Jæja þá erum við flutt á nýjan stað og búin að koma okkur fyrir að mestu leyti. Það er alltaf eitthvað sem á eftir að gera og ég held að það eigi við um alla – sama hversu lengi þeir hafa búið á staðnum. Það er alltaf eitthvað sem þarf að dytta að eða laga, breyta eða bæta. Við eigum kannski soldið mikið eftir miðað við það fólk þar sem enn eru óopnaðir kassar en flestir verða þeir áfram óópnaðir þar sem í þeim er skóladót sem ekki verður komið fyrir á meðan við búum hér. Ég á reyndar enn eftir að skipuleggja fataskápana okkar og það er nokkuð sem ég hef soldið verið að humma fram af mér en get ekki gert mikið lengur þar sem það er ekki hagstætt að vera alltaf í sömu fötunum og vita aldrei hvar neitt er niðurkomið. Reyndar hefur sjónminnið mitt komið sér vel á meðan flutningum stóð þar sem ég var ótrúlega nösk á að finna út í hvaða kassa það sem mig vantaði var.
Næstu dagar eru vel pakkaðir og skemmtilegir. Sigurjón vinur minn og ljósmyndari með meiru er með opnun á fyrstu ljósmyndasýningunni sinni hérna heima á morgun. Ég er mjög spennt fyrir því þar sem serían sem hann er að sýna er geggjuð. Flottustu myndir sem ég hef séð – fullyrði það hér með. Sú sýning er á Gónhól á Eyrarbakka og opnar formlega á morgun. Ef þið hafið áhuga þá hvet ég ykkur eindregið til að kíkja. Hann er líka svo skemmtilegur þessi elska að það eitt er nóg til að fá sér bíltúr austur fyrir fjall. Svo verð ég á svæðinu ásamt Sveinbirni og Sævari og miðað við hvað dagskráin er að þéttast hjá mér á næstunni er ekki víst að þið fáið annað tækifæri til að sjá mig á næstunni. Á laugardaginn halda síðan tvær góðvinkonur mínar upp á 25 ára afmælin sín og því eru tvær veislur á dagskrá hjá mér þann daginn og að auki er Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum á Laugardalsvelli svo að ég fæ lítinn tíma í afslöppun og huggulegheit. Ég kvarta þó alls ekki yfir því þar sem mér finnst iðulega gaman að hafa nóg að gera. Frjálsíþróttamennirnir sem enn eru virkir í hópnum okkar eru að fara að keppa um helgina og ég má ekki missa af því. Ég er alveg með það á hreinu að alla vega einn í þeim hópi er að fara að gera góða hluti um helgina en ég nefni engin nöfn að svo stöddu. Sá hinn sami veit hvern ég er að tala um
Hin verða líka pottþétt að standa sig svo að ég missi ekkert af þeirra afrekum heldur.
Verslunarmannahelgin er síðan upptekin hjá mér í fyrsta skipti í langan tíma. Við fjölskyldan erum að fara í útilegum með frjálsíþróttahópnum upp í Landmannalaugar. Ég hlakka afar mikið til en kvíði reyndar aðeins um leið fyrir fyrstu útilegunni með Sævar. Veit ekki alveg hvað á að taka með og svona né hvernig á eftir að ganga að láta hann sofa í tjaldi. Hugsa þó að honum eigi eftir að finnast þetta vera talsvert sport. Seinast þegar ég fór í útilegu um verslunarmannahelgi var rigning allan tímann og voða lítið hægt að gera og því vona ég heitt og innilega að sú verði ekki raunin. Sævar á reyndar pollagalla og allar græjur en ég þyrfti að kaupa stígvél eða gúmmiskó á kappann. Ég held hins vegar að ég eigi ekki föt í svoleiðis hressleika og þarf því eitthvað að skoða þau mál.
En ryksugan og skúringamottan bíða mín og ég ætla því að fara að veita þeim smá athygli. Svo þarf ég nú að fara að standa mig betur í þessum bloggmálum. Þetta gengur ekki!
24.07.2008 at 15:52
Ég fór inn á síðuna til að kommenta á að nú þyrfti sko nýtt blogg til að lesa í vinnunni, nei og þá varstu bara búin að blogga.
Hlakka til að sjá ykkur skötuhjú á laugardaginn. Bið að heilsa heim í kotið