Lífið er yndislegt

Það er fátt skemmtilegra í lífinu en hlutir sem hafa mikil áhrif á mann en maður hefur enga stjórn á. Óvissa og ástand á peningamarkaði er eitt það skemmtilegasta sem ég veit. Það er svo gaman að bíða spenntur eftir því hvaða banki fari fyrst á hausinn, hvað verði um peninginn manns, hversu margir einstaklingar verði gjaldþrota og hvert vöruverð, olíuverð og fasteignaverð eigi eftir að fara! Love it! Það er líka gaman að ákveða hvað maður eigi að gera við peninginn sinn og velta hverri fjárfestingu fyrir sér fram og tilbaka. Svona ástand er auðvitað hollt að ganga í gegnum til að hugsa aðeins sinn gang og muna að lífið snýst ekki bara um að eiga stærst og best af öllu og lætur mann hugsa meira og betur um það sem virkilega skiptir mann máli í lífinu. Ég persónulega er veruleg Pollýanna í ástandi sem þessu og einblíni á allt það góða sem þessi skemmtilegheit fela í sér og hugsa um hversu mikið verra þetta gæti verið. Þó svo að peningar skipti alltaf einhverju máli þá er svo margt annað í lífinu sem skiptir svo MIKLU meira máli! Ég er fullviss um að ég eigi það dýrmætasta í lífinu og enginn alþjóðleg kreppa getur tekið það frá mér. Aðrir verri hlutir geta þó reynt það en ég vil trúa því að það gerist ekki.

Ég er svo heppin að vinnan mín er tiltölulega laus við ofgreiningu á fréttum og í rauninni er ég hálf sambandslaus við umheiminn þegar ég er að vinna og það eina sem kemst að í huga mínum er börn, barnauppeldi, lausnir að vandamálum, leikir og almenn skemmtun. Ég er því algjörlega laus við streitu umheimsins en á móti upplifi ég talsverða streitu við að reyna að hjálpa hverju barni á leikskólanum eins og ég get til betra lífs.

Oh, lífið er svo yndislegt!

Leave a Reply