Það sem…
…hefur á daga mína drifið undanfarið er meðal annars…
…árshátíð hjá Askar Capital sem var haldin í sal sem kallast Lídó og er á Hallveigarstíg. Hún heppnaðist afar vel og við skötuhjúin skemmtum okkur afskaplega vel. Við vorum úti á lífinu til rúmlega 2 en treystum okkur ekki í fínu fötunum niður í bæ og ákváðum því að fara heim þegar það hafði verulega þynnst á Lídó. Þetta var í fyrsta skipti þar sem við vorum með þeim langlífustu á árshátíð. Yfirleitt höfum við verið þreytt og farið snemma heim en núna vorum við frekar miklir naglar og hefðum pottþétt verið lengur ef fólk hefði ekki verið svona agalega lélegt
Það var samt rosalega gaman og frekar þægileg heimilsleg stemning – væntanlega aðeins frábrugðin þeirri sem var á 2200 manna árshátíð Landsbankans.
…Við skötuhjúin skelltum okkur á 20 ára afmælistónleika Sálarinnar á föstudaginn. Við skemmtum okkur alveg svakalega vel. Sungum hástöfum með allan tímann og dilluðum okkur í takt við tónlistina. Rosalega gaman að fara á tónleika þar sem maður kann öll lögin og þar sem salurinn getur sungið lögin án þess að söngvarinn geri neitt! Við náðum okkur í sæti undir stúkunni og sáum akkúrat sviðið og mér fannst afskaplega notalegt að þurfa ekki að standa allan tímann en það verður samt að viðurkennast að sætin undir stúkunni eru agalega óþægileg og því vorum við frekar skökk þegar við komum okkur loksins heim! Ég er annars alveg svakaleg á svona tónleikum þar sem ég er svo upptekin af því að horfa á fólkið að ég missi oft af hlutum. Mér finnst stundum ofsalega skemmtilegt að fylgjast með fólki og atferli þess. Ég hafði samt ekki gaman af því á leið inn í salinn að sjá hversu hrikalega drukkið fólk var kl.10. Sumir áttu erfitt með að labba inn í salinn og þurftu að hanga upp við vegg til að halda jafnvægi. Mér fannst alveg hrikalega erfitt að horfa upp á það. Margir Íslendingar kunna náttúrulega ekki að fara með áfengi!
…Helgin var alveg yndisleg. Við fjölskyldan nutum þess að vera saman og vorum dugleg að fara út í göngutúra og gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég hlakka líka afskaplega mikið til miðvikudagsins þar sem þá er páskafríið byrjað og við mæðginin getum því gert eitthvað skemmtilegt með Sveinbirni í marga, marga daga og nú þegar er þó nokkuð komið á dagskrá
Þessa dagana er ég annars að vinna í að skipuleggja framtíðina aðeins. Er ekki alveg ákveðin með hvað ég vilji gera og því þarf ég að fara að leggjast undir feld!
En ég ætla að gera eitthvað uppbyggilegt í dag og segi þetta því gott í bili!
19.03.2008 at 23:17
Ég fór einmitt líka á Sálina og það var ekkert smá mikið af fullu fullorðnu fólki (þó að unga fólkið væri ekkert að gefa þeim eftir- þá voru þau bara sérstaklega áberandi).. fór á klósettið áður en ég fór inní salinn og við erum að tala um að rúmlega fimmtugu konurnar stóðu ekki í fæturnar (og þetta var einmitt kl.22)! Ég ætla svo sannarlega ekki að vera í þessum sporum þegar ég verð komin á sextugsaldurinn!!