Singing bee
Ég get ekki alveg ákveðið hvað mér finnst um nýja þáttinn á skjá1 – singing bee. Mér finnst hann kjánalegur, asnalegur, ósanngjarn og illa skipulagður um leið og mér finnst hann vera sniðug hugmynd og hafa burði til að vera mun skemmtilegri en hann er með litlum breytingum. Reyndar eru þeir eitthvað aðeins að vinna í honum sýnist mér af þessu litla sem ég hef séð í kvöld.
Svo að ég þarf eitthvað aðeins að fylgjast með þessu með öðru auganu og sjá hvað verður!
Annars er mikið að gerast í sjónvarpsmálum hjá mér þessa dagana. Það eru svo margir góðir þættir að detta inn að ég er verulega upptekin við það að fylgjast með. Svo erum við á dansnámskeiði á mánudögum að læra samkvæmisdansa og því er mikið um að vera hjá okkur.
Dansnámskeiðið okkar er líka þvílíkt skemmtilegt. Við erum komin á framhaldsnámskeið 3 og það er mun meiri fjör en á framhaldsnámskeiði 1 sem við vorum á seinast. Við vorum færð upp á námskeið 3 þar sem hæfileikar okkar eru gríðarlegir. So you think you can dance hvað? Núna þurfum við bara að fara og nýta þessa kunnáttu okkar á einhverju dansgólfi borgarinnar. Ég er búin að læra meira á 2 tímum á þessu námskeiði en ég lærði í 12 tímum á hinu námskeiðinu.
En Las Vegas þarf óskipta athygli mína og því kveð ég að sinni!
04.10.2008 at 14:56
Veiii…tvær færslur í röð.
Enda alltaf til í að gefa fólki séns.
Annars er ég sammála þér með Singing bee. Þessir þættir vour í Noregi í fyrra og voru svo miklu miklu betri. Það var samt aðallega vegna þess að stjórnandinn þurfti ekki að reyna svona mikið. Enda var hann söngvari Wig Wam og mjög spes. Þetta gekk líka miklu betur fyrir sig þegar það var einstaklingskeppni, þá fóru allir í gegnum fleiri og skemmtilegri umferðir. Dansararnir kunni líka dansana og vissu hvaða dans var við hvaða lag.
Held þó að þetta verði betra hér þegar fólkið sem sér um þetta verður meira vant. Ég ætla ekki að afskrifa þetta strax og gefa þessum þætti séns.
06.10.2008 at 14:02
Já það er til miklu skemmtilegri þáttur sem snýst um það nákvæmlega sama. Hann heitir Don’t Forget the lyrics. Mér finnst mjög skrítið að þeir skildu ekki frekar taka hann inn.
08.10.2008 at 01:29
Já ég er sammála Berg. Það er þáttur hérna sem heitir “don´t forget the lyrics,” og er mjög skemmtilegur (hálfkjánalegur stundum en skemmtilegur).
Annars veit ég ekki hvernig þessi þáttur er heima en hef heyrt mismunandi hluti um hann