Fall er fararheill!

Ég vona að þetta orðatiltæki eigi við mig um þessar mundir. Fyrir utan hvað ég rek mig oft í, labba oft á, rek tærnar í og meiði mig dags daglega lenti ég í þeim skemmtilegu aðstæðum að þurfa að hringja mig inn veika fyrsta daginn minn í nýrri vinnu. Ég fór að verða eitthvað slöpp að kvöldi sunnudags, fann fyrir sárindum í hálsi og smá hausverk en var skynsöm og fór snemma að sofa. Þegar ég vaknaði morguninn eftir fann ég að þetta væri ekki dagur til að fara í vinnuna. Hausinn á mér var að springa, hálsinn afar slæmur og slím út um allt – fallegt! Sævar var búinn að vera hálf slappur alla helgina og því vorum við mæðginin bara heima í góðu yfirlæti. Ég mætti síðan í vinnuna í fyrsta skipti í dag en ég tók við stöðu sérkennslustjóra á leikskóla í Kópavogi og verð þar í tæpt ár. Mér leist afar vel á aðstæður og sé fram á að kunna vel við mig og læra mjög mikið á þessum tíma sem ég verð þar. Eftir 3 tíma í vinnunni var hringt í mig frá leikskólanum hans Sævars Daða þar sem ég fékk að vita að hann væri búinn að vera mjög vælinn allan morguninn og eftir að hafa komið inn úr útiveru væri hann bara alls ekki hress og vildi fá mömmu sína. Ég mætti á svæðið og fann þar son minn vel grátbólginn og með krónískan ekka eftir allan grátinn. Hann tuðaði stanslaust um mamma bíllll og var alveg með á hreinu að þarna vildi hann ekki vera lengur. Þetta fer ekki vel í lítið mömmuhjarta og því fórum við mæðgin heim saman.

Ég vona að morgundagurinn verði lengri í nýju vinnunni og ég komist betur inn í starfið og kynnist fleiri krökkum en ég gerði í dag. Í þessum skrifuðu er ég að kynna mér nánar röskun á einhverfurófi, aðrar tengdar raskanir og merðferðarúrræði. Það þýðir ekki að vita lítið sem ekkert í sinn haus þegar maður er orðinn háttvirtur sérkennslustjóri.

Ný vinna hefur aldrei byrjað verr hjá mér og því trúi ég því staðfastlega að þetta verði besta vinnan mín til þessa :)

Dyggum aðdáendum hugleiðinga minna get ég lofað bót og betrun á næstu dögum, vikum og mánuðum og hyggst hrista þessa bloggleti af mér hið snarasta!

Fylgist með!

5 Responses to “Fall er fararheill!”

  1. Gunnhildur Says:

    já, ég svaf líka yfir mig fyrsta vinnudaginn í Stoðtækni..;) en þau vildu nú ekki sleppa mér. Býst við að svo verði um þig líka ;)

  2. Hafdís Ósk Says:

    Ég vona það INNILEGA :)

  3. æjæj þetta byrjar ekki sem best hjá þér sæta mín en þetta er pottþétt vísir að frábæru starfi!

    Gangi þér vel með litlu ólátabelgjunum, þú munt standa þig súperdúper vel!

  4. Bjössi Arngríms Says:

    Og Gunnhildur svaf yfir sig á brúðkaupsmorguninn. Ég reynda að reka hana en hún situr sem fastast…

  5. Hafdís Ósk Says:

    hahaha – ég held að þú værir verr staddur án hennar og ferill þinn hefði farið niður en ekki upp ef hennar hefði ekki notið við. Þú ert afar vel giftur að mínu mati – svona fyrir utan afmæliskökur og gjafir ;)

Leave a Reply