum. Við eigum að sjálfsögðu eftir að bjarga okkur tvö en ég veit að við verðum afskaplega glöð að endurheimta hann á ný. Það getur verið soldið leiðigjarnt að hanga einn allan daginn og þó svo að sonur minn sé afskaplega kátur og skemmtilegur ungur maður er hann afskaplega lélegur að halda uppi samræðum. Hann skilur mig ekki og ég skil hann ekki og því er þetta frekar dauðadæmt frá upphafi!

Það er reyndar mikið á dagskránni okkar á næstunni. Þar má nefna tvö matarboð, heimsóknir, gjafakaup, frjálsíþróttahitting, útskriftarveislu og 6 mánaða afmæli. Sveinbjörn á síðan afmæli á sunnudaginn en hann verður fjarri góðu gamni. Mér skildist þó á honum að Gatafi ætlaði að halda veislu honum til heiðurs í Líbíu – ég efast um að hann toppi kökuna sem ég ætla að baka samt! Annars verð ég að viðurkenna að ég verð ekkert alveg róleg á meðan Sveinbjörn er í Líbíu. Mér finnst það helst til óöruggt land fyrir minn smekk og myndi helst ekkert vilja að hann væri að þvælast þar – reyndar myndi ég helst vilja að hann færi bara ekki neitt en það gengur víst ekki í svona plebbastarfi eins og hann er í!

Hælaskór – enn og aftur

Posted in Almennt on 24.10.2007 by Hafdís Ósk

Stutt útgáfa: Bjöggi – þú nennir ekki að lesa þetta!

- Sveinbjörn bauð mér á fangað hjá fyrirtækinu sínu seinustu helgi. Ég ætlaði upphaflega ekki að fara þar sem föt í fínni kantinum eru af afar skornum skammti í fataskápnum mínum um þessar mundir. Fötin mín einkennast reyndar af efri hlutum sem auðvelt er að bregða sér úr eða vippa brjóstinu út úr á sem skemmstum tíma. Þessi lýsing gæti platað marga sem ímynda sér að góð djammföt eigi að hafa þann eiginleika. Fötin mín eru hins vegar afar hversdagsleg og hafa alls engan fínheitastimpil á sér og hvað þá föt sem hæfa bankamannsfrú. Ráðin voru því dýr! Systir mín bauðst til að fara með mér í búð á föstudeginum (sama dag og fagnaðurinn fíni var) og við ákváðum að skella okkur í Smáralind. Þar upphófst mikil leit sem endaði á þann veg að ég ákvað að ég væri bæði feit og ljót og að ég ætlaði ekki að fara. Afskaplega góð ferð sem sagt og sjálfsálit mitt í hæstu hæðum á eftir. Ég á hins vegar afar góða að og mamma og systir mín gáfust ekki svo auðveldlega upp. Þær fóru í eina búð og fengu lánuð föt handa mér og ein frænka mín tók saman slurk af fínum fötum sem hún átti og sendi mér í poka. Í sameiningu tókst okkur að setja saman fínt dress og síðar um kvöldið hélt ég glöð af stað. Móðir mín sannfærði mig um að fara í fínum skóm sem hún átti þar sem ecco gönguskórnir mínir væru ekki nógu góðir við svona fínar buxur. Ef ég hefði áttað mig á því þarna að ég hef ekki farið í háhælaða skó í rúmt eitt og hálft ár þá hefði kvöldið trúlega farið á annan veg. Ég mætti á svæðið um 8 leytið og var komin heim um 11. Fyrsta klukkutímann gerði ég lítið annað en að sitja en um leið og borðhaldið var búið og fólk farið að hella í sig dóu fæturnir á mér smám saman og um 11 gat ég bara ekki meir og skrölti heim á leið. Ég þarf því klárlega að fara að finna mér skó sem líta út fyrir að vera afskaplega pæjulegir en eru hællausir og þægilegir um leið.

Rigningin er ekki góð!

Posted in Almennt on 24.10.2007 by Hafdís Ósk

Stutt útgáfa: Rigningin er ekki af hinu góða!

- Ég tek það alfarið til baka að mér finnist rigningin góð. Þessi staðhæfing mín varð mér nánast að bana fyrir nokkru síðan. Þá datt mér sú snilldarhugmynd í hug að drýgja lúrinn hans Sævars og fá mér heilsubótargöngutúr í leiðinni. Sveinbjörn hafði farið út á lífið kvöldinu áður og ég ákvað að vera yndisleg og fara í bakaríið og kaupa eitthvað ljúfengt handa honum. Þar sem ég er orðin helst til leið á Bakarameistaranum sem er hérna niður í Mjódd (ca.kílómeter) ákvað ég að labba í Reyni bakara sem er rétt hjá Smáralind (ca.3-4 km). Það var rigning þegar ég lagði af stað en Pollýannan hún ég lét það ekkert á sig fá og skellti mér bara í kápu og hélt sönglandi af stað. Það er skemmst frá því að segja að rigningin var örlítið meiri en ég hafði talið í fyrstu og strax eftir hálfan kílómeter var ég orðin blaut í tærnar og skálmarnar á buxunum mínum farnar að blotna. Ég íhugaði í smástund að snúa við en ákvað að ég væri nú ekki það mikill aumingi og hélt för minni áfram. Sævar var ekkert á því að fara að sofa og var bara sönglandi ofan í vagni á þessum tímapunkti. Þegar ég var hálfnuð út í Reyni var ég orðin rennandi. Þá hefði ég átt að snúa við en ákvað enn og aftur að harka af mér og það væru bara mýs en ekki menn sem gæfust upp við smá mótlæti. Þegar ég kom í Reyni var ekki þurr blettur á mér. Ég sá ekkert út um gleraugun, buxurnar voru rennandi blautar og farnar að dragast á eftir mér þar sem þyngdin í þeim dró þær niður mittið á mér. Kápan var gegnblaut og Sævar ekki sáttur við að hanga ofan í vagni allan þennan tíma. Þess utan var biðröð út úr dyrum! Ég lét mig þó hafa það og bölvaði sjálfri mér fyrir að hafa ekki tekið símann minn með mér svo að ég gæti hringt í Sveinbjörn eða pabba og látið þá sækja okkur. Við mæðginin höfðum það af að labba til baka. Sævar sat uppi í vagninum og horfði forviða á móður sína arka hálf vonlausa til baka – alla rennandi blauta og ógeðslega. Honum fannst ég þó bara nokkuð fyndin og hló mikið af heimsku minni á leiðinni (ég verð að gefa mér að hann hafi áttað sig á heimskupörum mínum). Bílarnir voru farnir að sjá hversu blaut ég var og skvettu því bara meiru á mig. Sævari fannst þetta hins vegar bara alveg prýðilegt og nagaði bara regnslánna á vagninu og lét dropana detta á puttana á sér. Ég hafði það af að komast heim en einungis af því að ég tók bara einn áfanga í einu. Þegar heim var komið kom í ljós að kápan, buxurnar, bolurinn, brjóstahaldarinn, nærbuxurnar, sokkarnir, skórnir, hárið og líkami minn í allri sinni dýrð voru rennandi blaut og köld. Ég gat ekki einu sinni tekið son minn uppúr vagninum þar sem hann hefði rennblotnað á augabragði. Sveinbjörn fékk þó bakkelsi í hádegismat þar sem hann var búin að borða morgunmat þegar ég snéri til baka úr herferð minni. Rigningin er því vond.

Fréttir

Posted in Almennt on 10.10.2007 by Hafdís Ósk

Stutt útgáfa í boði Bjögga: Ég er ekki hlynnt því sem er að gerast í kjölfar sameiningar orkufyrirtækjanna. Held að Bjarni billi sé alveg nógu ríkur fyrir! Borgarstjórinn er ekki að gera góða hluti að mínu mati og þarf að herða sig. Tengdamamma vann Lexus og er og verður væntanlega meiri töffari. Ég skellti mér á námskeið í ungbarnamatargerð og er mun fróðari fyrir vikið en held að hollystuát sé ekki fyrir mig. Svo finnst mér rigningin bara asskoti góð!

*Þar sem ég kemst iðulega ekki lengra en í gegnum hálft fréttablaðið er ég ekki með allar fréttir á tæru þessa dagana og veit yfirleitt bara hálfa sögu. Ég held þó að ég þurfi ekki að vita ýkja mikið um orkumálin til að geta fullyrt að mér finnst algjört kjaftæði að Bjarni billi (billjarðamæringur) og forstjórinn geti hagnast svona svaðalega á þessu. Svo er ég alveg á því að Vilhjálmur sé að syngja sitt síðasta. Ég held að Svandís Svavars sé ein af fáum með viti í þessu máli. Bið ykkur þó að taka það til greina að ég hef ekki náð að kynna mér þetta mál að fullu áður en þið jarðið mig!

*Tengdamamma var í fréttum vikunnar. Hún gerði sér lítið fyrir og vann LEXUS GS 300 (held ég) í happdrætti DAS. Hún hefur spilað með sama miðann þar síðan 1989 og hefur aldrei unnið. Ætlaði að hætta með miðann í vor þegar Sævar fæddist en konan hjá DAS sagði henni að röðin hlyti að fara að koma að henni. Skynsöm kona! Bíllinn sem hún vann er einn flottasti bíll sem til er og það að sitja inni í honum er algjör draumur. Maður þarf nánast ekki að keyra þennan bíl því hann gerir það held ég að mestu leyti sjálfur. Tengdamamma er hins vegar svo slæm í skrokknum að hún á mjög erfitt með að komast inn í lága bíla og því ætlar hún að skipta gripnum upp í jeppling. Held að hún verði töffari á Lexus. Ég sagði henni að nú þyrfti hún auðvitað að skipta fataskápnum út og kaupa plebbaföt í stíl við bílinn. Ég er nokkuð viss um að við hin fáum lítið sem ekkert að keyra djásnið og það skil ég svo sem vel. Ég veit ekki hversu vel ég myndi plumma mig á rúmlega 6 milljóna króna bíl! Hver þarf Lexus þegar hann á Legacy ;)

*Ég fór á hollystu-matarnámskeið í seinustu viku. Í næstum heilan dag var ég mótfallin örbylgjuofnum og plasti. Það var þó ansi fljótt að gleymast og því hefur örbylgjan aftur verið tekin í sátt en þó hyggst ég minnka notkun ofnsins. Hugsa að ég sleppi því að setja jólasmákökurnar í hitun um jólin. Svo vil ég minna á að jólin eru bara handan við hornið! Skelfilegt hvað árin þjóta hjá um þessar mundir! Tilgangur námskeiðsins var þó að læra að útbúa mat handa yngsta fjölskyldumeðlimnum og sá fær sko hollystu! Jedúdda! Hann verður án efa næsti Stjáni Blái.

*Ég er farin að venjast rigningunni. Hún er bara alveg ágæt. Sonur minn á það til að vera óeðlilega lengi að sofna þegar mest rignir en Pollýannan í mér er löngu hætt að kippa sér upp við slíkt og syngur bara í rigningunni. Það er margt verra!