Archive for May, 2008

Hróarskeldufari?

Posted in Almennt on 23.05.2008 by Hafdís Ósk

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi í dag að fá símtal frá Páli Óskari og Óla Palla og vera um leið í beinni útsendingu á Rás 2. Þessir heiðursmenn voru að tilkynna mér að ég hefði unnið 2 miða í Hróarskelduleik Rásar 2. Ég vann sem sagt flug út og miða á hátíðina í boði Rásar 2, Icelandair og Tuborg. Sú hátíð stendur frá 3.-6.júlí og ég er ein af 12 sem var svona lukkuleg.

Ég átti alls ekki von á þessu þar sem ég er bara nýbúin að skrá mig í pottinn og gerði það nánast eingöngu af því að Hildur vinkona mín sendi mér link og svör og sagði mér að taka þátt og gefa sér svo miða. Ég var því frekar hissa á meðan símtalinu stóð og veit ekki alveg hversu vel ég kom þessu öllu út úr mér. Ég hlustaði á þetta áðan á ruv.is og aldrei finnst manni röddin á sér vera flott þegar maður heyrir hana svona eins og hún er í raun og veru. Áhugasamir geta hlustað á lok þáttarins Poppland ef þeir vilja heyra í mér. Hugsa að það séu ekki margir af vinum mínum með stillt á Rás 2 kl.16 á föstudegi. En þið ættuð að vera það. Alla vega þeir sem hafa tekið þátt í leiknum og vilja vinna miða. Það eru enn nokkrir miðar eftir og þið sem viljið skella ykkur á Hróarskeldu takið þátt HÉR!

Ég er ekki alveg búin að jafna mig á þessu strax og þarf alveg nokkra daga til að melta þetta. Annars er ekkert hlaupið að því fyrir okkur að fara þar sem það er ekki auðvelt að finna pössun fyrir rúmlega eins árs gamalt barn í 4 daga. En við getum alla vega notað flugmiðana út til Danmerkur og haft það gott í faðmi vina okkar sem búa þar á meðan hátíðinni stendur.

En ég ætla að fara að koma mér í háttinn. Stefnir í langan dag á morgun með óvæntri þátttöku okkar Íslendinga í úrslitakeppni Eurovision. Ég verð alla vega spennt fyrir framan skjáinn!

Evrópumeistarar félagsliða

Posted in Almennt on 22.05.2008 by Hafdís Ósk

ærdagurinn var alveg yndislegur!

Ég horfði á leik minna manna í Manchester United á móti Chelsea heima hjá foreldrum mínum. Pabbi flúði reyndar niður í Samskip en þeir voru svo sætir að bjóða honum að koma og horfa með starfsmönnunum.

Eg var búin að vera verulega stressuð allan daginn og stressið jókst bara eftir því sem nær leið og náði hámarki í vítaspyrnukeppninni þar sem mér leið eins og ég væri sjálf að fara að keppa.

Á meðan leik stóð og Ferguson kallaði til Giggs að hann ætlaði að skipta honum inn á sagði ég við Sveinbjörn að hann myndi skora úrslitamarkið. Þegar leið á leik var ég farin að óttast að sú spá mín myndi ekki rætast en innst inni trúði ég því þó staðfastlega. En í raun og veru rættist hún þegar Giggs skoraði örugglega úr síðustu vítaspyrnunni og Van Der Saar varði lokaspyrnuna.

Um leið og síðari hálfleik framlengingarinnar lauk og við Sveinbjörn fórum að giska á hverjir myndu taka víti nefndi ég við hann að ég héldi að Anelka myndi klúðra. Svo þegar hann labbaði að vítapunktinum og tók síðustu spyrnuna hætti ég nánast að vera stressuð þar sem ég var svo viss um að þessi spá mín myndi rætast. Sem hún og gerði. Ég vissi reyndar líka að John Terry og Ronaldo myndu klúðra þar sem það sást á þeim fyrirfram. Ronaldo var náttúrulega súper stressaður og ég veit ekki alveg hvað fór um taugarnar á honum en það er reyndar fáránlega erfitt að taka svona vítaspyrnu eftir að hafa spilaði í 120 mínútur í svona úrslitaleik.

En mikið var ég fegin þegar þetta lenti réttu megin þó svo að ég hefði gjarnan viljað að mínir menn hefðu klárað þetta á eðlilegum leiktíma eða alla vega í framlengingu. En þrátt fyrir það er sigurinn SVO sætur og gleðin hreinlega streymdu um mig alla í gærkvöldi og ég var enn svo uppveðruð að ég gat hreinlega ekki farið að sofa fyrr en seint og um síðir. Það er ótrúlegt hvað lítill hlutur eins og fótboltaleikur getur gert fyrir mann og hvað liðið manns skipar stóran sess í lífi manns.

Ég gat reyndar ekki annað en vorkennt Terry aðeins í leikslok þar sem hann er í raun og veru skúrkurinn. Hann hefði getað innsiglað sigur liðsins en klúðraði því og hann grét fögrum tárum í leikslok. Ljóta púkanum honum Grant gat ég þó ekki vorkennt fyrir fimm þó svo að hann væri mjög aumur í leikslok. Það er hreinlega eitthvað við hann sem mér líkar ekki við.

Yndislegur dagur!

Í sól og sumaryl

Posted in Almennt on 13.05.2008 by Hafdís Ósk

Það er ótrúlegt hvað hugur og líkami eru fljótir að venjast því að vera í 25° hita dagsdaglega. Það er þó kannski að hafa smá áhrif að hér er notaleg hlý gola og því ekki drepandi heitt allan daginn. Kvöldin eru síðan æðisleg. Logn og dásamlegt veður og því tilvalið að sitja úti á verönd, spjalla og hafa það gott. Ég er reyndar búin að bregða mér í hjólatúr, leika mér í blaki úti í garði, spila hnit og fara í göngutúra. Þó er ég mest dugleg í því að sitja bara úti og spjalla við fullorðna fólkið og horfa á son minn eltast við bolta og kanínur út um allan garð. Já, það er sko ekki amalegt að vera hér í Waldbüttelbrunn í Þýskalandi.

Við komum hingað um miðjan dag á föstudegi og áttum mjög gott flug. Sævar svaf allan tímann í tveimur sætum þar sem við vorum svo heppin að hafa 6 sæti fyrir okkur 4. Við hin horfðum á myndina sem var í boði og skoðuðum úrvalið í Saga butique. Ég yngdi snyrtivörusafnið aðeins upp og styrkti ,,Á allra vörum” átakið sem ég er afar hrifin af. Ekki slæmt að styrkja gott málefni um leið og maður skvísar sig upp.

Hérna höfum við svo dvalið síðan kona frænda mins, Elke, sótti okkur á föstudaginn. Við erum búin að elta kanínur, leika okkur við dverghamsturinn og horfa á rotturnar úr fjarlægð en þessi dýr eiga það sameiginlegt að vera gæludýr heimilisins. Sævar er í essinu sínu með allt þetta lið og börnin tvö, Berglindi (12) og Elvar (10) ára í kringum sig. Við fórum og skoðuðum vínekru í gær og fórum á æðislegan grískan veitingastað. Það er dásamlegt að sitja úti og borða kvöldmatinn og leyfa krökkunum að hamast í leiktækjum eða fótbolta á meðan. Hér er s.s ótrúlega barnvænt alls staðar og þvílíkur lúxus að búa í húsi þar sem börnin geta bara hoppað út í bakgarð þegar þeim hentar. Við skötuhjúin sjáum alltaf betur og betur hvernig við viljum hafa draumahúsið okkar.

Við kíktum aðeins í bæinn í dag enda var tilgangur ferðarinnar ekki sá að versla heldur að njóta góðs félagsskapar og hafa það notalegt. Við stoppuðum bara stutt þar sem allt Þýskaland virtist vera niður í bæ. Það var geðveiki að fara í H&M og því reyndi ég að vera eins snögg að gera það sem ég ætlaði þar og ég gat en uppskar nú samt smá viðbót við fataskápinn (alveg óvart).

Í dag tekur svo líklega við pökkun og almenn huggulegheit auk þess sem heimilsdýr verða kvödd. Við leggjum svo af stað út á flugvöll um 10 í fyrramálið (8 að íslenskum tíma) og lendum um 2 að ég held. Annars gleymdi ég auðvitað að það er einn galli á þessu öllu saman. Gott veður færir manni líka heitar nætur og þeim er ég ekki hrifin af. Hata að vera þvöl og sængurlaus á nóttunni. En ég held samt að ég kjósi heita daga og heitar nætur í stað kalda loftslagsins sem ríkir á klakanum. Öllu má venjast nema einna helst kuldanum ;)

En þetta átti ekki að vera svona langt hjá mér. Ætlaði bara rétt að láta vita af mér.

Sjáumst sem fyrst,

H

Flensa og flug

Posted in Almennt on 07.05.2008 by Hafdís Ósk

Við mæðginin vorum svo sniðug að smitast af flensu og erum því bæði með hressari móti þessa dagana. Það er fátt skemmtilegra en að vera með hita, nefrennsli, hausverk af öllu slíminu sem er í hausnum og frekar netta hnerra sem koma á 10 mínútna fresti. Það er þó öllu verra að Sævar sé veikur þó svo að hann beri sig vel þessi elska. Hann er samt soldið lítill í sér og vill helst vera hjá mömmu sinni. En það er vel skiljanlegt þar sem allir vita að mömmur eru bestu hjúkkurnar.

Þetta er kannski líka sérstaklega slæmt þar sem við erum að fara til Þýskalands á föstudaginn og ég hef heyrt að flug með kvef sé eitt það versta sem hægt er að hugsa sér. Svo að ég vona að við verðum orðin hress fyrir þann tíma og þá sérstaklega sá stutti. Því er fátt annað en c-vítamín og önnur hollusta á okkar borðum og stefnan tekin á bata fyrir kl.20 á fimmtudagskvöld.

Við fjölskyldan ásamt mömmu erum að fara að heimsækja móðurbróður minn sem býr í Wúrzburg sem er í um klukkustundar fjarlægð frá Frankfurt. Þar ætlum við að dvelja í góðu yfirlæti hjá honum, konunni hans, tveimur börnum, kanínunum og rottum fram á miðvikudag. Við erum búin að leigja okkur Benz á meðan dvölinni stendur svo að það ætti ekki að fara illa um okkur á meðan við verðum þarna.

Þessa dagana er ég því í að kaupa það sem vantar fyrir ferðina og reyna að ná þessum skít úr mér og Sævari.

En ég ætla að skella mér í ræktina til að hressa aðeins upp á ónæmiskerfið í mér!

Að skella skuldinni

Posted in Almennt on 03.05.2008 by Hafdís Ósk

Mér finnst framsóknarflokkurinn ansi skondinn þessa dagana. Á hverjum einasta degi birtast myndir og fréttir af þeim að gagnrýna sitjandi ríkisstjórn fyrir eitthvað og það er í sjálfu sér gott og blessað og nauðsynlegt til að hafa smá aðhald. Mér finnst hins vegar ofsalega fyndið að þeir séu að gagnrýna sjálfstæðisflokk og samfylkingu fyrir verðbólguna sem nú er að hækka þar sem stærsti hlutinn af henni er vegna fasteignaviðskipta. En það var einmitt framsóknarflokkurinn sem kom með tillögu að 90% lánum til að ungt fólk gæti keypt sér íbúð. Þessi lán urðu til þess að fasteignaverð fór uppúr öllu valdi og fasteignamarkaðurinn var brjálaður um tíma. Þegar þessi lán hurfu svo af markaðnum og önnur lán í kjölfarið sprakk bólan hins vegar og allt varð rólegt.

Það að skella skuldinni yfir á einhvern sem á ekki sök á henni finnst mér alrangt og skil ekki alveg hvernig þingmenn framsóknarflokksins fá sig til þess að gera slíkt. Nema ef til vill í von þess að fólkið í landinu sé búið að gleyma hver kom með 90% lánin á annað borð!