Mér finnst árið vera nýbyrjað en samt er mars að hefja göngu sína á morgun. Ótrúlegt hvað dagarnir líða hratt og um leið árið. Ég heyrði fyrir löngu að tíminn liði hraðast þegar maður væri gamall en hægast þegar maður er ungur. Ég man ekki eftir að tíminn hafi liðið hratt þegar ég var barn og þá sérstaklega ekki þegar ég var að bíða eftir einhverju álíka merkilegu og afmælinu mínu. Þá leið tíminn alltof hægt og ég hélt að dagurinn kæmi aldrei.
Með tíð og tíma hætti ég að bíða eftir afmælisdögunum mínum. Þeir koma bara og fara. Ég hef samt afskaplega gaman af því að eiga afmæli og nýt aukinnar athygli í hvívetna en umstanginu sem fylgir afmælum er ég ekki eins hrifin af. Það er verulega ósanngjarnt að afmælisbarnið þurfi að baka allar sínar kökur sjálfur. Reyndar get ég ekki státað mig af því að hafa útbúið alla rétt í afmælum seinustu ára þar sem mamma hefur iðulega átt megnið eða stóran part af heiðrinum. Á morgun rennur enn einn afmælisdagurinn upp og ég er ekki enn búin að ákveða hvað eða hvort ég geri eitthvað. Þó er ég reyndar búin að ákveða að ef ég geri eitthvað býð ég bara fjölskyldunni. Stór hluti af þeim sem mér þykir vænt um er erlendis um þessar mundir (get talið 6 í fljótu bragði sem eru svona nánasti, nánasti hringur) og því vantar mikilvæga hlekki í vinahópana. Annars held ég að ég hafi verið frekar dugleg að halda upp á afmælin mín í gegnum tíðina. Að gamni fór ég að spá hvenær ég yrði næst þess heiðurs aðnjótandi að eiga afmæli um helgi og hvað ég yrði gömul. Ég komst að því að ég verð 27 og 28 ára um helgi. Þrítugasti og þriðji og -fjórði afmælisdagurinn lenda líka á helgi. Svo verð ég 39 ára um helgi – mörgum finnst heppilegra að halda upp á það en fertugsafmælið sitt. Ég verð síðan 44 ára á laugardegi og 45 ára á sunnudegi. Það er nú stuð. Árið 2031 verð ég fimmtug og sá dagur lendir akkúrat á laugardegi þannig að ef ég næ þeim merka áfanga að verða fimmtug megið þið sem ég verð enn í sambandi við búast við boðskorti. Maður þarf að fagna því ærlega! Spurning hvort að ég verði orðin amma eins og mamma varð nokkrum dögum áður. Ji, skrýtið að hugsa sér að eftir ,,nokkur” ár verði sonur minn orðinn fullorðinn! En við þær vangaveltur ætla ég að hætta að velta mér uppúr þessu.
Að öðru. Ég hef mikið verið að spá í það undanfarið hvað mig langi mest í í öllum heiminum. Það er – ef ég mætti fá eina gjöf af öllu sem er til í heiminum hvað ég myndi velja. Svo breytti ég þessu yfir í hvað ég myndi velja ef allir vinir mínir myndu leggja saman í stórt púkk og kaupa það sem mig langar mest í handa mér. Ég er ennþá að velta þessu dálítið fyrir mér og hef ekki komist að neinni lokaniðurstöðu. Við fyrri hugmyndina dettur mér þó einna helst í hug að mig langi í íbúð og eins og staðan er í dag væri ég alveg til í að komast í skemmtilegt sumarfrí með góðu fólki. En ég þarf að velta þessu soldið betur fyrir mér!
Hvað myndi þig langa í ef allir vinir þínir myndu leggja saman og kaupa eina stóra gjöf handa þér?