Long time no see eins og svo oft áður!
Ég var að koma úr sumarbústað með strákunum mínum. Við skelltum okkur í sumarbústað sem Stéttarfélag Verkfræðinga leigir nálægt Hreðavatni og Bifröst. Hann var svo sem ágætur greyið en ekki mikið meira en það. Mér fannst of margir naglar standa uppúr pallinum og því þurfti Sævar að hafa sig allan við til að rífa ekki allt skinnið af höndunum á sér. Hann er nefnilega ekkert að drífa sig að fara að labba þessi elska og fer alsæll um á fjórum jafnfljótum. Það er samt eitt sem ég skil ekki við svona bústaði – afhverju eru rúmin í þeim alltaf svona agalega mjúk? Er það ekki rétt ályktað hjá mér að meirihlutinn sofi á frekar hörðum rúmum en mjúkum? Ég veit alla vega um ansi marga sem koma hálf skakkir og skældir úr afslöppuninni í sumarbústað þar sem rúmin voru svo hrikalega vond. Við komum alla vega frekar stíf heim úr ferðinni og fannst rúmið okkar dásamlegt í nótt. Það er reyndar alveg yndislegt að geta farið í heita pottinn á hverjum degi og kyrrðin er náttúrulega bara það besta sem til er. Ótrúlegt hvað það vinnst ofan af manni fljótt í þessu stressleysi. Reyndar finnst manni fyrst um sinn að maður eigi að vera að gera eitthvað og hálf leiðist þetta aðgerðaleysi en það er afskaplega fljótt að venjast og spil eins og póker og sudoku nutu mikilla vinsælla.
Ég fór á landsleik kvenna áðan – Ísland-Grikkland. Það er smá munur að fara á kvenna og karlaleik og fyrir mitt leyti skemmti ég mér miklu betur á þessum leik en á karlaleikjunum sem ég hef farið á. Það er skemmtileg tilbreyting að fara á sigurleiki hjá landsliðinu og þær mega eiga það stelpurnar að þær spila alveg þrælskemmtilega sín á milli. Hörkuskemmtun. Ég verð reyndar líka að hrósa stuðningsmannaklúbbnum Tólfunni. Þeir sköpuðu skemmtilega stemningu með söng og klappi allan tímann og ég var allan tímann að dilla mér í takt við tónlist og trommur. 4 stjörnur af 5 mögulegum.
Við Sveinbjörn erum annars að fara að flytja í næstu viku. Erum búin að fá íbúð á efstu hæð í þríbýli í 104. Mjög skemmtileg íbúð með bílskúr og öllu. Við erum að vonum dáldið spennt og hlökkum mikið til að komast aftur út af fyrir okkur.
Atvinnuleit gengur líka afar vel – ég er komin með tvö atvinnutilboð en ætla ekki að segja neitt meira um það í augnablikinu. Mín bíða fleiri atvinnuviðtöl á næstunni og svo er ég búin að sækja um á nokkrum stöðum til viðbótar. Reyndar hefur ekkert súper dúper spennandi dottið inn á borð til mín en ég er mjög vongóð ennþá og annað af þessum tveimur leit afar vel út líka og myndi áreiðanlega henta mér vel. Svo að framtíðin er bara björt!
Ef einhver veit um gott fólk sem er að leita sér að íbúð er okkar íbúð (2 herbergja, 90 fermetra) að losna. Þið getið bara haft samband við mig ef þið hafið áhuga. Hún verður leigð út á sanngjörnu verði.
Læt þetta duga í bili!