Fullorðins
Það slær mig alltaf reglulega að ég sé orðin fullorðin. Mér finnst það samt alltaf jafn merkilegt því mér finnst ekki svo langt síðan ég var bara 9 ára áhyggjulaus lítil stelpa en núna er stutt í að það séu 20 ár síðan það var. Hvert fer tíminn eiginlega? Mér finnst líka ótrúlegt hvað tíminn líður alltaf hraðar með hverju árinu sem líður. Ég er alveg pottþétt á því að hann leið ekki svona hratt þegar ég var yngri og var að bíða eftir einhverju. Þá fannst manni klukkan stundum fara aftur á bak en ekki áfram.
Maður áttar sig samt ekki bara allt í einu á því að maður sé orðinn fullorðinn – alla vega ekki í mínu tilviki. Hjá mér gerðist þetta bara smám saman þangað til að ég fattaði einn daginn að það að hafa skoðun á gæðum þvottavéla, ryksuga, hreinsiefna, áhuga á húsgögnum og borðbúnaði, bílum og barnavögnum og er farinn að skilja um hvað fréttirnar snúast og hafa í raun áhuga á þeim er eitthvað sem er fullorðinslegt. Sem barni finnst manni ofantaldir hlutir ekki spennandi og í raun finnst mörgum fullorðnum þeir ekki spennandi heldur en í mínu tilviki er það raunin. Ég hef líka áhuga á því sem að gerast í húsnæðismálum á Íslandi sem og annars staðar, vil vita hvað er að gerast í heiminum, langar að styrkja góð málefni, langar að læra meira og svo mætti lengi telja. Þegar ég var yngri hafi ég ekki mikla skoðun né áhuga á þessu og lifði fyrir það að vera úti að leika, fara í fótbolta, læra heima, hjóla, leika og njóta lífsins áhyggjulaus. Ég held reyndar að börn í dag hafi það ekki eins gott og séu fyrr farin að hafa áhyggjur af útliti, peningum, vaxtarlagi og öðrum og fái ekki tíma til að njóta þess að lifa lífinu áhyggjulaus en það er önnur og lengri saga.
Maður áttar sig líka á aldrinum þegar maður er farinn að gefa vinum sínum pottaplöntur, vasa, kertastjaka, kökudiska og annað þarfaþing í afmælis- og/eða tækifærisgjafir. Það versta við það er þó að þeir sem og ég verða mjög ánægðir með slíkar gjafir en verða ekki fúlir yfir því að hafa ekki fengið dót.
Ég er þó föst á því að í öllum þessum fullorðinsheimi sé nauðsynlegt að halda í barnið í sér. Spila spil, leika sér í tölvunni, fara út í leiki, fá útrás og njóta lífsins í smá tíma áður en áhyggjurnar og raunverulega lífið taka við aftur. Annars væri ekkert til að lifa fyrir! Til hvers að vera til ef maður missir af öllum góðu hlutunum í lífinu. Til hvers að vinna af sér rassgatið til að eiga fyrir fína húsinu sínu og hafa aldrei tíma til að vera í því? Til hvers að eignast börn ef maður hefur aldrei tíma til að njóta nærveru þeirra? Hver er tilgangurinn með námi sem maður hefur ekki áhuga á?
Þið megið gjarnan pikka í mig ef þið verðið vör við mig í vinnu sem mér leiðist, ef ég hitti börnin mín aldrei, ef ég er of upptekin við að vinna fyrir 60 milljón króna húsinu, 5 milljón króna bílunum, húsbílnum, fína sófasettinu sem má ekki setjast í, utanlandsferðunum þremur og fínu merkjafötunum mínum. Svoleiðis langar mig nefnilega ekki til að vera og vona að ég villist ekki einhvers staðar af leið!
Ykkur óska ég góðrar og hamingjuríkrar helgar og hvet ykkur eindregið til að leyfa barninu í ykkur að njóta sín eitthvað smá!
14.09.2008 at 15:37
Ekki gefa mér pottaplöntu og ef þú ætlar að gefa mér kökudisk er eins gott að kaka sé á honum
Annars hef ég engann tíma til að skrifa þetta því ég þarf að vinna af mér rassgatið fyrir húsaleigunni minni.
14.09.2008 at 21:31
Ég hef þetta með kökuna á bakvið eyrað og ég hugsa að eitt það seinasta sem ég hefði gefið þér væri pottaplanta. Grunar að frúin á heimilinu yrði ekki lengi að drepa hana. Veit alla vega að kaktus væri sniðugastur
15.09.2008 at 17:24
Gleymdirðu ekki að telja upp að þig langi í milljón krónu Rolex??
19.09.2008 at 10:40
Hæ skvís…
Veistu ég var að ræða þetta við eina ríka frú á Íslandi í gær… Hún sagði að hún hefði byrjað að vinna of snemma og fullorðnast að hún vildi þetta ekki fyrir börnin sín og vill að þau leiki sér og verði í skóla eins lengi og þau meika!
Þannig að konan sem á allt, myndi frekar vilja gera þetta öðruvísi til að halda í barnið aðeins lengur!
Gott blogg hjá þér og ég vil ekki fullorðnast, enda held ég sjaldan að ég sé það…
19.09.2008 at 10:40
Er ég kannski meira fullorðin en ég held… ég notaði “FRÚ” í fyrsta skiptið!
20.09.2008 at 20:55
hehe – já, það er sko nauðsynlegt að halda aðeins í barnið í sér og það er auðvelt að gera þegar maður vinnur á leikskóla og fær borgað fyrir að leika sér og gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi fyrir börn allan daginn! Gæti ekki hafa fundið mér betri vinnu og ég hugsa að ég hafi aldrei verið jafn vinsæl á vinnustað og akkúrat núna
Aðdáendur mínir eru reyndar á aldrinum 3-5 ára en það er sko ekkert verra
20.09.2008 at 21:16
ég hugsa stundum um það hvenær ég verði eiginlega fullorðin, ætli þetta sé ekki að gerast hægt og rólega
Þegar maður er löngu búinn með skóla, farin að framkvæma hluti á lengri-tíma planinu og á barn sem getur siðað mann til hlýtur þetta að fara að koma!