Útrétta
Nú er ég mikil áhugakona um íslenska tungu og endrum og eins rekst ég á afar forvitnileg orð sem vekja umhugsun hjá mér. Eitt þessara er sögnin að útrétta. Mér finnst þetta afskaplega skemmtilegt orð – sérstaklega af því að ég hef ekki hugmynd af hverju það er dregið. Þ.e hvernig fer orð eins og að útrétta – að rétta út að tákna að framkvæma eittvað. Samkvæmt orðabókinni minni er það að útrétta að framkvæma eða koma í kring, einkum versla, gera innkaup. En það getur líka táknað að rétta út hönd – eins og í að hjálpa. Er maður þá að rétta út hönd sína og hjálpa verslunum með því að versla við þær? Nei, ég hugsa að það sé ekki málið. Eftir dálitla umhugsun dettur mér engin sniðug lausn á þessu í hug og er því ekkert nær um uppruna sagnarinnar að útrétta.
Allar upplýsingar vel þegnar!
12.06.2008 at 15:28
Ég passa á þetta. Ég er annars sammála þér, skil ekki tenginguna milli “útrétta” og einhverja framkvæmd.
18.06.2008 at 22:59
Þrátt fyrir að íslenskukunnátta mín sem alveg hreint út sagt brilliant þá get ég því miður ekki hjálpað þér hér.
Ég skellti samt orðinu “útrétta” inn í tölvuorðabókina mína góðu en það komu bara sömu útskýringar og þú skrifaðir hér að ofan. Það kom samt líka úrelt/forn skýring en sú er að útrétta þýði að sóa.
Áhugaverð pæling hjá þér samt sem áður, keep it coming