Beygja, kreppa, sundur, saman

Ég er komin í átak númer 18372 og fyrir vikið er ég búin að vera frekar hollystulega þenkjandi undanfarið. Ég hef ekki verið að borða nein sætindi og tókst til dæmis að forðast nýbakaða snúða og súkkulaðiköku í vinnunni í dag með því að beita mig MJÖG hörðu. Ég átti verulega erfitt með mig en borðaði bara vínber og döðlur í staðinn og reyndi að sannfæra sjálfa mig um að ávextirnir væru alveg jafn góðir á meðan vinnufélagar mínir sannfærðu mig um að snúðarnir væru afar vondir og ekki þess virði að borða. Þær eru svo sætar í sér! Í fyrradag skellti ég mér svo í gönguhlaupatúr sem felst í því að ég labba og hleyp til skiptis. Ég varð eiginlega bara hissa hvað ég þoldi og frekar ánægð með mig en hef ekki verið eins hress síðan þá þar sem mér líður frekar illa í kroppnum. Ég fór seinast út að hlaupa í byrjun ágúst með Kristínu og því er orðið ansi langt síðan síðast. Þetta var samt verulega hressandi túr og ég reikna með að reyna að fara í reglulegri hlaupatúra á næstunni.

Annars sá ég svo krúttlega ellilífeyrisþega í dag þegar við Sævar fórum í bakaríið (ég fékk ekki brauð bara hann). Þau komu inn og leiddust og voru svo súper sæt og fín og ég var farin að hugsa með mér að svona vildi ég verða þegar ég yrði stór en sú hugsun vék snögglega þegar ég sá að konan var með tígóspena í stuttu hárinu sínu og leit einna helst út fyrir að vera 5 ára. Hún var alla vega ekki að ná þessu saklausa kynþokkafulla útliti með þessari aðferð ef ég á að dæma. Ég varð svo hissa á þessu þar sem gamlar konur eru yfirleitt frekar með uppsett rúllað hár eða hnúta í síðu hárinu og það er mun algengara að hárið á þeim sé stutt og að þær fari í lagninu reglulega en tígó hef ég ekki séð og reikna ekki með að sjá aftur. Ef til vill var þetta hagsýn húsmóðir sem ætlar að spara peninginn sem fer vanalega í lagninguna og greiða sér bara sjálf – maður spyr sig!

Kreppan leggst annars ekkert mjög illa í mig og ég er að hugsa um að einblína frekar á að kreppa vöðvana heldur en að allt fari í kreppu. Ég er þó meðvituð um að þurfa að herða sultarólina örlítið og hugsa meira um hverja krónu en maður hefur gott af því endrum og eins. Það er svo margt annað til í lífinu en peningar og það er hægt að einblína á það góða í staðinn fyrir að hugsa alltaf bara um það slæma. Maður á fullt af gimsteinum og demöntum sem eru svo miklu betri en einhverjar skitnar krónur og pappírsseðlar.

Eigið góða helgi gullin mín!

2 Responses to “Beygja, kreppa, sundur, saman”

  1. Hildur H. Says:

    heyr heyr!

    Ég lærði nýja æfingu í dag, svona gömlufólks æfingu. Maður á að slá eða banka í bringuna á sér og svo kreppa og rétta úr fingrunum til skiptis, sem sagt banka-kreppa, banka-kreppa hahaha agalega góður gjaldfallinn fimmaurabrandari í boði kennara míns :)

  2. Hafdís Ósk Says:

    Hahaha – góður!

Leave a Reply