í hnotskurn
Við mæðginin skelltum okkur ásamt foreldrum mínum til Vopnafjarðar í nokkra daga fyrir helgi. Kona ömmubróður míns var að deyja og þar sem ég þekkti hana afar vel vildi ég fylgja henni seinustu metrana. Við Sævar flugum til Akureyrar á meðan mamma og pabbi keyrðu. Ég vildi ekki leggja neitt óþarfa ferðalag á son minn og ákvað því að fljúga frekar með hann. Sævar var afskaplega hrifinn af fluginu, skoðaði öryggisbæklinginn og horfði út um gluggann. Annars heyrðist ekki tíst í honum á leiðinni og því nokkuð ljóst að það er ekki mikið mál að ferðast með þennan unga mann! Dvölin fyrir austan var yndisleg að vanda. Ég slakaði vel á og náði að hvíla lúin bein. Ég hitti líka meirihlutann af ættingjum mínum og góðan hluta af íbúum staðarins. Við dvöldum í góðu yfirlæti í húsi sem er beint á móti því sem við bjuggum í fyrir austan og það er sko ekki verra að vera alveg við æskuslóðirnar. Í þessu húsi bjuggu gömul hjón sem voru mér eins og afi og amma og þau heimsótt ég nokkrum sinnum á dag alla daga ársins.
Á leiðinni heim tímdi ég ekki að fljúga aftur frá Akureyri þar sem flug aðra leiðina kostaði 10000 kall fyrir okkur Sævar. Við létum okkur því hafa það að keyra alla leið og eins og annað var það ekki mikið mál. Sævar var voða lítið pirraður og leiðinni og móðir hans náði að tækla þann pirring í fæðingu með leik og söng í aftursætinu. Ég hugsa því að sjálfri hafi mér fundist leiðinlegra að keyra en syni mínum. Það var þó óskaplega gott að koma aftur heim í gær og sofa í mínu eigin rúmi. Sævar varð hálf hissa að sjá ömmu sína og pabba og var í smástund að meðtaka þau aftur enda hafði hann ekki séð þau í viku.
Í þessari viku er síðan nóg að gerast. Við skötuhjúin erum komin í golfkennslu einu sinni í viku og erum að auki á dansnámskeiði einn dag í viku. Það byrjar á morgun og er ekki laust við að spennan sé farin að magnast. Um helgina er svo frjálsíþróttamót sem ég má ekki missa af og enn sem komið er eru nokkrir hittingar á dagskrá. Það eru ansi margir sem ég hef ekki hitt ennþá á þessu ári og ekki seinna vænna að bæta úr því!
En heilt fjall af þvotti og skúringagræjur bíða athygli minnar.
Ykkur bið ég að heilsa!
05.01.2009 at 15:54
Dear Friend!
Welcome to my “Blog”, with electronic adress URL: http://nikotev.wordpress.com/
In the new variant of the blog there are very much new informers, themes, banners and analisys by the variouse problems of the military history and policy. They will be very interesting for you! In the world system of the cybersytes, the blog received a high mark “600,5″.
Your friend Nikolay Kotev