Hverjum er ekki sama? Mér!
Á mbl.is í dag er frétt um að stofnun í Bandaríkjunum vari við of mikilli notkun farsíma. Þeir segja að fólk eigi ekki að bíða eftir að staðfesting á skaðlegum áhrifum farsíma komi í ljós heldur byrja strax að varast þá. Talað er um að börn eigi einungis að nota farsíma í neyðartilfellum og fullorðnir eigi að halda símanum eins langt frá höfðinu og hægt er.
Tveir hafa sett ahugasemdir sínar við fréttina og annar spyr hverjum sé ekki sama. Hinn segir að enn einu sinni sé verið að tala um þetta. Ég hef frá upphafi farsíma óttast að þeir séu sígarettur okkar tíma. Töff að allra mati en að síðar komi í ljós að þeir séu krabbameinsvaldandi.
Að mínu mati er ekkert þess virði að taka áhættuna á einhverju eins hrikalegu og krabbameini og því hyggst ég endurskoða farsímanotkun mína gríðarlega og nota hann eingöngu í ,,neyð”. Ég tala held ég ekkert hrikalega mikið í minn en þó of mikið. Mér finnst heimska að halda því fram að fólki sé sama um eitthvað sem getur drepið það og skil einfaldlega ekki svoleiðis hugsunarhátt.
Ef þú hefur áhuga á að kíkja á fréttina er hún HÉR!
27.07.2008 at 21:41
Alveg sammála þér!